Nýjar kvöldvökur - 01.12.1925, Qupperneq 2

Nýjar kvöldvökur - 01.12.1925, Qupperneq 2
178 NÝJAR KVÖLDVÖKUR. Jeg svaraði engu, en þótiist vita, við hvað hún ætti. En, því miður! — Jeg vissi ekki, hve djúpar rætur »sáð spillingariunar« hatði fest í hjarta hennar, eða hvern ávöxt það mundi bera. Tjaldið fjell, en var jafnskjótt dregið upp attur og sást þá »Síðasta kaupið lians.« Rað var skrautlegur salur og sátu í honum átta eða tíu menn. Þeir voru auðsjáanlega nýstaðnir upp frá spilaborðinu og einn þei ra, andstyggi- legur slarkari, sem brosti illúðlega, benti hálf hæðnislega á »síðasta kaupið« sitt, en það var fríðieiks stúlka. Hún var kiædd skínandi hvít- um brúðarklæðum, en hún var burdin eins og fangi við súlu eina, en frá súlunni gægðist gloítandi Bakkusarhöfuð úr marmara og gaut augum á stúlkuna. Hendur hennar voru fast reyrðar saman með demantshlekkjum og um mitti hennar lágu þykk perlubönd. Um háls:nn voru hlekkir úr roðnsteinum og frá brjóstinu niður á fætur var hún vafinn snúrum úr gulli og gimsteinum. Hún bar höfuðið hátt og lýsti sv'purínn drambi og kaldhæðni, en augnaráð hennar bar vott um blygðun, sjálfsfyiirl'tningu og örvæntingu yfir ánauð sinni. Maður sá, sem átti þessa hvítu ambátt, taldi upp alla kosti hennar og fríðindi, en fjelagar hans klöppuðu lof í lófa. Tilfinningar þeirra lýstu sjer greini- lega í svip þeirra — lostagirnd, grimd, öfund- sýki, hæðni og eigingirni — lýstu sjer betur, en nokkur hefði gétað útmálað það. »Petta er agætt dæmi upp á flest hjónabönd nútimans,® heyrði jeg að einhver sagði. »Ljómandi!« svaraði annar. »Rað eru falsæl og rjett-trúuð hjón.« Jeg leit á Síbyl, og var hún föl, en brosti þó. Mjer var einhverskonar huggun í því, að jeg myntist þess að hún hafði sagt mjer, að hún »hefði lært rð elska« og að gifting okkar væri því ekki lengur eingöngu peningaspursmál. Hún var ekki »kaupið« mitt, heldur heitmey ■mín, dýrlingur minn, drotning mín — þannig hugsaði jeg þá í einfeldni minni. Nú var komið að seinustu sýningunnh »Trú og efn;"hyjgjs« og reyndist hún eitirtakanleg- USt allra sýninganna. Smám saman dimdi í salnum, tjaldið var hafið upp og sást nú ynd- islega fögur strandlengja. Tungl var í fyllingu og varpaði geislum sínum á spegilsljettan sjávarflötinn, en dásamleg vera með vængjum, er gl.truðu í öllum regnbogans litum, sveif frá jörðinni upp til himna. Hún leið upp í loftið eins og engill, þrýsti liljuskúf að brjósti sjer og augu hennar tindruðu af guðdómlegum fögnuði, von og ást. Unaðslegur hljóðfæra- sláttur kvað við og dýrðlegur lofsöngur heyrð- ist álengdar. Himin og jörð, haf og loít virt- ist alt lyfta þessari uppleitandi sál og hún hóf sig hærra og hærra — en meðan við horfð- um hugfangin á þetta, heyrðist alt í einu þrumugnýr. Leiksviðið varð myrkt og sævarnið- ur heyrðist í fjarska. Tunglskinið hvarf og hljóðfæraslátturinn hætti. Sást þá fyrst rauðleit- ur bjarmi, er smám saman óx og nú sást efn- ishyggjan í líkingu skininnar beinagrindar, sem glotti draugslfga við okkur. En svo hrundi hún saman, meðan við vorum að horfa á hana og hlykkjaðist langur ormur út úr beinahrúg- unni, en annar skreið út um augnatóffirnar á hauskúpunni. í salnum Ijetu menti viðbjóð sinn í Ijós og risu úr sætum sínum, en merkur vís- indamaður stjakaði mjer frá sjer til þess að komast sem fyrst út og tautaði: »Rað kann að vera, að öðrum þyki þetta skemtilegt, en mjer finst það andslyggilegt.« »Nákvæmlega eins og yðar eigin kenningar, kæri prófe?sor,« sagði Lúció, og varð nú all- bjart í leikhúsinu. »Rær skemta sumum, en aðrir hafa andstygð á þeim. En jeg bið yður afsökunar! Retla var ekkert annað en gaman og jeg útbjó þessa sýningu beinlinis í heiðurs- skyni við yður.« »Já, það er svo — gerðuð þjer það?« nöldraði prófessorinn. »Nú jæja, en hvað um það — mjer fanst sannarlega ekkert til þess koma.« »Pað hefði yður þó átt að þykja, því að þetta var alveg vísindalega rjett,« sagði Lúcíó hlægj’ndi. »Vængjuð trúm, sem svífur rpp til ímyndaðs himins, samrýmist ekki vísundun- um, en beinagrindin og ormarnir koma vel

x

Nýjar kvöldvökur

Direct Links

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Nýjar kvöldvökur
https://timarit.is/publication/511

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.