Nýjar kvöldvökur - 01.08.1924, Blaðsíða 15

Nýjar kvöldvökur - 01.08.1924, Blaðsíða 15
NYJAR KVÖLDVOKUR. 125 alveg aðgerðalaus þessa daga, sem jeg var hjer um kyrt. Jeg hefi læðst kringum kastal- ann, bæði að nóttu og deg', og komist að ýmsu. Á þessum vitneskjum, sem jeg hefi feng- ið, byggi jeg uppáslutigu mína, og er svo v!s> um, að hún er framkvæmanleg, að jeg vildi ráða yður til að senda konunginum boð þegar í stað, og fá hann til að senda liðstyrk hing- að til þess að setjast í kastalann og halda honum.« »Nei, vinur minn. Við bíðum með það, þangað til við höfum náð honum á okkar vald.« »Nú jæja. Petta kemur mjer ekki við. Jeg á ekki að segja hjer fyrir.« »En mjer er forvitni á að heyra, hvaða uppgötvanir þú hefir geit hjer,« mælti jeg óþolinmóðlega. »Fyrst og fremst hefi jeg komist að þvf, að setuliðið hjer er um 100 manns, eða fjórfalt mannfleira en lið okkar. Ennfremur hefi jeg fundið stað, þar sem jeg álít, að hugaðir og djarfir menn, eins og við höfum á að skipa, geti komist að kastalanum með því að klifra upp hamarinn, sem kastalinn stendur á. Paðan sjest ekki til mannaferða úr kastalanum. Rjer sjáið þarna kastalavegginn, þar sem hann er bygður fremst frammi á klettabrúninni. Pað eru að minsta kosti 95 álnir frá efri brún kastalans niður á jafnsljettu. Auk þess er klett- urinn nærri því lóðréttur, og setuliðið mun álíta, að ókleift sje að leita uppgöngu í kast- alann frá þeirri hlið, enda munu þeir engan vörð halda þar. Jeg hefi aldrei sjeð mann þeim megin kastalans síðan jeg kom hingað, En eftir nákvæma skoðun álít jeg það engan vegin ókleipt að komast þarna upp.« Jeg athugaði nú þenna stað, sem Tryggur benti mjer á, en gat ekki sjeð nema nokkurn hluta af hamrinum, því að kletlabrúnin sjálf skygði á neðri hlutann. En við nánari athugun sýndist mjer ekki frágangssök að reyna þessa leið eins og Tryggur hafði sagt. Enda var ekki nm annað að gera, allar aðrar leiðir virtust lokaðar. Jeg bað Trygg um fleiri skýringar. »Sttjum nú svo, að við kæmumst þessa leið inn í kasfalann, en hvað mundum við mega okkar móti fjórfalt mannsterkara liði, eins og þeir hafa á að skipa í kastalanum ?* »Jeg hefi líka um þetta hugsað, og leynt að gera mjer grein fyrir því. En það mál er mjög erfitt, vegna þess, að við höfuni enga hug- mynd um, hvernig háttar til inni í kastalanum. Par verðum við að gefa okkur drotni á vald, og ákveða þá fyrst, eftir áslæðum, hvernig við sækjum fram.« »Á þetta verð jeg að fallast með þjer. Jeg býot við að rjelt sje að hefjast handa þegar í kvöld, eftir að máninn er kominn á loft. En segið mjer, þekkið þjer leiðina að þcssum stað undir hamrinum?* »Já. Pjóðvegurinn, seni þið komuð eftir, liggur fáa faðma frá hamrinum.« »Pá skulum við þegar í stað fara, og gera fjelögum okkar viðvart. Við leggjum þegar af stað niður á veginn.* »Nei, herra merkisberi. Það held jeg að sje óráð. Mjer hefði fundist rjettara að bíða hjer þangað til myrkrið skellur á og máninn kemur UPP- Jeg skal segja yður hvers vegna. í fyrsta lagi vegna þess, að við getum haft nánar gæt- ur á kastalanum og veginum hjeðan, þar sem við höldum tii, og virðist mjer það mjög þýðingarmikið að hafa gætur á, hverjir fara út eða inn í kastalanum. Hugsantegt væri, ef við sleptum því að hafa gætur á öllu hjeðan, að munkurinn kæmist undan með biúði yðar, því að ekki er að vita, uppá hverju hann finnur, og gæti hann þá verið kominn langar leiðir inn í Böhmen, áður en við vissum af og þang- að væri engin leið að hætta sjer á eftir honum.« Pað fór hryllingur um mig við þessa til- hugsun. En jeg varð að fallast á þessar ástæð- ur Tryggs. »1 öðru lagi,« hjelt Tryggur áfram, »er minni hætta á því, að setuliðið verði okkar vart hjer, meðan bjart er af degi. Að vísu er það sjald- gæft, að nokkur fari burt frá kastalanum, en þó hefir það komið fyrir, að þrír til fjórir menn hafa riðið eða gengið frá kastalanum.*

x

Nýjar kvöldvökur

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: Nýjar kvöldvökur
https://timarit.is/publication/511

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.