Nýjar kvöldvökur - 01.08.1924, Síða 18

Nýjar kvöldvökur - 01.08.1924, Síða 18
128 NÝJAR KVÖLDVÖKUR. S m æ 1 k i, Svo er sagt, að karl nokkur hafi gengið á reka sjera Björus Halldórssonar í Laufási og stolið reka- viðardrumb. Stuttu seinna fór hann til kirkju og stóð svo á, að prestur las þessi orð á stólnum: ♦Jesús rak út djöful þess, er dumbur var<; en karli heyrðist hann segja: »Rekið þið út djöful þann, er drumbinn bar»; karl laumaðist þá út úr kirkjunni og sagði hálfhátt í kirkjudyrunum: »Það stela fleiri aí rekanum þínum en jeg, prestur minn.« Það var siður hjer áður, að húsbændur gáfu hjú- unum vitnisburði, er þau höfðu vistaskifti. Bóndi nokkur í Möðruvallasóku gaf vinnukonu sinni svo- látandi vitnisburð: »Sigríður Guðmundsdóttir, er verið liefir lrjá mjer í vist þetta ár, er lágur kvenmaður, læra- gildur. Hún vinnur nokkuð, en vinnur illa; ber nokkuð á velli, en ber illa; prjónar nokkuð, en prjónar illa; rakar nokkuð, en rakar illa. Mitt nafn undirskrifaður Eyjólfur Guðmunds- son 18 hundruð júní. Mflt nafn Eyjólfur Guðmundsson 11 luindruð júní.« Maður uokkur, sem var mjög smámæltur, kom úr bónorðsför og lá vel á honuin. Kom hann að bæ á leiðinni og sagði þetta í frjettaskyni: »Þarna er jeg búinn að fá túlkuna; hún er líka eftir mínu geði, hugta jeg. Það er túlkan, sem hann Jón í Glerárskógum lrefir verið að eiga börnin með. Það er nrunur eða að elga þeltar andsk .... jónrfrúr, sem ekki tugta um annað en að eyða og spenda.« Gamall karl lreyrði hafða yfir vísuna: Til að græða ineinið mitt, meður æða fossi, ljet út blæða lífið sitt Ijóminn hæða á krossi. Þá sagði karl: »Hver ætli þá lrafi búið á Krossi ? Ekki man jeg neilt eftir þessu.« (Kross var þar næsti bæi). Maður kom að bæ og var spurður frjetta. Hann sagði svo frá: »Mikil ern tíðindin að austan; það rak hval fyrir vestan; Ólafur í Viðey erdáinn; það var ausið 30 lýsistunnum upp úr hauskúpunni á honum; það kvað hafa verið rnestur maðurinn á landinu.< - Gömul hjón komu heim írá kirkju. »Hver var þessi Belsebubbur, sem presturinn talaði um í ræð- unni í dag,« spurði kerling. »Hrepþstjórar og heldri menn í sveit,« svaraði karl. »Jeg vænti þá,« sagði kerling, »að þú sjert einn af Belsebubbunum, hjart- að mitt.« »Svo á það nú að heita,« svaraði karl. Karl einn norður í Laxárda! sagði svo frá, að yfirsetukona, sem siglt hafði til náms og var ný- komin aftur, hefði boðið sjer inn, þegar hann heim- sótti hana og gefið sjer kaffi með mestu viðhöfn, »og þegar hún rjetti mjer bakkann, sagði hún: Vær saa god; en jeg vildi sýna henni að jeg skyldi dönsku líka og sagði: Adíus.« Einu sinni bjuggu hjón á bæ, Jón og Helga að nafni. Þau voru vel efnum búin og unnust hugást- um og var allur hagur þeirra hinn besti. Svo bar við einn vetur, að Jón lagðist veikur og dó; barst ekkjan lítt af sakir harms og trega og vildi ekki huggast láta, þó að nrargt væri gert henni til lrug- hreystingar. Einkum átti hún ilt með svefn og tók að lokunr það ráð að leggja trjedrumb í rekkju með sjer; vafði hún hann klæðunr og nefndi hann Jón eftir nranni sínum. Vinnuhjú voru þar á bæn- um, Jón og Sigríður að nafni, og voru systkin. Tók Sigríður sjer sorg húsinóður sinnar mjög nærri, því að hún unni henni hugástum og vildi henni alt til geðs gera. Eitt sinn var ekkjunni boðið í skírnar- veislu og bjóst hú.i ekki við að koma heim aflur fyr en eftir háttatíma Lagði hún ríkt á við Sig- ríði að hún byggi sem best um rúm sitt um kvöld- ið og legði drutr.binn vandlega klæddan í það. Uin kvöldið kom Sigriður að máli við jón bróður sinn og bað lrann að hátta í rúin húsmóður sinnar og vita hvernig henni yrði við; verið gæti að hann hefði gott af því, en ef svo yrði ekki, mundi hún ekki etfa slíkan lrrekk við hann. Jón var fyrst all- tregur til, en Ijet að lokum tilleiðast. Lagðist hann svo í rúmið, þar sem drumburinn hafði áður legið. Ekkjan kom síðla heim úr veislunni unr kvöldið og fór rakleitt inn í svefnhús sitt, sem var afsíðis og skrálæst. Leið svo af nóttin. Árla morguns kom Sigriður að hurðinni og bar sig illa yfir eldiviðar- leysi, kvaðst hvorki geta eldað kaffi nje nrat og bað húsmóðurina leggja ráð til. Hdga kvað«t ekki nenna á fætur strax, en sagði: »Taktu hann Jón drumb og brendu honum á meðan hann endist.« Síðan sneri hún sjer að þeim lifandi Jóni og fóru þau seint á fætur. Skömmu síðar giftust þau og voru samfarir þeirra góðar. Þegar fjármaður nokkur kom frá gegningum á páskadagsinorgun, sagði hann: »Þegar jeg konr í húsin í morgun, náði jeg mús í garðanum, en af því að það var hátíðisdagur, vildi jeg ekki drepa blessaða skepnuna, heldur reif jeg undan henni annað lærið og slepti henni.«

x

Nýjar kvöldvökur

Beinleiðis leinki

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Nýjar kvöldvökur
https://timarit.is/publication/511

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.