Nýjar kvöldvökur - 01.07.1914, Blaðsíða 21

Nýjar kvöldvökur - 01.07.1914, Blaðsíða 21
BÓKMENTIR. 165 an, og er hún ekki síðri að efni, og ihinna viðburðirnir að nokkru á íslendingasögur vorar og fornaldarsögur, sífeldar styrjaldir og ófriður. En sá er munurinn að hið þýzka, realistiska nútíðarskáld teygir málið eftir vorrar tíðar sið nt í nýtízkumálalengingum og framsetninguna vantar alt þetta miðaldalega ákveðna og skarp- orða, sem er aðaleinkunn fornrita vorra. ^Rá hlógu allir æsir nema Týr; hann lét hönd sína,« segir í Eddu. Það væri gaman að vita hvað nýtízkuskáldunum hefði enzt þetta í margar línur, að eg ekki segi blaðsíður, til þess að Þynna það út með. En þetta er tízkan. Fram- setningin í sögunum okkar er ósvikið gull; en það er fyrirferðarlítið; það eru korn, en þau korn eru gullkorn, eins og þessi setning úr Eddu, sem eg tók fram — og svo mýmargar aðrar. Fæstum af nýju skáldunum dettur í hug að Þjappa efninu saman; nei, þau teygja úr því og drýgja það, þangað til það er orðið að hrein- asta tannbaki eða gulli úr blaða-auglýsingum útlendu mangaranna, sem eru að auglýsa hér og »trekkja okkur upp«. En svo léiðir af því annað. Ressar nýtízkumálalengingar og lýsingar eiga við nýtízkumál, en ekki fornmál. Bjarni hefur útlagt báðar sögurnar á íslenzku fornmáli, og ferst það svo vel, að furðu sætir; það þarf ekki að efa það, að hann hefur ágætt vald á sögumáli voru hinu forna. Og hefur þó oft verið miklum erfiðleikum bundið að koma fornu máli við lýsingar höfundarins. Enda verður efnið og málið víða eitthvað hjáleitt, eins og þau fari hvort framhjá öðru. Og eitt er það, sem eg kann ekki við hjá þessum þýðurum skáldsagna frá miðöldunum: Rorsteini Gíslasyni og Bjarna Jónssyni: F*að er þessi útlegginga- sótt á nöfnum. Yngvi er gert úr Ingo og Ingvi- Hrafn úr Ingraban, o. s. frv. Að vísu má þess- ar útleggingar til sanns vegar færa, og forn- nienn gerðu það oft, bæði við þýzk nöfn og írsk, að færa þau í íslenzkan búning. En þegar annað eins afskræmi er gert, eins og t. a. m. Ivar hlújárn úr Ivanhoe, eða með öðrum orð- um, partur af bæjarnafni gert að mannsnafni, þá fer skörin að færast upp í bekkinn. Nöfnin eiga fulla heimtingu á að halda sér óbreytt, nema helzt að setja á þau íslenzka endingu, s. s. Marie=María, Matthilde=Matthildur o. s. frv. Eða vilja þessir menn heimila þeim, er leggja íslenzkt skáldrit út á þýzku, eða sög- urnar okkar, að útleggja nöfnin og setja Bár fyrir Björn, Schlachtheld fyrir Gunnar, Sturm- wind fyrir Kári og þvíumlíkt? Eg hygg það rynni á þá tvær gvímur—sem von væri. Sagan er annars ágæt, og þýð. skal hafa þökk fyrir verk sitt. Annað rit hefur hann og þýtt úr norsku: / helheimi eftir Árna Garborg. Fyrri hluti þess kvæðis kvað hafa komið út fyrir nokkrum árum: Huliðsheimar, og var orð á því gert, hvað það rit væri vel útlagt; en ekki hefur Kvv. borizt sú þýðing í hendtfr. Frumrit þessa kvæðis hef eg ekki séð nema lítið sýnishorn, en eftir því að dæma er þýðingin snildarvel gerð. En ekki ,tait eg hvort almenningur manna skilur þetta snildarverk höf. svo, að það nái þeirri útbreiðslu sem vert er. Höfuðefni er vitrun, sem stúlka fær, sem leidd er í gegnum allar álfur helheims og er að því leyti einskonar ný Inferno Dantes eða Dungalsleiðsla. Margt stórt og alvarlegt athugunarefni kemur fram í kvæði þessu. Eg hef séð tekið fram í blaði að Bjarni hafi byrjað á að þýða Faust eftir Goet’ne, en látið þó á sér heyra, að hann mundi ef til vill hætta við hann eða uppgefast. Rað ætti hann ekki að gera. Pað væri fagurt hlutverk og þarft af honum að gefa okkur tiltölulega eins góðar þýðingar eins og þessa af Faust Goethes, að minsta kosti fyrri hlutanum og ágripi af hinum síðara, líkt og Rydberg gerði, og svo af Wall- enstein eða Don Carlos Schillers. En þessi rit ætti þá bókmentafélagið að gefa út. Það væri þó ofurlítill smekkbætir með íornbréfasafninu og samskonar harðindamat, sem biskupinn seg- ist láta á hilluna og láta þar bíða dánarupp- boðsins—og það með réttu. Talsvert kvað og hafa komið út á næst- liðnu ári af sögum og skemtikverum handa

x

Nýjar kvöldvökur

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: Nýjar kvöldvökur
https://timarit.is/publication/511

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.