Nýjar kvöldvökur - 01.10.1942, Page 13

Nýjar kvöldvökur - 01.10.1942, Page 13
N. Kv. LANDKÖNNUÐURINN BERING 155 götuslóða en menn hvergi. D'áginn eftii komu 8 menn róandi úr landi í skinnbát. Þeir þorðu þó ekki að róa alveg að skipinu, en einn þeirra svamláði fram að því með tveimur selbelgjum. Menn þessir voru af þjóðflokki þeim er Tsjúktar kallast. Með aðstoð tveggja túlka af Korjaka-kyni tókst Bering að tala við mann þann, sem fram í skipið kom. Hann sagði, að land Tsjúkt- anna lægi að tveimur flóum og að ströndin beygði síðan til vesturs að Kolymaánni. Einnig sagði liann, að ís væri að staðaldri í hafi því, sem áin félli í. Ennfremur sagði hann, að innan skamms mundu þeir koma til eýjar einnar. Bering gaf honum ein- hverja smámuni og éggjaði hann á að láta félaga sína koma á skipsfjöl. En þeir sneru í land hið bráðasta og hurf'n sjónum. Þrern- ur dögum síðar, 11. ágúst, komu þeir til eyjarinnar, sem þeir nefndu Skt. Laurentíus eyju og 13. ágúst sigldi „Gahríel" fram hjá austurodda Asíu, -og sáu skipsmenn nú, að ströndin heygði til vestnrs eins og Tsjúkt- inn hafði sagt. Þann dag hélt Bering ráð- stefnu ásamt foringjum sínum; og lagði fyr- ir þá eftirfarandi spurningar: „Þar eð vér nú höfum náð 65° 30’ n. hr. og jafnframt. að því er ég hygg samkvæmt frásögn Tsjúkt- ;fnna, höfum siglt fram hjá austasta odda landsins, þá verðum vér nú að afráða, hvort vér skuhun sigfa lengra norðnr? Ef vér ger- um það, þá hve langt? Hvenær eigurn vér að leita hafnar? Ef vér tökum tilfit til, hversú vér þjónum bezt landi voru, hvar eigum vér þá að leita vetrarhafnar?" Spangberg taldi ómögulegt að hafa vet- ursetu í landi Tsjúktanna, þar eð þeir hvorki hefðu séð þar hafnir né skóga, og allar líkur bentu til, að vetrarríki væri þar mikið, og þar að auki væru landshúar Rússum fjandsamlegir. Hann lagði ]d\ í til. að þeir héfdu áfram til norðurs til 16. ágúst, en sneru þá við og freistuðu að ná aftur til Kamtschatkaárinnar fyrir veturinn. Ghirikov réð hins vegar til að sigla áfram vestur með landi til ósa Kolymaárinnar eða þangað til ekki yrði lengra komizt vegna ísa. Með því einu móti gætu þeir sannað ótví- ræðlega að Asía og Ameríka væru aðskildar. Einnig réði hann til þess, að þeir hefðu vetursetu þar á ströndinni. Bering fór að ráðum Spangbergs. Þegar „Gabríel" hafði náð 67° 18’ n. br. seinni hluta dags 16. ágúst gaf hann skipan um að snúa við. Hann var sannfærður um, að haf var á milli Asíu og Ameríku og að. hann þannig hefði uppfyllt skipan keisarans, sem var að fá fulla vissu í því efni. Honum virt- ist óverjandi, að halda ferðinni áfram, þar eð þeim væri algerlega ókunnugt um, hve- nær vetur gengi í garð á þessum slóðum. ög' mótvindur kynni að harnla ferðum þeirra, en skylda hans væri umfram allt annað að koma skipi og mönnum í örugga höfn. Sýndi Bering þar sem oftar gætni og ábyrgð- artilfinningu. Siglingin suður á hóginn gekk greiðlega og sigldi „Gabríel” lnaðhyri. Daginn eftir fóru þeir þar fram hjá, sem sundið milli álfanna er rnjóst, en dimmviðri var og þoka eins og á norðurleiðinni, og þeir fylgdu Asíuströndinni og sáu því ekki strönd Ame- ríku og vissu heldur eigi að hún væri svo nálæg. Það varð hlutskipti enska landkönn- uðarins James Cook að sjá háðar strendur fyrstui; rnanna, er hann hálfri öld síðar sigldi næstur á eftir Bering norður gegn- um sundið. En það er drengskap Cooks að- allega að þakka, að surtd þetta fékk heitið Berings sund. Þrátt fyrir nokkur smáóhöpp náði „Gabrí- el” höfn í ósum Kamtschatkaárinnar 2. sept. og var þeirri ferð þar með lokið. Bering hafði að þessu sinni siglt 13 bi'eiddarstig og 30 lengdarstig meðfram alókunnri strönd og gert af henni kort, sem í öllum liöfuð- dráttum hefir reynzt vera rétt. Sigling þessi mátti þrekvirki kallast, ekki sízt þegar á það er litið, hversu illa búið skipið var með hálffúinn reiða- og seglabúnað. ög annan búnað af \anefnnm gervan. En merkast- 20* )

x

Nýjar kvöldvökur

Direct Links

If you want to link to this newspaper/magazine, please use these links:

Link to this newspaper/magazine: Nýjar kvöldvökur
https://timarit.is/publication/511

Link to this issue:

Link to this page:

Link to this article:

Please do not link directly to images or PDFs on Timarit.is as such URLs may change without warning. Please use the URLs provided above for linking to the website.