Nýjar kvöldvökur - 01.10.1942, Qupperneq 31

Nýjar kvöldvökur - 01.10.1942, Qupperneq 31
:n. Kv. DÆTUR FRUMSKÓGARINS 173 einnig útbúnaður sá, er notaður var til að Jhefja og fella vindbrúna. Að þessu sinni voru þrír húskarlar stadd- ir í klefanum. Einn þeirra stóð við skotaug- að, en hinir tveir sátu úti í horni og spiluðu á spii. „Þetta er meiri þokan!“ mælti sá er hélt vörðinn. „Já,“ svaraði annar spilamannanna, „það má mikið vera, ef þessir rauðu hundar nota ekki slíkt tækifæri til þess að gera nýtt áhlaup.“ „Hvað gerir það til,“ svaraði sá þriðji, „síðan Járnhönd og félagi hans komu, ótt- ast ég ekkert framar.“ „Eru þeir báðir á verði?" „Já, Járnhönd er hér rétt yfir okkur, en rauðskinninn heldur vörð á þakinu, fljóts* megin. Þeir ætla að vaka alla nóttina." ,,Það eru nú karlar í krapinu," sagði sá fyrsti. „Ég hélt að ég væri sjálfur ekki neinn kararkarl, en mér finnst ég vera svo und- arlega þreyttur eftir daginn. Ég er svo syfj- aður að ég get varla haldið augunum opn- um.“ „Drekktu meira toddý, það liressir þig.“ „Ég veit ekki. Ég er búinn að drekka tvö glös. Mikil drykkja gerir mig syf jaðan.“ „Þegar spilið er búið, verður kominn tími til að leysa þig af verðinum. Þá getur þú sofið nokkra stund." „Ég ætla aðeins að setja mig niður and- artak. Ég er svo máttfarinn. Lánaðu mér spilin, þegar þú skiptir við mig. Þá mun ég vakna.“ Eftir stutta stund reis annar spilamann- anna á fætur og rétti spilin að þeim, sem vörðinn hélt. Tók hann sér síðan stöðu við skotaugað og tók að rýna út í myrkrið. En hann sá ekkert og liljóð bárust engin að eyrum hans, önnur en skrjáfið í spilunum og sultarleg vein sjakala og úlfa, sem reik- uðu um valinn. Þar sem þjónninn stóð og hélt vörð við skotaugað, gefandi öllu úti fyrir nánar gæt- ur, tók hann ekki eftir því að sagnirnar hjá félögum hans urðu sífellt strjálari og strjál- ari. Hann varð ekki lítið undrandi, er hann að lokum leit við, til þess að sjá hvernig spilið gengi, þegar hann sá að báðir spila- mennirnir voru steinsofnaðir. „Dauði og djöfull! Það er naumast að þeir hafa verið orðnir syfjaðir. Það er bezt að lofa þeim að sofa áfram, þangað til þeir eiga að leysa mig af.“ Hann sneri sér við og hélt áfram að stara út í nóttina og myrkrið. „Hvílíkur kuldi!“ mælti hann ennfrem- ur. „Þótt ég sé ekki mikill vinur áfengra drykkja, þá held ég að ég freistist til að fá mér ögn meira af toddýinu, ég hefi varla bragðað á því.“ Allt var nokkurn veginn hljótt í kringum hann. Dapurlegar hroturnar í félögum hans og einmanalegt vælið í úlfunum, var hið eina, sem rauf hina miklu þögn. „Hvernig stendur á því að ég verð allt í einu svo syfjaður? Skyldi ætla að fara eins fyrir mér og félögum mínum Ég verð, livaA sem það kostar að verjast svefninum, því innan skamrns verða vaktaskipti.“ Hann barðist eftir mætti gegn svefninum, en árangurslaust. Hann fann máttinn smám saman draga úr sér, hann sá það sem kring- um hann var eins og í gegnum þoku. Síðasta hugsun hans var: að úr því hon- um ekki auðnaðist að vinna bug á svefnin- inum, þá bæri sér þó skylda til að vekja þann félaga sinn, sem taka átti við af hon- um. Hann reikaði því eins og í draumi yfir að spilaborðinu. greip í handlegginn á öðr- um þjóninum og kallaði veikum mætti: „Vaknaðu! leystú — mig — af. — Ég — get — ekki — vakað-------—“ Hann endaði ekki setninguna. Hann skjögraði, reyndi enn á ný að finna eitthvað til þess að styðja sig við, en hneig niður á gólfið og var samstundis sofnaður.

x

Nýjar kvöldvökur

Direct Links

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Nýjar kvöldvökur
https://timarit.is/publication/511

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.