Nýjar kvöldvökur - 01.10.1942, Síða 14

Nýjar kvöldvökur - 01.10.1942, Síða 14
LANDKONNUÐURINN BERING N. Kv. 15ti ur er þó leiðangur þessi af því, að með hon- um var sannað, að haf skildi Asíu og Ame- ríku, og að leiðin norðan \nð Asíu var opin, ef ekki tálmuðu ísalög, en um þær mundir var mikill hugur í mönnum að freista að sigla þá leið, og ná þannig til hinna auðugu landa suðaustur Asíu. Eftir rúmlega ársdvöl á Kamtschatka, þar sem hann gerði ýmsar landfræðilegar rannsóknir, liélt Bering heim til Péturs- borgar .Þegar þangað kom gaf liann stutt- orða skýrslu um ferð sína og afhenti liana stjórninni ásamt landsuppdráttum sínum. En þótt hann héldi þar hiklaust fram, að hann hefði leyst það verkefni, sem honunr var falið, þ. e. að leiða í ljós hversu háttað væri um tengsl Asíu og Ameríku, sem hann var sannfærður um að engin væru, þá var honum fálega tekið, og uppdrættir lians viðurkennfjir af fáum. LEIÐANGURINN MIKLI. Enda )rótt Bering hlyti ntinni viðurkenn- ingu og meiri' gagnrýni eftir heimkomu sína en liann hafði vænzt, lét hann það ^kki á sig fá, heldur fitjaði hann upp á ráða- gerðum um nýjan rannsóknarleiðangur tii norðaustur Asíu. Áætlun hans var þríþætt. í fyrsta lagi skyldi mæla og kanna alla norð- urströnd Síberíu, og skyldu leiðangursflokk- arnir hafa bækistöðvar við ósa stóránna og sigla þaðan meðfram ströndinni. Frá Kamtschatka skyldi gera út tvo meginleið- angra, annar skyldi sigla yfir til norðvestur- strandar Ameríku, mæla hana og gera af henni landabréf, einnig skyldi hann koma af stað verzlunarsanrböndum við lönd þessi. Hinn leiðangurinn átti að kanna austur- strendur Asíu allt til Japan. Enda þótt hér væri um að ræða stórfelld- ara fyrirtæki en áður hafði þekkzt í þessum efnum, og ýmsar tálmanir væru í vegi þess, fór svo að lókum, að stjórnin gaf út bréf 2. maí 1732, þar sem heitið var fé til rann- sókna þessara og verksvið leiðangursins markað. Æðsti maður rannsóknanna var Bering, og voru nú metorð hans enn aukin. Hins vegar hafði svo mjög hlaðizt ut.in á hina upprunalegu áætlun hans, að svo er talið, að hér liafi orðið um að ra.-ða mesta landkönnunarfyrirtæki, sem sögur fara af. Fyrirætlunin var að kanna og rnæla alla strandlengjuna frá Archangelsk í Rússlandi og til Japans, og þar að auki vesturströnd Norður-Ameríku frá Mexikó og norður úr. Þegar Bering lagði fram hinar fyrstu til- lögur sínar, hafði hann alls ekki gert ráð fyrir að takast á hendur framkvæmd þeirr- ar áætlunar og enn síður, þegar verksviðið var aukið svo stórkostlega, þar við bættist einnig, að stjórnin fól honum framkvæmd ýmissa umbóta í Austur-Asíu. En hitt láð- ist henni, að veita honum völd, sem væru í samræmi við ábyrgð þá, er á honum hvíldi, því að í öllum meiri háttar málum var hon- um boðið að leita ráða og umsagnar em- bættismanna, vísindamanna leiðangursins og undirforingja. Var því sýnilegt að allar framkvæmdir yrðu þunglamalegar. En þrátt fyrir þetta tókst Bering forstöðu þessa mikla rannsóknabákns á hendur. Bering lagði af stað með leiðangur sinn frá Pétursborg í ársbyrjun 1733. Helztu for- ingjar hans voru Spangberg og Chirikov en auk þeirra var fjöldi annarra foringja, læknar, prestar, handiðnámenn og óbreytt- ir liðsmenn eða alls 570 rnanns auk 40 vís- indamanna. Farangur þessara manna allra var geysimikill og ekki bætti það úr, að flestir yfirmenn í leiðangrinum tóku fjöl- skyldur sínar með. Fæði og aðrar nauðsynj- ar handa öllu þessu fólki, skyldu bæir og héruð Síberíu láta í té, hvar sem leiðangur- inn fór um, og var ráðamönnum þeirra boðið af stjórninni í Pétursborg að sjá um allan undirbúning, og vinna að því, að leið- angurinn gæti haldið fram ferð sinni sem hraðast. En skipanir þessar drukknuðu í skriffinnskuflóði skrifstofanna, og venju- legast var allur undirbúningur í óreiðu.

x

Nýjar kvöldvökur

Beinleiðis leinki

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Nýjar kvöldvökur
https://timarit.is/publication/511

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.