Nýjar kvöldvökur - 01.10.1942, Page 19
N. Kv.
LANDKÖNNUÐURINN BERING
161
AUar rannsóknir og uppgötvanii', sem síðar
hafa gerðar verið í heimskautalöndunum
standa í þakkarskuld við hugsjónir og
reynslu Vitus Berings."
Svo farast þessunr höfundi orð, og um-
mæli hans eru ekkert einsdæmi. Vitus Ber-
mg er og verður ætíð talinn í röð hinna
fremstu afreksmanna, senr helgað hafa líf
sitt og starf þeirri hugsjón að kanna hnött
þann, er vér lifum á.
Akureyri 15. nóvember 1942.
Steindór Steindórsson frá Hlöðum.
Auður.
Auður kvaddi ei til fylgdar
aðra en lítinn snralasvein.
Hefndir sínar hugðist reka
hjálparlaust, að starfi ein.
Steig á gæðing, brókum búin,
beindi för á heiðarslóð,
lrleypti blakki beint til Lauga.
Björt var nótt og sveitin hljóð.
Snúðugt gekk hún heim á hlaðið,
Irurð í klofa sigin var,
opnar dyrnar, aðgang buðu,
inn lrún steig í skálann þar;
allt var hljótt, en andardráttur
eldaskála lreyrðist frá.
Gætti hún að; þar inni sofa
Ósvíf, líka Þórð hún sá.
,,‘Vakna Þórður!“ Auðu ræpti,
yfir honum saxi brá.
„Vil ég ei, þó svikull sértu,
sofanda þér vinna á.“
Þórður sér á beði bylti
brjóst hans þegar saxið snart.
Auður jafnskjótt utar sneri
og á burtu reið hún hart.
Ósvífur til orða tekur:
„Einhver gekk um skálann hér,“
„það var Auður“ anzar Þórður,
„áverka hún veitti mér.“
,,Óhapp mikið," aldinn mælti,
„eftirför skal hafin skjótt;
safna liði, flagðið fanga,
fyrr en líður þessi nótt.“
„Eftirför skal ekki hafin,“
anzar Þórður, „ræð ég því.
Auðui' skuld mér átti að gjalda;
all-vel stóð hún skilum í.
Eins þó banvænt yrði sárið,
að ei frekar gera skal.
Sýna hefnd hún hefir rekið
hr'eystilegar mörgum hal.“
„Guðrún hreif minn huga allan
hana þegar fyrst ég leit.
Sakir ég við Auði átti
engar þá ég samvist sleit.
Engra bóta unni ég henni;
ekki hirti að gera sátt.
Málstað á hún miklu betri:
Minni sök, til varnar fátt.“
Fáir treystu, eins og Auður,
eigin mætti hefnd að ná.
Vildi ei sín^ bræður brýna
bllóðgan vígaferil á.
Vildi Þórði víti skapa;
vega ei, en taka blóð.
— Af dugnað Auðar, drengskap Þórðar
dæmi geymist mætri þjóð.
Bjarni Þorsteinsson frá Höfn.
21