Nýjar kvöldvökur - 01.10.1914, Síða 17

Nýjar kvöldvökur - 01.10.1914, Síða 17
TUMI LITLI. 283 vissum þetta þá væri hann búinn að drepa okl.ur.« Tumi varð nú dálítið róiegri, en eftir stundar- korn tók hann aftur til máls: »Er nú óhætt að reiða sig á, að enginn Iifandi maður geti veitt þetta upp úr þér?« »Já, það er víst óhætt að reiða sig á það, því mig langar ekkert til að láta horngrýtið hann Indíana-Jóa afhausa mig eina og þorsk!« «Nei, eg get nú trúað því. En mér finst samt tryggara að við sverjum ennþá einu sinni bagnareiðinn.« »Pað má gjarnan fyrir mér,« sagði Huck. Unnu þeir svo eiðinn. »Hvað segja menn annars um þetta?« sagði Tumi. »Menn eru einlægt að stagast á því að Muff Patter sé morðinginn. Það gengur ekki á öðru. Það slær altaf út um mig köldum svitanum, þegar eg heyri hann nefndan, enda hef eg mig þá altaf í burtu.« »Svona er það líka fyrir mér; eg ímynda tnér, því miður, að dagar hans séu bráðum taldir. Tekur þig ekki sárt til hans stundum ?« »Ojú, því ætli það sé ekki ; auðvitað er nú lítill mannskaði að honum, en hann hefur verið Hestum meinlaus, greyið. Það getur nú verið að hann hafi hnuplað sér fáeinum skildingum svona við og við, til þess að fá sér í staupinu fyrir, og auðvitað stundar hann enga sérstaka atvinnu, — en svona erum við fleiri, t. d. prest- arnir. Þetta er greyskinnsgarmur, mesta góð- roenni, og ekki er hægt annað að segja, en hann sé sæmilega ráðvandur. Hann gaf mér e*nu sinni hálfan fisk, sem hann átti, og var þó soltinn sjálfur, og oft hefur hann hjálpað mér úr margri klípunni, þegar í harðbakka hef- nr slegið fyrir mér.« »Já, hann hefu; líka oft hjáipað mér til að setja nýja öngla á færið mitt og búið mér til flugdreka. Eg vildi að við gætum hjálpað hon- um út úr svartholinu.« »Já, það væri nú ekki nema rétt gjörl, en e8 held það væri til lítils, þeir yrðu víst ekki lengi að klófesta hann aftur!« »Það gjöri eg nú ráð fyrir, en mér fellur það svo þungt, að heyra menn altaf vera að áklaga hann fyrir sakleysi.« Drengirnir ræddu Iengi fram og aftur um þetta og þegar dimt var orðið, gengu þeir út að fangelsinu og voru þar á vakki góða stund í þeirri von, að forsjónin myndi gjöra eitthvert kraftaverk til að frelsa Patter. En það varð nú ekkert af því. Þeir urðu að láta sér nægja að stinga dálitlu af tóbaki og eldfærum inn um grindagluggann til hans, eins og þeir höfðu svo oft gjört áður. En samvizkan beit þá ver en nokkru sinni fyr, er Patter hvíslaði til þeirra út um gluggann: »Þið hafið verið mér óskpöp góðir, dreng- ir mínir, langbeztir af öllum hér í þorpinu, enda skal eg muna ykkur það! Já, börnin mín! Eg hefi drýgt voðalegan glæp, en eg var drukk- inn og viti mínu fjær, og það er hið eina er eg hefi mér til málsbóta. Eg verð að líkindum hengdur, enda er það að maklegleikum. En drekkið ykkur aldrei frá vitinu, börn, ef þið viljið ekki láta fara fyrir ykkur eins og fórfyrir mér. Lofið mér nú að taka í hendurnar á ykk- ur, þið getið stungið litlu loppunum ykkar hérna inu um gluggagrindina, lúkan á mér er ofstór til þess, að hún komist í gegn. Þið haf- ið glatt mig eins og þið hafið getað og mynd- uð hafa gjört það betur, ef ykkur hefði verið það mögulegt, en verið þið nú sælir, og kær- ar þakkir fyrir mig, drengir mínir!« Tumi var hryggur í huga þegar hann gekk heimleiðis og hann dreymdi illa alla nóttina. Næstu tvo daga gengu drengirnir jafnan til dómsalarins, en fóru þó aldrei inn, heldur réðu þeir af orðum þeirra, er út gengu, hvernig málið stæði og það heyrðu þeir, sér til lítillar gleði, að altaf þrengdi meir og meir að Patter. Að kvöldi hins annars dags var sagt, að vitn- isburður Indíana-Jóa væri sjálfum sér samkvæm- ur, og gat nú enginn vafi á því leikið, hvernig dómurinn mundi falla. Þetta kvöld kom Tumi seint heim og skreið því inn um gluggann. Hann var mög æstur í skapi og lá andvaka svo tímum skiíti.

x

Nýjar kvöldvökur

Beinleiðis leinki

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Nýjar kvöldvökur
https://timarit.is/publication/511

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.