Nýjar kvöldvökur - 01.01.1938, Blaðsíða 25

Nýjar kvöldvökur - 01.01.1938, Blaðsíða 25
BRÚÐKAUP JOHN CHARRINGTONS 19 mínútna. Eg reiknaði það út í flýti, að nú væri aðeins tími, til þess að komast til kirkjunnar, áður en vígslan átti að hefj- ast. Ó, þvílíkur klaufi var hann að missa af fyrstu lestinni. Hver annar en hann hefði getað gert þetta? . Þessar tuttugu og fimm mínútur fund- ust mér eins og heilt ár, þar sem eg gekk fram og aftur á brautarpallinum og las auglýsingarnar, ferðaáætlanirnar og járn- brautarreglurnar. Eg varð alltaf meira og meira reiður við John. Eg var alveg að tapa traustinu á honum. Eg hata það að bíða. Það gera líka allir, en eg held, að eg geri það öðrum fremur. Þessar tuttugu og þrjár mínútur voru því lengi að líða. Eg tuggði pípumunnstykkið milli tann- anna og stappaði niður fótunum af óþol- inmæði, meðan eg athugaði brautarmerk- in. Klikk, þarna féll burtfararmerkið nið- ur. Fimm mínútum síðar stökk eg upp í vagninn, sem eg hafði ætlað að sækja John í. „Akið til kirkjunnar'1, sagði eg, „John kom ekki með lestinni“. Nú var eg orðinn kvíðafullur, í staðinn fyrir að vera reiður. Hvað gat gengið að manninum? Ætli hann hafi orðið skyndi- lega veikur? Eg vissi ekki til þess, að honum hefði nokkurntíma orðið misdæg- urt. Og ef svo væri, þá hefði hann símað. Eitthvað hræðilegt hlaut að hafa komið fyrir. Hugsunin um það, að hann hefði hlaupist frá henni, datt mér ails ekki í hug. Já, eitthvað hræðilegt hlaut að hafa komið fyrir, og nú var það hlutverk mitt að segja brúðurinni frá því. Eg óskaði þess næstum því, að vagninn ylti og eg færi úr hálsliðnum, svo að einhver annar yrði að segja henni það, en ekki eg, sem — en það. var ekkert hægt við þessu að gera. Klukkuna vantaði fimm mínútur í fjög- ur, þegar við komum að kirkjugarðshlið- inu. Tvöföld röð af áköfum áhorfendum stóð beggja megin við stíginn frá sálar- hiðinu til kirkjudyranna. Eg stökk út úr vagninum og gekk upp á milli raðanna. Garðvörðurinn okkar stóð rétt við dyrnar. Eg stanzaði. „Bíða þeir ennþá, Byles?“, sagði eg við hann, enda þótt eg þættist viss um, að svo væri. „Bíða, nei, nei, því þá það, því hlýtur að fara að verða lokið?“ „Lokið, kom John þá?“ „Alveg á mínútunni, og hann hlýtur að hafa farið á mis við yður, en eg get sagt yður nokkuð“, sagði hann og lækkaði róminn. „Eg hefi aldrei séð hann svona áður, en eg held, að hann hafi fengið sér ríflega í staupinu. Fötin hans eru öll ryk- ug, og hann er hvítur sem nár. Eg get sagt yður, að hann er alls ekki líkur sjálf- um sér, og fólkið þarna inni segir sitt af hverju. Þér munið sjá, að eitthvað er bogið við John, og að hann hefir drukkið meir en lítið. Hann leit út, eins og afturganga, gekk beint af augum og leit hvorki til hægri eða vinstri né yrti á okkur; hann, sem alltaf hefir verið þvílíkt prúðmenni“. Eg hafði aldrei heyrt Byles halda svona langa ræðu fyrr. Fólkið í kirkjugarðinum stakk saman nefjum. Hringjararnir stóðu tilbúnir til að hringja út ungu brúðhjónin með glaðværum klukknahljómi. Kliður frá kirkjudyrunum, gaf það til kynna, að þau væru að koma. Þarna koma þau. Byles hafði á réttu að standa. John var ekki líkur sjálfum sér. Það var ryk á jakkanum hans og hárið var allt í óreiðu. Hann virtist hafa lent í áflogum, því að það var dökk rák yfir augabrúnunum. Hann var fölur sem dauðinn. En fölvi hans var ekki meiri en brúðurinnar, hún var sem höggvin í marmara — fötin, blæjan, andlitið og allt —. 3*
Blaðsíða 1
Blaðsíða 2
Blaðsíða 3
Blaðsíða 4
Blaðsíða 5
Blaðsíða 6
Blaðsíða 7
Blaðsíða 8
Blaðsíða 9
Blaðsíða 10
Blaðsíða 11
Blaðsíða 12
Blaðsíða 13
Blaðsíða 14
Blaðsíða 15
Blaðsíða 16
Blaðsíða 17
Blaðsíða 18
Blaðsíða 19
Blaðsíða 20
Blaðsíða 21
Blaðsíða 22
Blaðsíða 23
Blaðsíða 24
Blaðsíða 25
Blaðsíða 26
Blaðsíða 27
Blaðsíða 28
Blaðsíða 29
Blaðsíða 30
Blaðsíða 31
Blaðsíða 32
Blaðsíða 33
Blaðsíða 34
Blaðsíða 35
Blaðsíða 36
Blaðsíða 37
Blaðsíða 38
Blaðsíða 39
Blaðsíða 40
Blaðsíða 41
Blaðsíða 42
Blaðsíða 43
Blaðsíða 44
Blaðsíða 45
Blaðsíða 46
Blaðsíða 47
Blaðsíða 48
Blaðsíða 49
Blaðsíða 50
Blaðsíða 51
Blaðsíða 52
Blaðsíða 53
Blaðsíða 54
Blaðsíða 55
Blaðsíða 56

x

Nýjar kvöldvökur

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: Nýjar kvöldvökur
https://timarit.is/publication/511

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.