Nýjar kvöldvökur - 01.04.1918, Qupperneq 18

Nýjar kvöldvökur - 01.04.1918, Qupperneq 18
80 NÝJAR KVÖLDVÖKUR. ha, ha!« Ríkarður hló hátt, því ofsi hans var farinn að lægjast. Reiði hans var venjulega of æst til þess að hún gæti orðið langgæð. Læknirinn horfði á hann undrandi með svip, sem eigi var laus við fyrirlitningu. Svona snögg umskifti á skapsmunum eru eigi almenn í Aust- urlöndum. Hlátur karlmanna þykir þar og frem- ur auðvirðilegur. Þykir hann einkum eiga heima hjá kvenfólki og börnum. Regar konungur hafði sansað sig og var orðinn spakari, tók læknirinn aftur til máls: »Líflát ætti enginn að láta fara fram með hlæj- andi andliti. Lát því þjón þinn vona, að þú gefir honum líf þessa manns.* ^Rú skalt fá þúsund fanga leysta út i stað hans, og geta þannig látið farafjölda landa þinna frjálsa til heimila sinna,« sagði konungur. »Af Iífi þessa manns hefur þú ekkert gagn, enda hefur hann fyrirgert því.« »Allir menn hafa fyrirgert lífi sínu,« svaraði Hakim og lyfti upp hendinni. »En hinn mikli dómari er miskunsamur og gengur eigi ríkt eftir skuldinni fyrir afbrot vor — eða á versta tíma.« »Þú getur eigi sannfært mig um, að þú hafir nokkurn ávinning af því að þrengja þér milli mín og réttvísinnar, sem eg sem krýndur kon- ungur hefi svarið að halda uppi.« »Með eiði hefir þú jafnhliða heitið því að sýna miskunsemi. En hlustaðu nú á mig, mikli konungur: Þú hefir mikla ástríðu til að lúta í engu annara vilja en þínum eigin, en eg get gefið þér gilda ástæðu fyrir, að mér hlýtur að liggja þetta mál mjög á hjarta, og hún er sú, að það getur varðað líf margra manna að þú gefir mér líf þessa eina manns.« »Skýrðu þetta nánar, en ímyndaðu þér samt ekki, að þú getið gabbað mig með uppspuna frásögnum.« »Ekkert er fjær þjóni þínum,« svaraði lækn- irinn. »Svo vil eg skýra þér frá því, herra konungur, að lyf það, sem hefir gefið þér heilsuna, og mörgum á undan þér, er framleitt af töfragrip, sem hefir undraverð yfirnáttúrleg áhrif, og sem stjórnast af ósýnilegum verum eftir ákveðnum reglum. Eg er aðeins vesælt verkfæri, sem hef fengið nokkra þekkingu og reynslu að nota þennan töfragrip mönnum til heilsubótar. Reynslan hefur sýnt, að það er hægt að setja saman töfragrip, sem hefir þessa eiginleika; en fáir hafa árætt að taka þennan hulda kraft í sína þjónustu. Hver sá sem áræð- ir að nota slíka lækninga-aðferð, verður að búa sig lengur undir það með föstum og bæna- haldi og strangri reglusemi í öllum lifnaðar- háttum, svo verður hann að lækna eða hrifsa úr dauðans greipum að minsta kosti tólf menn mánaðarlega, annars missir töfragripurinn sín læknandi áhrif og ekki einasta það heldur mun sá er síðast var læknaður bíða bana innan árs. Yfirstandandi mánuð vantar mig eitt mannslíf að frelsa til að ná fullri tölu og nú bið eg um líf hins dómfelda riddara.* »Farið út í herbúðirnar, minn góði læknir, þar er nóg af sjúkum mönnum. Það sæmir eigi jafnmerkum lækni og þú ert að gera lil- raun að svifta böðulinn vellaunaðri atvinnu. Svo fæ eg heldur eigi skilið, hvernig lífgjöf glæpamanns getur fylt tölu þeirra, sem fá dá- samlega lækningu fyrir kraft kynjalyfsins.* »Það er svo margt, sem við fáum eigi skil- ið. En það vil eg segja þér, að í morgun varð mér það á að snerta óhreint dýr og það útaf fyrir sig, gerir mig ófæran til að framkvæma fleiri Iækningar að svo komnu. Spurðu mig því eigi frekar, það ætti að vera nægilegt að eg fullvissa þig um, að með því að gefa mér líf riddarans, með því víkur þú af braut þinni, mikli konungur, og af vegi mínum, þíns auð- mjúks þjóns, stórri yfirvofandi hættu.« »Taktu eftir orðum mínum, Hakim,« svar- aði konungur. »Mig undrar það eigi, að lækn- ar tali á huldu og miklist af því að sækja að nokkru leyti vísdóm sinn til stjarnanna, en eigi þarft þú að ímynda þér, að þú skelfir Ríkarð Plantagenet með því að spá honum óhappa. Og vita mátt þú, að þú talar hér eigi við neinn óvita eða gamalmenni, sem farið er að ganga í barndómi og hrekkur við, ef héri stekkur fram hjá honum eða hrafn gargar.«

x

Nýjar kvöldvökur

Direct Links

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Nýjar kvöldvökur
https://timarit.is/publication/511

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.