Nýjar kvöldvökur - 01.05.1909, Page 20

Nýjar kvöldvökur - 01.05.1909, Page 20
116 NÝJAR KVÖLDVÖKUR. er ekki reið við yður, því eg er jafn sek og þér. Eg var einungis lömuð af öllu þeim hugs- unum erbrutust um í mér, Eg sofnaði hérna og mig dreymdi um yður, og svo« — »Og svo náði draumurinn uppfylling, himii sælu og sorglegu uppfylling, að fá að faðmast með fullvissu um hina trúustu og hreinustu ást, en jafnframt með fullri vissu um að verða nú að skilja, það sem eftir er æfinnar. Já, þessari stund verðum við að gleyma, og þó ekki eg. Eg vil varðveita minninguna um hana eins og helgidóm alla mína daga. En leiðir vorar geta aldrei legið saman. Rað liggur engin brú yfir hyldýpið, sem skilur okk- ur að.» »Eg get eigi hugsað, ekki talað, og enga ákvörðun tekið. Petta hefir komið svo snögg- lega, og eg þarf að hugsa mál okkar. En þér verðið að lofa mér, að fara ekki,« sagði Geir- þrúður og horfði á hann bænaraugum. «Ekki í dag og heldur ekki á morgun. Eg veit það nú ekki, en eg lofa því að tala við yður áður en eg fer.» Geirþrúður leit til-■ hans með þeim svip, sem bar vott um innilega ást, og hvarf svo bak við runna. Eiríkur var seztur á grasbekkinn og hug- ur hans^dvaldi við þessa minningu, sem unaðs- ríkan draum, án þess hann hugsaði um hverj- ar afleiðingar þetta mundi hafa fyrir sig og ástmey sína, og hann dró bréfaveskið upp úr vasa sínum, sem nafn hennar stóð á, og ritaði í það mansöng er hann orti, til hennar, sem hann unni svo heitt, svo, heitt. Að áliðnum næsta degi hafði Eiríkur tekið saman farangur sinn. Hann varð að fara bæði sín vegna og Geirþrúáar. Rað, sem fram hafði farið milli þeirra deginum áður, varð eigi aftur tekið. Og þar sem aljan grundvöll vantaði undir, að þau framvegis mættu gefa tilfinn- ingum sínum lausan tauminn, urðu þau að skilja, annars var eigi kostur. Hann var búinn að rita bréf til barónsins, sem fyrst skyldi afhendast honum, þegar hann væri farinn, og í því skýrði hann frá, að hann hefði orðið að fara frá kennarastöðunni á heim- ili hans fyrir fult og alt, og að hann mundi senda eftir ferðakistum sínum næstu daga. Nú átti hann einungis eftir að ná í Geirþrúði til þess að kveðja hana. Hann var sannfærður um að réttast hefði verið að sleppa því, en hann hafði lofað að tala við hana áður en hann færi, og það varð hann að efna. Svo kom tækifæri til þess. Hann heyrði að gengið var inn í herbergi Bennós, sem var á sama lofti og hans, en hann vissi að dreng- urinn var úti, hafði séð hann í garðinum hjá liðforingjunum, og grunaði því, að það mundi hafa verið Geirþrúður, sem gekk uin. Til skýr- ingar má geta þess, að úr herbergi drengsins var hægt að ganga inn í bókasafnsherbergið, og þaðan voru dyr út á aðalganginn. Eiríkur fór því inn í berbergi Bennós til að vita hvört ungfrúin væri þar, svo hann gæti kvatt hana, og hann hafði getið rétt til, hún var fyrir í herberginu, þegar hann kom þang- að. Hvorugt þeirra hafði grun um að þriðji maðurinn hafði veitt för þeirra inn í herberg- ið eftirtekt. Rví var þó svo varið, að Prank- nitz liðforingi hafði tekið eftir þessu. Hann hafði síðan afmælisdaginn verið í versta skapi og fengið sér óspart í staupinu, svo að hans innri maður kom því betur í Ijós. Geirþrúður hafði verið svo fálát og stygg við hann þessa daga, að hann sá að öll von var úti, um að hún mundi taka sér. Af því hafði magnast hatur hans til Eiríks, sem hann kendi um, ekki að ástæðulausu, að hefði heillað uugfrúna frá sér. Sá grunur hafði vaknað hjá honum, að hann og barónsdótturin niundi eiga með sér launfundi, og hann veitti því öllu framferði þeirra nána eftirtekt í þeim tilgangi að geta Ijóstrað upp um þau, ef slíkir fundir ættu sér stað, og með því ef til vill komið því til leið- ar, að kennarinn yrði rekinn burtu af slotinu. Honum hafði fundist heimasætan eitthvað und- arlegri þennan dag en endrarnær, og hann hafði því haft stöðugar gætur á henni, og varð

x

Nýjar kvöldvökur

Direct Links

If you want to link to this newspaper/magazine, please use these links:

Link to this newspaper/magazine: Nýjar kvöldvökur
https://timarit.is/publication/511

Link to this issue:

Link to this page:

Link to this article:

Please do not link directly to images or PDFs on Timarit.is as such URLs may change without warning. Please use the URLs provided above for linking to the website.