Nýjar kvöldvökur - 01.10.1942, Page 6

Nýjar kvöldvökur - 01.10.1942, Page 6
148 H ART VOR N. Kv. um ha'dið átram með árum saman, nasst- um því eins lengi og ég mundi eftir mér, en höfðum þó lagt niður þá nokkra hríð, sennilega vegna þess, að Bjarni hefir þótzt vera kominn á þann aldur, að slíkt ætti ekki við lengur. — Leikur þessi hafði ekkert upphaf og var endalaus, og var í því fólg- inn, að við létumst vera persónur, sem við höfðum búið okkur til, og rötuðum í alls- konar ævintýri, bæði heima og ekki síður erlendis. Þessi ævintýri skiptumst við á að segja hvor öðrum, þannig að þegar ímynd- unarafl annars kom í þrot, þá tók hinn við — og þannig alltaf koll af kolli alveg enda- laust. Leikurinn var sérstaklega góður að því leyti, að hann tafði okkur ekki til muna frá skyldustörfunum, þó að hann hins vegar hafi naumast gert okkur athugasamari við þau. — Við röltum í hægðum okkar kring- um féð og vorum búnir að ná þ\ í saman um hádegisbilið. En er við töldum það, vantaði nokkrar kindur. Við fórum að svip- ast eftir þeim og sáum þá, að nokkrir geml- ingar voru komnir út fyrir ytri lækinn og all langt burtu. Höfðu þeir farið yfir á snjó- brú. Við héldurn þegar af stað að sækja þá. áhyggjulausir með öllu. — Lækurinn var alveg óhemju mikill og með öllu ófær. Far- vegurinn, sejn þarna er nokkuð djúpur, var bakkafullur og meira tih En þegar við gengum niður með honum fundum við snjóbrú, sem virtist vera traust, og þar fór- um við yfir. Nú segir ekki af okkur fyrr en við vorum komnir fyrir gemlingana og stugguðum þeim heim á leið. En í þeim var galsi í góða veðrinu, og tóku þeir sprett suð- ur að læknum. — Við héldum í humáttina á eftir — og vorum þá — eða réttara sagt — ævintýrahetjumar okkar voru einhvers staðar lengst suður í Afríku í landkönnuð- arleiðangri. Samt höfðum við augun á , kindunum og sáum að þær hlupu að lækn- um og stönsuðu þar. Við fórum okkur hægt og héldum. að þegar við kæmum, mundu þær renna niður með læknum á snjóbrúna, sem þar var. V. Þetta fór allt öðm' vísi: Lækurinn renn- ur þarna í stokk ekki ýkja breiðum, og þeg- ar við nálguðumst, tóku nokkrir gemlingar undir sig stökk til þess að hendast yfirum. Sá fyrsti dró alla leið, en þrír lentu í lækn- um, og reif straumurinn þá undir eins með sér og sveiflaði þeim í hringi við bakkann. Var það átakanleg sjón að horfa á dauða- angist aumingja skepnanna, sem þarna börðust um gersamlega hjálparlausar. Bjarni var, eins og áður er getið, um það bil fimmtán ára, þegar þetta var. Hann var ekki stór vexti, en saman rekinn og sterkur eftir aldri, skjótráður, kappsfullur mjög og ofurhugi, þegar því var að skipta. — Hann hrópaði upp, að nú yrðum við að duga, eins og við værum drengir til — og án þess að hika eða hugsa sig um hljóp hann til og ætlaði að komast yfir, því að við hinn bakk- ann börðust gemlingarnir stöðugt um í hringiðunni. Hann komst líka yfir. En um leið þreif hann með báðum höndum í svartan gelding, sem næstur var bakkanum, og ætlaði að kippa honum upp. En bæði var, að geldingurinn hefur verið þyngri, en hann á;tlaði, og að hann hafði ekki almenni- legða náð fótfestu á bakkanum, — reiddi hann til falls út í lækinn. Hann kom þó eitt augnablik fótum fyrir sig í sjálfum bakkan- um, en straumþunginn var of mikill, og í miðjum stokknum var geysistraumur og al- veg óstætt. Féll hann nú aftur á bak og lenti geldingurinn svarti að nokkru leyti undir honum. Ég sá strauminn sveifla þeim í nokkra hringi með geysihraða — en svo langt frá mér, að ég gat hvergi náð til, enda hefðu kraftar mínir ekki mátt sín mikils — og í næsta vetfangi voru þeir komnir út í miðj- an stokkinn, þar sem flaumurinn var mest- ur. Og svo þevttust þeir af stað niður eftir.

x

Nýjar kvöldvökur

Direct Links

If you want to link to this newspaper/magazine, please use these links:

Link to this newspaper/magazine: Nýjar kvöldvökur
https://timarit.is/publication/511

Link to this issue:

Link to this page:

Link to this article:

Please do not link directly to images or PDFs on Timarit.is as such URLs may change without warning. Please use the URLs provided above for linking to the website.