Nýjar kvöldvökur - 01.04.1918, Síða 36
Skrítlur.
Meinleg athugasemd.
Konan: (veik) »Viltu lofa mér einu, ef eg
skyldi nú deyja?«
H a n n: »Hvað er það sem eg á að lofa þér?*
Hún: »Pað að þú giftir þig henni Helgu.«
Hann: »Henni Helgu — eg sem hélt að þú
hataðir hana.«
Hún: íPað gjöri eg líka, en sjáðu nú til
með því gaeti eg best hefnt mín á
henni.«
»F>ú verður að muna það, elskan mín,«
sagði maður einn við konu sína, »að minn
smekkur er langt um betri en þinn.«
»Pú hefir á réttu að standa,* svaraði
konan. »það sést best á því að þú vildir
mig og að eg skyldi geta gifst þér.«
Þegar fyrsta gufuskipið kom til landsins og
sigldi móti vindi, sögðu gömlu konurnar, er
þær sáu reykinn úr því:
• Fjandinn erfarinn að kynda á móti stormi!«
SKÝRSLU FORM
fyrir afla á þílskipum, mótorskipum og opnum bátum, gefin út af Fiskifélagi íslands, ásamt
með viðheftum almennum sjóferðareglum, sem fylgja skal á íslenzkum skipum, geta formenn
báta og skipa fengið á prentsmiðju minni á Oddeyri fyrst um sinn endurgjaldslaust.
Nokkur eintök af Fiskifélagsblaðinu „ÆGIR“ 1918
eru til sölu á prentsmiðjunni fyrir 2 kr. árgangurinn, er borgist fyrirfram (1. — 5. hefti kom-
ið, eiga að verða 12 hefti). Þau hefti sem vanta af árgangnum verða send kaupendum jafn-
óðum og þau koma
Akureyri, 12. júlí 1918.
Björn Jónsson.
EFNI:
Hetjan í Klondyke eftir fack London..................bls.
Kynjalyfið eftir Walter Scott . . .
Litli píslarvotturinn eftir Önnu Larsen
Kvæði ..............................
Nýjar Kvöldvökur
koma út á Akureyri, eitt hefti fyrir hvern mánuð og kosta 4 krónur árg.
Borgist fyrir 1. ágúst ár hvert.
Afgreiðslu- og innheimtum. Sveinn Sigurjónsson, Hafnarstræti 103.
Prentsmiðja Björns Jónssonar.