Tjaldbúðin - 01.12.1900, Blaðsíða 8

Tjaldbúðin - 01.12.1900, Blaðsíða 8
6 — grúfir yfir höllinni, þar sem konungurinn Belsasar flýtur í blóði ásamt hirðmönnum og hirðkonum sínum. Þegar guð hafði skapað alheiminn, þá leit hann yfir allt, sem hann hafði gjört, og sjá, það var harðla gott. Allt, sem guð skapaði, var gott og hlaut að vera það. Hcilagur, algóður og al- máttugur guð gat eigi skapað annað en það, sem er gott. Honum verður eigi kennt um hið illa. Hinn vondi andi, óvinur guðs og manna, var upphaflega góður, eins og hinir aðrir englar guðs. En hann gjörði uppreisn gegn guði og varð (mynd hins illa. Vorir fyrstu foreldrar voru sköpuð sak- laus og syndlaus, Guð gaf þeim dýrmæta gjöf, fijálsræðið, en þau misbeittu því. Þau hlýddu eigi guði og urðu undirorpin synd og dauða. Þannig hefur mannkynið varið dýrmætri gjöf guðs sjálfu sjer til ómetanlegs skaða. Eins er því einnig varið með vínið. Vínið er í sjálfu sjer saklaust. Það er nytsamt, ef það er rjettiiega um hönd haft. Guð hefur skapað þau efni, er mynda vínið. Hann hefur og leyft, að hugvit mannsins byggi það til. Vjer vitum allir, að frelsarinn breytti vatni í vín. Og frclsarinn játar sjálfur, að hann bragði vín. En þegar hinn eini heilagi og sak- lausi meðal mannanna hefur bragðað vín, þá er það í sjálfu sjer eigi synd. Vínið er gjöf guðs,

x

Tjaldbúðin

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: Tjaldbúðin
https://timarit.is/publication/530

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.