Nýjar kvöldvökur - 01.05.1909, Page 19

Nýjar kvöldvökur - 01.05.1909, Page 19
HEIMILISKENNARINN. 115 sem allar hugsanir hans höfðu snúist um síð- ustu dagana, og það kom yfir hann óstjórn- leg þrá, að mega í eitt einasta skifti þrýsta henni að brjósti sér, og kyssa rósrauðu, blóm- legu varirnar hennar, og leggja kinn við kinn, aðeins í eitt einasta skifti, svo hægt og Ijúft, að hún yrði eigi vör við; og flýja svo þegar langt, langt á brott, og sjá hana aldrei framar. Rað varð hann auðvitað að gera vegna hinna grimmu örlaganorna, sem höfðu leikið hann svo grátt. Og hann læddist inn í rjóðrið með hjartslætti og æstum tilfinningum, en þegar liann nálgaðist hana, var sem hrygðardráttum brygði fyrir í andliti hennar, og hún nefndi nafn hans f svefninum. Pað kom hik á hann, og hann var hrædd- ur um, að hún hefði orðið sín vör. Og þó ekki. Retta var varla annað en draumur, ef til vill hafði nærvera hans áhrif á drauma hennar. Svo laut hann ofan að henni og kysti hana á munn- inn. »Eiríkur» hvíslaði hún, og greip með báð- um handleggjum yfir háls honúm. Var hon- um þá öllum Iokið, og»vafði hana að sér fast og innilega og kysti hann í sífellu. Nokkrar mínútur leið hún þetta án mót- þróa, og honum fanst einu sinni hún kyssa sig aftur. En svo alt í einu vatt hún sér úr faðmi hatis með lágu ópi, og greip báðum höndum blóðrauð fyrir andlitið. Petta kom vitinu fyrir hinn unga mann, og hann fór að átta sig á, að framkoma hans mundi ekki hafa verið sem drengilegust. Hann reyndi samt að tala með rósemi, og sagði í auðmjúkum, nærri biðjandi rómi: «Ó, fyrirgefið ! fyrirgefið mér!» Hin unga mær svaraði engu, hún sat með hendurnar fyrir andlitinu, og hafði ákafan ekka, svo allur líkami hennar titraði. Litlu síðar hélt hann áfram í sama biðjandi rómi: «Mér er Ijóst, að eg hefi móðgað yður óumræðilega inikið. Eg veit, að eg hefi mikið til saka unnið, og að það er fátt sem getur verið mér til afsökunar. Og þó vil eg segja yður, þótt það engan veginn sé fullnægjandi afsökun, að þetta var enginn léttúðarleikur. Rað var hin hreina og sanna ást, sem var or- sök til þess, að eg misti vald yfir sjálfum mér, og reyndi eg þó af ítrasta megni að stríða á móti þessum tilfinningum, svo þér aldrei feng- juð að vita um mína sönnu en vonlausu ást. Öll mín framkoma gagnvart yður var látlaus styrjöld gegn þvf, að þessi tilfinning fengi yfir- hönd yfir mér, og endirinn varð, að þær báru sigur úr býtum, sein sýnir hvað mikill bjálfi eg er, og hvað eg er ósjálfstæður. Hann tók málhvíld og horfði á hana. Hún svaraði engu, en hélt höndunum fyrir andlitið. Ekkinn var hægri og heyrðist naumast. «Pér eruð svo góðar, göfuglyndarog hlut- tekningarsamar gagnvart öllum, get eg þá ekki einnig orðið þess aðnjótandi, og að þér fyr- irgefið mér, svo að eg með léttari samvizku geti farið héðan.« Og þar sem hún enn engu svaraði, kraup liann á kné fyrir henni, og reyndi blíðlega að taka hendur hennar frá andlitinu. «Hefi eg þá vilst á yður?» sagði hanii. »Æ, segið að eins orðin, að þér fyrirgefið og að þér álítið mig engan ódreng.* En sat hún, og svaraði engu, og hreyfði hvorki legg né lið, og ekki náði hann hönd- unum frá andliti hennar. Svo sagði hann, og röddin var óvenju- Iega harmþrungin: «Ó, ef að þér vissuð alt sem hryggir mig. um þessar mundir, og þekt- uð allar þær þjáningar, sem kvelja mig, þar sem stolt og sjálfstæði, háir stríð við fyrirlitn- ingu og vesalmensku. Svo bætti hann við með dálítið beyskjublandaðri rödd. «Og svo fer eg héðan nú þegar, eins og eg lengi hefi ætlað inér; þér skulið eigi þurfa að bera kinnroða fyrir að sjá mig hér. Eg fer langt í burtu og kem hér aldrei aftur. Og eins og Gyðingurinn gangandi mun eg víða flækjast með sorgir mínar og hinn þunga örlagadóm.» Hann ætlaði að standa á fætur, en þá lagði ungmeyjan alt í einu hendurnar um háls hon- um og kysti hann áður en hann áttaði sig. Og svo fékk hún loks málið ogsagði: «Eg 15*

x

Nýjar kvöldvökur

Direct Links

If you want to link to this newspaper/magazine, please use these links:

Link to this newspaper/magazine: Nýjar kvöldvökur
https://timarit.is/publication/511

Link to this issue:

Link to this page:

Link to this article:

Please do not link directly to images or PDFs on Timarit.is as such URLs may change without warning. Please use the URLs provided above for linking to the website.