Verði ljós - 01.01.1902, Blaðsíða 11

Verði ljós - 01.01.1902, Blaðsíða 11
7 öllu vera. Þeir eru börn kynslóðar þeirrar, sem drottinn sagði um: „Þetta fólk heiðrar mig með vörunum, en hjörtun eru langt í burtu frá mér“. Þeir eru hvorki kaldir uó heitir, liráir né soðnir. Þeirhyggjast vera ríkir og eiga allsnægtir og álíta því að sig vanti ekkert. Þeir vita eigi, að þeir í augum guðs eru aumir og veslir, fátækir og fáráðir, bliudir og naktir. Samt kalla þeir sig að vera vel kristna! En slík guðsdýrkuu er eigi einungis til einkis, svo sem Jesús segir; það er að skilja án sigurs og liuggunar, til spotts fyrir vantrúaða, en villuleiðslu fyrir hina leitandi, heldur er slík guðsdýrkun í innsta eðli sínu óskyn- samleg. Því ekkert getur verið óskynsainlegra en að standa með liálft hjart- að gagnvart frelsara gleðiboðskaparius. Anuaðhvort er kristindómurinn sannleikur og þá er hálfa hjartað oflítið eða þá að kristindómurinu er lygi og þá er hálí'a hjartað ofmikið. Lifanda frelsara vil óg elska af öllu hjartanu, en loginu frelsara vil óg hata af öllu hjarta. En kristin- dómur, sem fólginn er hvorki i olsku nó hatri, heldur er yfirskin og hálfvelgja, hann er óskynsamlegur og ósamboðinn mentuðum og vitrum manni. Ef vér þráum skynsamlega guðsdýrkuti, þá skulurn vór forðast liiun dauða vanakristiudóm. Og af samri ástæðu skulum vér varast skyn sems k una (rationalisme). Raunar gortar skynsemskan í öllum myndum síuum af þvi, að húu só hin rétta skynsemdartrú. Hún lætur beinlíuis hina ímynduðu skynsemi ráða, einnig á svæði trúarinnar, og mætti að því leyti virðast að vera skynsamleg guðsdýrkun. En í reyudinni er Bkyusemskau hið óskyn- samlegasta af öllu, því að hún er á sinn hátt eins og dauða trúin á sittu, óhæfilegur hálfleikur. Hiun dauði vanakristindómur er hálfleiki hjartaus. Skynsemskan er hálfleiki hugsunarinnar á grundvelli trúarbragðauua, hvorttveggja er jafn-óskynsamlegt. tívo sem vér verðum við hina dauðu trú að segja: „Annaðhvort er kristindómurinn saunleikur eðalygi; ef hann er hið fyrra, heimtar hanu, að maðurinn aðhyllist haun alveg, en só liann hið síðara, þá einuig burt með ytra yfirvarpið11, svo verðum vér við skynsemskuna að setja lika kjörkosti: „Annaðtveggja er til sönn opin- berun af liæðum —•; sjálfsafhjúpun lifauda guðs — og þá ber skynsem- inni eiuungis að þegja og beygja sig fyrir öllu innihaldi opiuberunar- innar, reyua svo sannleik hennar með hlýðnisfullri tileinkun, ellegar það er engin opinberuu til og þá getur skynsemin með ró brotið niður all- an kristindóminn, og látið þar eigi stein yfir steini standa“. En að taka kristindóminn, setn 'kveðst vera að ofau frá föður ljósanna og sía hann gegnum sáld mannlegrar skynseini, og hirða svo það, sem manni likar^ eu 'kasta hinu, sem manni likar ekki, það er heimskulegt, eða efti gömlu máli „að setja sólina eftir vasaúrinu sínu“. Þótt skyusemskau tilsýndar virðist glögg skynsemistrú, þá er húu í upphafi sínu hið ó- glöggvasta af öllum hlutuin. Ef skynsemskau vildi leiða ályktuu út af eigin forsetuiugum sínunt, þá yrði hún að enda í hreinu guðleysi. Slík

x

Verði ljós

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: Verði ljós
https://timarit.is/publication/501

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.