Nýjar kvöldvökur - 01.10.1942, Blaðsíða 11

Nýjar kvöldvökur - 01.10.1942, Blaðsíða 11
N. Kv. LANDKÖNNUÐURINN BERING 153 vita heiti strandaiinnar og skrásetjið það, gangið í land og aflið náinnar t’itn- eskju um það, teiknið landabréf og fær- ið það hingað. • Með bréfi þessu var Bering gerður for- ingi fyrir fyrsta Kamtschatkaleiðangrinum og honum fengið ákveðið viðfangsefni til úrlausnar, en hvernig hann framkvæmdi það var algerlega komið undir frumkvæði og dugnaði hans. Hinn 5. febr. lagði hann sjálfur af stað, en nokkur hluti leiðangurs- ins var farinn á undan. Erfiðleikarnir, sem leiðangurinn þurfti að yfirstíga voru geysilegir. Vegalengdin frá Pétursborg til strandar Kamtschatka er yfir 7200 km. loftlína, og mikið af þeirri leið lá um óbyggðir eða lítt byggð lands- svæði, og vegir voru vitanlega engir. Alla þessa óraleið þurfti að flytja vistir til margra ára handa leiðangursmönnum, og efni til skipasmíða, því að austur \ ið Kyna- haf var einskis að vænta af þeim hlutum nema timbur var þar nóg. í leiðangrinum tóku þátt hásetar, smiðir, seglasaumarar og fjöldi annarra handiðnamanna, auk rnargra hundraða verkamanna, sem unnu að flutn- ingununr. Einu hjálparstöðvar leiðangurs- ins á óraleið þessari, sem lá unr köldustu héruð jarðarinnar, voru fáein smáþorp og nokkur hundruð timburvirkja. Hvergi voru ruddir vegir. Allir flutningar fóru fram á hestum, eða hundasleðum, eða eftir straum- hörðurn ám á flatbyttnum og flekum, sem smíða varð við hverja á, sem komið var að. Oft og einatt lá leiðin gegnum mýrafen eða yfir snæviþakta fjallgarða. 29. september náði leiðangurinn til Uimsk nálægt miðri Síberíu, og hafði hann þar vetrarsetu. Unr vorið var haldið til Jakutsk, sem var höfuð- staður Austur-Síberíu, þar voru þá aðeins 300 hús, Þegar þangað var kornið, var eftir örðugásti hluti leiðarinnar til Okotsk. Leiðin lá þar um ss æði, sem að mestu leyti voru ókönnuð um fjalllendi og skóga. í Jakutsk dró Bering að sér mesta fjölda af hestum og lét gera 2000 leðurbelgi til mél- flutninga., Bering skipti nú liði sínu í nokkra flokka. Fyrir einn þeirra setti hann Spangberg samlanda sinn, sem var næst æðsti maður leiðangursins. Viðfangsefni hans skyldi vera að flytja matvæli og annan flutning á 13 timburflekum áleiðis eftir hliðarfljótum Lenafljótsins. Til þessara flutninga hafði hann 204 menn. Eftir ánum átti hann að komast til staðar, er heitir Judomskvje Krest, en þaðan lá leiðin yfir lágan fjallgarð en síðan mátti komast eftir Urakánni. til Okotsk. Til landflutninganna , hafði Bering fengið 800 hesta, og voru menn sendir með þá í nokkrum flokkum. í flokki þeirn, er Bering sjálfur stýrði voru 200 hestar. Eftir 45 daga ferð náði leiðang- urinn loks til Okotsk, nreð 26 smálestir af méli. En ekki hafði sú ferð gengið þrauta- laust. Þótt ferðin stæði yfir seinni hluta ágúst- og septembernránuð, þá var orðið geysi kalt og nriklir snjóar konrnir. Kuldi og sultur þjáði leiðangursmennina, og bæði nrenn og lrestar féllu unnvörpum af kulda, lrungri og ofþreytu. En ekki var þrautunum lokið þótt til Okotsk kæmi. Þar var ekki önnur byggð en 11 kofar, og bjuggu þar 10 fjölskyldur. Þar var því ekki um annað að . gera en taka til htisagerðar, og 2. desenrber gat Bering og menn hans flutt inn í hin ný- reistu hús, en þrátt fyrir alla þessa erfiðleika var þegar Irafin snríð á skipi og var Bering óþreytandi að finna ráð til að hraða skipa- smíðinni senr nrest. En 21. desenrber bárust alvarlegar fréttir til Berings frá Spangberg. Ferðin e.ftir ánum hafði gengið seinna en til var ætlast, og þegar vetur gekk í garð, átti hann ófarna unr 200 km. til Judomskvje Krest. Þar senr flekarnir stöðvuðust voru óbyggðir nrýraflóar og engrar lrjálpar von. Til þess að gæta farangursins skildi Spang- berg eftir 6 hernrenn og einn stýrinrann- anna, en sjálfur hélt hann með nreginliðið áleiðis til Judonrskvje Krest, en vistij fluttu þeir á sleðum, sem þeir drógu sjálfir. En 20

x

Nýjar kvöldvökur

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: Nýjar kvöldvökur
https://timarit.is/publication/511

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.