Tjaldbúðin - 01.12.1900, Page 19

Tjaldbúðin - 01.12.1900, Page 19
17 alveg hárrjett og óræk, ef ekkert fjelagslíf væri til meðal manna, og ef maðurinn hefði enga aðra skyldu en skylduna við sjálfan sig. En bind- indismálið er fjelagsmál. T’að er eitt af mann- kærleiksmálum mannfjelagsins. Boðorðið, er leggur mönnurn bindindismálið á hjarta, er þetta: Elska skaltu náunga þinn eins og sjálfan þig. Flestir þeirra, sem ganga í bindindi, gjöra það eigi vegna sjálfra sín. Þeir gjöra það vegna þeirra með- bræðra sinna, sem ofdrykkjan hefur fengið hald á. Þeir gjöra það af kristilegum kærleika til drykkjumannsins, vandamanna hans og mannfje- lagsins, er ofdrykkjan eitrar. Þeir ganga í bind- indi, af því að þeir vilja eigi leiða veikari bræður sína í freistni. Þeir fylgja þannig fyrirmælum heilagrar ritningar. Frelsarinn hrópar vei yfir þeim, sem hneykslupum valda. Og Páll postuli segir: oÞað er gott, hvorki að eta kjöt nje drekka vín, eða (gjöra) neitt, sem bróðir þinn steytir sig á eða hneykslast eða veiklast af« (Róm. 14, 21). Sami postuli segir einnig, þegar hann talar um fórnarkjötið: »Ef jeg með nautninni hneyksla bróður rninn, skal jeg aldrei að eilífu kjöt eta, svo jeg ekki hneyksli hann« (1. Kor. 8, 13). Kristilegur bróðurkærleikur knýr þannig hófsemdarmanninn til að ganga í bindindi. Hann gjörist bindindismaður til að efla og styrkja heill mannfjelagsins og veikari meðbræðra sinna.

x

Tjaldbúðin

Direct Links

If you want to link to this newspaper/magazine, please use these links:

Link to this newspaper/magazine: Tjaldbúðin
https://timarit.is/publication/530

Link to this issue:

Link to this page:

Link to this article:

Please do not link directly to images or PDFs on Timarit.is as such URLs may change without warning. Please use the URLs provided above for linking to the website.