Verði ljós - 01.02.1897, Side 13

Verði ljós - 01.02.1897, Side 13
29 Kristsmeim — krossmeim. iii. Sjera Jón lærði í Möðruíelli. Eptir Bjarna Símonarson. m. Nokkru eptir miðja 18. öld (1758) vígðist til Grundarþinga í Byjafirði Jón prestur Jónsson, lögréttumanns Oddssonar frá Bakka í Svarfaðardal; höfðu þeir langfeðgar búið þar í dalnurn, hver fram af öðrum. Áður en Jón prestur vígðist hafði hann verið djákni á Möðruvallaklaustri í prestskapartíð Þorláks skálds Þórarinssonar. Kona sjera Jóns hjet Sigríður Bjarnadóttir. Einkasonur þeirra hjet Jbn, og er það hann, er hér skal nánar getið. Hann var fæddur að Guðrúnarstöðum í Eyjafirði (28. ágúst 1759). Þar bjó faðir hans fyrstu prestskaparár sín og svo að Grund, en síðast að Núpu- felli. Sjera Jón var vel að sjer eptir því sem þá gjörðist, einkurn er orð gjört á latínulærdómi hans; hann var og skáld á latneska tungu; hefir hann meðal annars orkt þakkarkvæði til presta í Kristjánssandsumdæmi í Noregi fyrir gjafir til fátækra presta íslenzkra. Til er og eptir hann veðráttuannáll og ýmsar þýðingar af læknisfræðisritum. Ymsir göfugir menn komu sonum sínum til hans til læringar; hjá honum námu þeir skólalærdóm, synir Þór- arins sýslumanns á Grund og hálfbróðir þeirra, Jón Espólín. Jón prestur kendi og syni sínurn allan skólalærdóm, og útskrifaði mag. Hálfdán Einarsson hann vorið 1780, og lauk lofsorði á þekk- ingu hans. Jón prestur var jafnan við frernur veika heilsu, og er hann var 64 ára gamall fjekk hann son sinn vigðan sjer til aðstoðar í embættinu. Hann var vígður 1. júní 1783 af prófasti Skagfirðinga, sjera Jóni Jónssyni í Hofstaðaþingum. Þá var biskupslaust fyrir norðan land, Jón Teitsson dáinn, en Árni Þórarinsson enn eigi kominn til stólsins. Upp frá því var hann aðstoðarprestur föður síns, unz sjera Jón eldri andaðist (3. júlí 1795). Þá fjekk hann veitingu fyrir Grundarþingum. Haustið 1786 gekk hann að eiga Helgu, dóttur Tómasar prests Skúlasonar, er um þær mundir flutti frá Saurbæ í Eyjafirði að Grenjaðarstað, en móðir hennar var Álfheiður Einarsdóttir, systir mag. Hálfdánar. Fyrst bjuggu þau hjón á Núpufelli, en fluttu síð- an að Möðrufelli og voru þar rúm 40 ár, enda er sjera Jón venju-

x

Verði ljós

Direkte link

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Verði ljós
https://timarit.is/publication/501

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.