Nýjar kvöldvökur - 01.01.1938, Blaðsíða 16

Nýjar kvöldvökur - 01.01.1938, Blaðsíða 16
10 NÝJAR KVÖLDVÖKUR í ILLUGAVERI. Þegar í Illugaver kom tókum við okkur náttstað í leitarmannakofa, sem stendur í mel norðan við verið. Hann er lítill en þurr og allvistlegur með bálk fyrir stafni og járnþaki. Yfirleitt eru fjallakof- ar betur úr garði gerðir sunnan jökla en norðan, bæði um stærð og allan búnað. Ulugaverskofa má telja í röð hinna lakari kofa syðra, og er þó mikill munur, hve hann er vistlegri en Gráni við Geldingsá, sem þó mun vera í betri kofa röð nyrðra. Fyrir nokkru var Guðmundur frá Miðdal að rita um fjallakofa og gaf þeim ófagran vitnisburð og ekki að öllu með óréttu. Enda þótt allvíða séu til sæmilegir kofar skortir þó mjög á, að þeir séu svo búnir, sem æskilegast væri, og margir þeirra eru beinlínis til vansæmdar, þótt þeir vitan- lega séu oft kærkomin skýli hröktum ferðamönnum, væri þeirra þó mikill mun- ur, ef lítið eitt meira væri hugsað þar um þægindi þeirra, er þar eiga að gista. Eins og nú er komið högum vorum, er áreið- anlega hægt að gera fjallakofana vel úr garði án verulegs tilkostnaðar, ef menn einungis hafa hugsun á því. Er það hið mesta þarfaverk, ef að því yrði undið, enda þótt ekki væru reistar skýjaborgir eins og Guðmundur frá Miðdal vill helzt vera láta. En jafnframt þurfa þeir menn, er leggja leiðir sínar um fjöll að læra það frumatriði menningar að ganga vel um kofana, og skilja aldrei við þá skemmda eða óhreinsaða. Eftir þenna útúrdúr skulum við litast um í Illugaveri. Það er dálítill hagablett- ur norðan og vestan undir Sauðafelli. Mestur hluti þess er mýrlendi blautt, en nokkrar víðigrundir og mosar einkum norðan til. Austan að því er Köldukvísl, en Sauðafell að sunnan, annars er verið umkringt lágum melaöldum. Útsýn er lít- il frá kofanum, en þegar kemur út í ver- ið mitt opnast fjallahringur mikill og fríður. Sézt þar lengst vestur til Bláfells og Kerlingarfjalla suður af Hofsjökli. Eru þau hin mikilfenglegustu þrátt fyrir fjarlægðina. Lengra til norðurs er bunga Hofsjökuls og Arnarfell. í norðri rís Tungnafellsjökull, og suður frá honum Hágöngur, fögur fjöll og stílhrein, en í austri eru reginbreiður Vatnajökuls, svo langt sem sér. Upp úr þeim rísa ýmsir tindar og ber mest á Kerlingum. I suðri byrgir Sauðafell sýn. í verinu er góður hagi, en víða torfær sakir bleytu, eink- um í grend við Illugaverskvísl, sem renn- ur gegnum verið mitt, sem víða er illfær sakir bleytu þótt sái'avatnslítil sé. Við dvöldum í Illugaveri til kl. 1, not- aði eg tímann sem annrs staðar til gróð- urathugana, en Gunnbjörn brá sér upp á Sauðafell, og naut þaðan hins glæstasta útsýnis til suðurs og vesturs um Þóris- vatn, til fjallanna við Landmannaleið og allt suður á Heklutinda. Lét hann svo af för sinni, að víst má telja það, að engan muni iðra að leggja þá lykkju á leið sína að bregða sér upp á Sauðafell, komi hann í Illugaver, enda er leiðin stutt og gi'eið. AÐ FISKIVÖTNUM. Frá Illugaveri lögðum við af stað kl. 1 og skyldi nú haldin beinasta leið til Fiski- vatna. Við fórum suður austan í Sauða- felli og yfir Köldukvísl sunnan undir því. Hún vai’ tæplega í kvið. Botn hennar er allstórgrýttur en öruggur að öðru leyti. Við Köldukvísl eru síðustu hagateyging- arnir unz komið er að Fiskivönum, ann- ars liggur leiðin um reginauðnir, hraun og sanda. Öræfin milli Köldukvíslar og Tungnaár eru fyrir margra hluta sakir einhver furðulegasti og hrikalegasti hluti öræfa íslands. Óvíða munu jafnstór svæði vera fullkomin eyðimörk og þar, skiftast þar á
Blaðsíða 1
Blaðsíða 2
Blaðsíða 3
Blaðsíða 4
Blaðsíða 5
Blaðsíða 6
Blaðsíða 7
Blaðsíða 8
Blaðsíða 9
Blaðsíða 10
Blaðsíða 11
Blaðsíða 12
Blaðsíða 13
Blaðsíða 14
Blaðsíða 15
Blaðsíða 16
Blaðsíða 17
Blaðsíða 18
Blaðsíða 19
Blaðsíða 20
Blaðsíða 21
Blaðsíða 22
Blaðsíða 23
Blaðsíða 24
Blaðsíða 25
Blaðsíða 26
Blaðsíða 27
Blaðsíða 28
Blaðsíða 29
Blaðsíða 30
Blaðsíða 31
Blaðsíða 32
Blaðsíða 33
Blaðsíða 34
Blaðsíða 35
Blaðsíða 36
Blaðsíða 37
Blaðsíða 38
Blaðsíða 39
Blaðsíða 40
Blaðsíða 41
Blaðsíða 42
Blaðsíða 43
Blaðsíða 44
Blaðsíða 45
Blaðsíða 46
Blaðsíða 47
Blaðsíða 48
Blaðsíða 49
Blaðsíða 50
Blaðsíða 51
Blaðsíða 52
Blaðsíða 53
Blaðsíða 54
Blaðsíða 55
Blaðsíða 56

x

Nýjar kvöldvökur

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: Nýjar kvöldvökur
https://timarit.is/publication/511

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.