Nýjar kvöldvökur - 01.10.1942, Blaðsíða 3

Nýjar kvöldvökur - 01.10.1942, Blaðsíða 3
NÝJAR KVÖLDVÖKUR • OKT.—DES. 1942 • XXXV. ÁR, 10.—12. HEFTI. Friðrik Asmundsson Brekkan: Hart vor. Bernskuminningar. I. Þegar ég var rúmlega tíu ára gamall kom óvenjulega hart vor. — Annars má nú geta þess, að vetrarhörkur og vorharðindi voru fremur tíð á þeim árurn. — Um liaustið hóf- ust kuldar og snjókomur ótanalega snemma. Var sumstaðar kominn feikna snjór og jafnvel jarðbönn þegar um vet- urnætur. Hélst þetta óslitið að mestu all- an veturinn, svo að varla kom hláka, að rninnsta kosti ekki svo að þess gætti að því, er haga eða beit snerti. í Miðfirði og nærliggjandi sveitum er venjulega hagasamt, svo að það niá nærri geta, að mönnum hefir brugðið við, er beitin brást, og gefa varð inni sauðfé og jafnvel hrossum mest allan veturinn. Hross voru þá annars víðast hvar látin sjá um sig sjálf að vetrinum að mestu leyti og var víða margt af þeim. Hey gáfust snennna upp, og þegar kom fram á útmánuði, þóttust nrargir sjá fram á alger vandræði sökum heyleysis, ef bati bæmi ekki mjög bráðlega. Frameftir vetri höfðu oft verið stórhríðar og fannfergja, en síðast á góu og á ein- uaánuði komu nokkuð meiri stillur. Sól- skin var þá stundum á daginn, og móaði þá ofurlítið í sunnan í móti, þar sem skjól voru. En annars voru alltaf hörkufrost og oft norðannæðingur með skafhríðarkófi, þar sem snjór var ekki orðinn of harður til að skafa. A sumardaginn fvrsta var norðan- liríð, og á sunnudaginn fyrstan í sumri var logndrífa allmikil og kyngdi niður snjó. Þá var þó fremur lilýtt í lofti framan af degi, og var fullorðna fólkið að tala um, að nú mundi hláka vera í aðsigi og batinn að komá. — En um nóttina herti aftur frostið með hríð. Þegar birti upp, brá aftur í still- ur og frost. Hélzt það enn um nríð, eða, að mig minnir, þangað til í annarri \ iku sum- ars. IL Þegar á einmánuði tóku hev mjög að ganga til þurrðar, sem von var eftir svona langan innistöðuvetur. Jafnvel bændur, sem \anir voru að vera það, sem kallað var, „grónir í iieyjum", tóku að gerast lieytæpir, enda hjálpuðu menn hver öðrum eftir því, sem föng voru til, og létu þá ýmsir af hendi meira, en þeir rnáttu missa, þegar batinn, sem allir treystu á, kom ekki. Vandræðin rnundu hafa orðið almenn og sennilega meiri og rninni fellir á ýmsum bæjum,' ef Jón Skúlason, söðlasmiður, sem þá bjó á Söndum í Miðfirði, hefði ekki hlaupið undir baggann og bjargað sveit- 19

x

Nýjar kvöldvökur

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: Nýjar kvöldvökur
https://timarit.is/publication/511

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.