Nýjar kvöldvökur - 01.10.1942, Blaðsíða 43

Nýjar kvöldvökur - 01.10.1942, Blaðsíða 43
N. KV. HARKAND RÉTTLÁTI 185 „Nú verður þú að borga mér átta annas“; sagði Harkand kveinandi við konu sína. „Æ, ég á engá peninga, það veizt þú sjálf- ur“, sagði hin ógæfusama móðir, veinandi og kveinandi. „Er það ekki nóg að þú hefir steypt okkur í eymd og volæði, að við höf- um misst son okkar, viltu einnig heimta peninga fyrir lík hans, einkasonar þíns?“ „Já, ég verð að heimta það“, sagði Harkand réttláti, „því að ég hefi lofað hús- bónda mínum að gera það. Ef þú átt ekki peninga, verður þú að láta mig fá linda þinn að launum. Hírali grét heitum tárum yfir óhamingju sinni. Hún tók af sér linda sinn og fékk manni sínum. Hann tók þegjandi við hon- um og'lét hann hjá öðrum fötum, sem hann hafði tekið. Þau hjónin settust svo við vatn- ið og grétu beizklega. Lík Marikhands hafði ekki sokkið, það flaut á tjörninni og andlit litla drengsins var svo vingjarnlegt og brosandi eins og hann svæfi. „Er það ekki óréttlátt", sagði móðirin, „að guð svona lengi þjáir okkur, það eru víst 12 ár síðan að sól lífs okkar gekkundir!" „Það er mjög hryggilegt“, sagði maður- inn, „en það er guðs vilji, og við verðum að hlýða örlögunum með þolinmæði“. Á þessu augnabliki kom fagur og tíguleg- ur maður til þeirra og heilsaði þeim. Hann var skrautlega og ríkmannlega klæddur. Vhð hlið lians gekk ungur maður. Þau höfðij ekki séð hvaðan ferðamennirnir komu, og þau vissu ekki, að það var guð með einum af englum sínum. Harkand", sagði hinn ókunnugi, lor.ning- arverði maður við radshainn, „vilt þú aft- ur fá konu þína, son þinn og ríki?“ „Ef það er guðs vilji, svo vil ég það gjain an“, sagði Harkand. Ókunnugi maðurinn rétti hendi sína til vatnsins og þar varð mikið kraftaverk. Lík Marikhands kom hægt og hægt ^yndandi til þeirra og þegar það kom að bakkanum, sté fagri drengurinn upp af öldunum, gekk glaður og heill heilsu til foreldranna og heilsaði þeim alúðlega. Þegar þau, frá sér numin af gleði, höfðu faðmað’ son sinn, féllu þau á kné og þökkuðu gestinum. Hann sagði: „Komið með mér!“ Og svo fór hann með þeim þangað, sem líktilsjón- armaðurinn dvaldi. „Hvað viltu fá mann þennan borgaðan?" spurði guð hann. / „Ég hefi einungis gefið pund fyrir iiann, „en þar eð hann er svo þénugur og trúr, þá læt ég hann ekki lausan fyrir minna en 4 pund“. „Hér eru fjögur pund“, sagði guð og Harkand varð frjáls. Síðan fór hann til kaupmannsins, sem Hírali var veðsett. „Hvað krefst þú fyrir konu þessa?“ spmði guð. „Ég hefi gefið eitt pund fyrir hana“, svar- aði verzlunarmaðurinn, en hún er mjög falleg og dyggðug, þvi sel ég hana ekki minna en sex pund“. „Héma eru sex pund“, sagði guð, og þar með var Hírali frjáls. N ú fór maharadshainn Harkand heim til hallar sinnar ásamt Hírali konu sinni og Marikhand syni sínum, eftir að hann hafði þakkað gjafia allra góðra hluta fyrir allt það góða, sem hann hafði veitt þeim öllum. Þegar hann kom til heimilis síns, þá var garðurinn, þeim til mikillar undiunar, skreyttur fögrum blómum. Trékolin höfðu einnig breytzt og orðið að silfri, gulli og gimsteinum, og fólkið var á sínunt venju stöðum, reiðubúið til að hlýða skipun hús- bóndans. Fyrstu orð hans, eftir að hann var stiginn yfir þröskuldinn, voru þessi: „Fjár- stjóri, gefðu fyrst og fremst fátæklingunum hálft þriðja pund gulls, og svo skulum við flytja guði bæn og þakka honum fyrir allar hans velgerðir“. X þýddi. 24

x

Nýjar kvöldvökur

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: Nýjar kvöldvökur
https://timarit.is/publication/511

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.