Nýjar kvöldvökur - 01.04.1918, Síða 17

Nýjar kvöldvökur - 01.04.1918, Síða 17
KYNJALYFIÐ. 70 KYNJALYFIÐ. Saga frá krossferðatímunum. (Eftir Walter Scott.) SEXTÁNDI KAPÍTULI. Munkurinn fór á eftir kvennaskaranum út úr tjaldi Ríkarðar konungs og var sem skugg- inn fylgdi þar sólinni. En í dyrunum sneri hann sér þó við og um leið og hann ógnandi lyfti höndunum, mælti hann til konungs: »Bö!v- un yfir þann, sem ekki hirðir um aðvörun kirkjunnar, en hlustar á fánýtar ráðleggingar vantrúaðra manna. En vita skalt þú, Ríkarður konungur, að eg yfirgef ekki herþúðir krossfar- anna nú þegar. Við eigum eftir að sjást, því sverðið fellur enn ekki, þótt það hangi á veik- um þræði.« »Pú ert drambsamari, prestur, í þínum geit- arskinnsstakki en þjóðhöfðingjar skýddir purp- ura og dýru lini,« sagði konungur. Einbúinn hvarf síðan út úr tjaldinu. En konungur sneri sér að Arabbanum og mæiti: »Tala prestar ykkar Austurlandabúa eins djarft og óhikað við þjóðhöfðingja sína og þessi munkur, lærði Hakim?« »Munkur þessi mun annaðhvort vera vitr- ingur eða geðveikur, um það vitnar alt fram- ferði hans. Sé hann það fyrnefnda, veit hann hvað hann má bjóða sér og við á, en sé hann geðveikur, verður hann eigi krafinn ábyrgðar á háttalagi sínu.« »Mér virðist að munkar vorir leggi sig sér- staklega eftir því að haga sér sem geðveikir menn. En sleppum því. Með leyfi að spyrja, hvaða greiða get eg gert þér, læknir góður?* »Mikli konungur,« sagði læknirinn oghneigði sigdjúpteftirsiðvenjum Austurlandabúa. »Leyfðu þjóni þínum að segja fáein orð og þó að halda lífi. — Eg vil minna þig á, að þú skuldar mér ekki lífgjöf, heldur öndum þeim, sem eg er lítilmótlegt verkfæri fyrir, og sem þeir vinna með velgjörðarverk á jarðríki meðal dauðlegra manna.« »Svo munt þú vilja fá anr.að líf í staðinn fyrir lífgjöf mína?« greip konungur fram í. »Já, það er auðmjúk bæn mín til hins mikla konungs. Eg bið um lífgjöf hins göfuga ridd- ara. Bið fyrir honum, sem dæmdur er til dauða, einungis fyrir samskonar misgerðir, sem Adam, faðir okkar allra gerði sig sekan í.« »Svo ættir þú að minnast þess, að Adam varð að deyja fyrir yfirsjón sína,« sagði kon- ungur stuttur í spuna. Síðan fór hann að ganga með ákefð aftur og fram í hinu takmarkaða tjaldrúmi og tautaði við sjálfan sig: »Guð líti í náð sinni til okkar. Mig grunaði erindi hans jafnskjótt og hann kom inn í tjaldið. Hér snýst alt uin líf eins auðnuleysingja, sem réttilega er dæmdur til dauða og eg, konungur og her- maður, sem með boðum mínum hefi orðið þúsundum að bana, og með eigin hendi lagt að velli fleiri tugi manna; eg á nú ekki að fá að hafa ráð á lífi þessa manns, enda þótt fáni minn, vopn mín, eg sjálfur og drotningin hljóti vanvirðu af háttalagi þessa lánleysingja. Pað veit sá heilagi Georg, að þetta næstum ætlar að verða hlægilegt og minnir mig á æfintýris- höllina, þar sem valinn riddari átti að verja innganginn og varð þar að heyja stríð við als- konar óvini í ýmsum myndum, og jafnskjótt og hann hafði yfirstígið einn óvininn kom ann- ar fram jafnhættulegur. Alveg eins er þetta hér, fyrst kemur drotningin, svo mín stórláta frænka, þá einbúinn og nú að síðustu Hakim. Jafn- skjótt og sá eini er hrakinn á flótta, er annar kominn í hans stað. Og eg einn míns liðs verð að heyja stríð við þetta fjölmenni, ha,

x

Nýjar kvöldvökur

Beinleiðis leinki

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Nýjar kvöldvökur
https://timarit.is/publication/511

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.