Nýjar kvöldvökur - 01.10.1942, Qupperneq 16

Nýjar kvöldvökur - 01.10.1942, Qupperneq 16
158 LANDKÖNNUÐURINN BERING N. Kv. armanna. Eftir að hafa náð 46° n. br. sneri hann til norðausturs. En nokkru síðar misstu skipin hvort af öðru. Chirikov lenti í hinum mestu hrakningum, komst þó yfir til Ameríku og náði loks aftur til Kamtsehatka í október, og hafði hann þá misst margt manna bæði af slysum og skyrbjúg, en mjög höfðu þeir þjáðst af vatnsskorti mestan hluta leiðarinnar, og er hann úr sögunni. Bering hélt.nú áfram feíð sinni, og hinn 25. júní hafði hann gengið úr skugga um, að ekkert Gamaland var til. En leitin að því hafði tekið langan tíma, og sú tíma- eyðsla reyndist síðar og hafa örlagaríkar af- leiðingar. Hér verður að nefna mann þann til sög- unnar er Georg Steller hét. Hann var kekn ir og var ráðinn í leiðangur þenna sem skipslæknir og náttúrufræðingur, en hann var ágætur grasa- og dýrafræðingur og hefir gert ómetanlegar uppgötvanir í þeim fræð- um. Dagbók Stellers er helzta heimildin um Kyrrahafssiglingu Berings. Eftir hálfsmánaðar siglingu sáu þeir loks land hinn 16. júlí. Ströndin, sem þeir nálg- uðust var hálend með hrikalegum fjöllum, en í baksýn gnæfði þar eldfjall mikið snævi þakið. Kölluðu þeir það St. 'Elías, en á degi hans litu þeir fyrst land. Fjall þetta liggur syðst í Alaska. Ekki réðust þeir til land- göngu þar, en sneru við vestur með strönd Alaska, sem þeir eygðu öðru hvoru. Fjórum dögum síðar gengu þeir á land á lítilli eyju, sem Kajakey heitir, til þess að taka vatn. Enda þótt dvölin þar væri aðeins nokkrar klukkustundir, gerði Steller þar ýmsar at- huganir og fann þar meðal annars merki um að eyjan væri byggð. Vildi Steller dvelja þar annan dag, en Bering þvertók fyrir það, enda sá hann fram á að vistir tækju að þverra, svo að hver dagur væri dýrmætur til heimferðarinnar. Hann hafði heimild til að gera út nýjan leiðangur næsta ár, og vildi því ekki að þessu sinni hafa nokkuð í hættu. Annars var þrek hans nú tekið mjög að bila. Hann var 60 ára að aldri og beygður af alls konar erfiðleikum og andstreymi. Þar við bættist og, að hann var nú tekinn að sýkjast af skyrbjúg eins og fleiri af skips- höfninni. Tók hann því rninni beinan þátt í stjórn skipsins en endranær, en lét undir- foringja sína ráða, en þeim ber Steller hina verstu sögu fyrir hroka og skort á hyggind- um og stjórnsemi. En svo er að sjá, að þegar í öndverðu hafi þeir orðið ósáttir við Stell- er, svo að hæpið er að treysta dómi hans til fullnustu, en samkvtemt honum hafa þeir eða einkum annar þeirra, Waxell að nafni, verið algerlega óhæfir til að fara með stjórn leiðangursins. Næstu þrjár vikurnar var sigh meðfram ströndum Alaska og um eyjaklasana þar úti fyrir. Veður var stormasamt og þokur tíðar, en engu að síður fengu leiðangursmenn gert furðu gott kort af strandlengju þeirri. er þeir sigldu fram hjá. En nú tók skyr- bjúgurinn að gera vart við sig fyrir alvöru. Þegar þeir öndverðlega í september voru yzt í skerjagarðinum við suðvesturodda Alaska, dó fyrsti hásetinn, Shumagin að nafni. Helmingur áhafnarinnar var þá orð- inn óvérkfær, en hinir drógust á fótum rneir af vilja en mætti. Steller gekk þar í land á eyju nokkurri um leið og vatn var sótt, til þess að safna skarfakáli og öðrum þeim jurtum, sem að gagni máttu koma gegn skyrbjúgnum. Fór hann þess á leit við Wax- ell undirforingja, að hann fengi svo marga menn til aðstoðar, að hann gæti safnað drjúgum forða af jurtum þessum, en Wax- ell harðneitaði. Ekki var heldur skeytt orð- um Stellers, er hann benti á, að vatn það, er tekið var, væri óhæft til neyzlu, en betra drykkjarvatn var fáanlegt í grennd. Þessi þverúð Waxells kostaði mörg mannslíf, en þó batnaðh heilsufarið fyrst eftir að Steller kom með jurtir sínar, og meðal annars hresstist Biering sjálfur verulega. Frá Shumaginseyjum var siglt 6. septem- ber, og lá leiðin þvínæst fram og aftiir milli

x

Nýjar kvöldvökur

Direct Links

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Nýjar kvöldvökur
https://timarit.is/publication/511

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.