Tjaldbúðin - 01.12.1900, Page 21

Tjaldbúðin - 01.12.1900, Page 21
— 19 — ásökun mundi þá nísta sálu ykkar, ásökun þessi: Við hefðum, ef til vill, getað komið í veg fyrir ógæfu þessa. Við hefðum, ef til vill, getað frelsað barn okkar, með því að ganga á undan því með góðu eptirdæmi: Með því að ganga sjálf í bind- indi og hvetja barn okkar til að gjöra það. Hófsemdarmaðurinn og hófsemdarkonan ganga í bindindi, til þess að engin slík óttaleg ásökun geti í framtíðinni níst hjörtu þeirra. Ritningin, kristilegi bróðurkærleikinn, föður- og móðurástin, almennur mannkærleiki, siðgæðis- meðvitund manna, mannúð, menntun og sagan, allt þetta er samtaka og hrópar til vor einum rómi: Stemmið stigu fyrir ofdrykkjunni, þessu átumeini mannfjelagsins. — Belsasar skal vikið úr völdum, og Sýrus komi í stað hans. — Hrindið ofdrykkjunni úr hásætinu. Látið bindindið skipa sæti hennar.

x

Tjaldbúðin

Direct Links

If you want to link to this newspaper/magazine, please use these links:

Link to this newspaper/magazine: Tjaldbúðin
https://timarit.is/publication/530

Link to this issue:

Link to this page:

Link to this article:

Please do not link directly to images or PDFs on Timarit.is as such URLs may change without warning. Please use the URLs provided above for linking to the website.