Sjómannadagsblaðið - 04.06.1950, Síða 21
EFNI M. A.:
ÚTGEFANDI
SJÓMANNADAGSRÁÐIÐ
REYKJAVÍK
13. ÁR.
Sjómannadagsblaðið
1950
4. JÚNl
Dr. Richard Bec\ prófessor:
Richard Beck: Kveðja til Sjómannadagsins.
Bíldudalur um og eftir síðustu aldamót.
Ragnar Þorsteinsson: Asmundur á Núpi, saga
um sjóhetju.
Þorvarður Björnsson: Dvalarheimili aldraðra
sjómanna á að vera í Laugarnesi — og
hvergi annarsstaðar.
Guðmundur Áshjörnsson: Ávarp til sjómanna.
Gullfoss -—■ hið nýja farþegaskip Eimskipa-
félags Islands.
Oslofjord, nýjasta skip Norðmanna.
Daghókarbrot frá keppuárunum eftir Sæotur.
Grímur Þorkelsson: Verjum dýrmætustu lands-
réttindi.
Sig. Draumland: Súlutindur, Akureyrarsaga
úr Reykjavík.
Slíkt er sjómanna, þýdd saga af hafinu.
Arngr. Fr. Bjarnason: Þröngt fyrir dyrum.
Sjómannakirkja í Selási.
Böðvar Steinþórsson: Bátaæfingar.
Þannig eru sæljónin veidd.
lþróttakeppni Sjómannadagsins og fleira.
Auk þess er fjöldi mynda.
Kveðja til sjómannadagsins
Ég harma það enn, að í ógleymanlegri ferð
minni til ættlandsins lýðveldishátíðarsumarið
söguríka urðu óviðráðanlegar ástæður því vald-
andi, að ég gat eigi verið kominn nógu snemma
til þess að vera viðstaddur hátíðahöldin á sjó-
mannadaginn. Hefði mér þó sannarlega verið það
vel að skapi, jafn mikil ítök og sá merkisdagur á
í huga mínum, gamals sjómanns, og er það því
von mín, að sú ósk mín rætist næst þegar leiðin
liggur til ættjarðarstranda.
Einlæglega fagnaði ég því, þegar til þess árlega
hátíðisdags var stofnað, og hefi, eftir föngum, fylgst
með hátíðahöldunum ár hvert í frásögnum blaða
og tímarita heiman um haf, bæði úr höfuðborg-
inni og víðar af landinu. Nýlega hefir mér einnig
gefist alveg framúrskarandi tækifæri til þess að
kynnast nánar markmiði sjómannadagsins óg þeim
atburðum, sem gerst hafa í sambandi við hann
undanfarin ár, því að í tómstundum mínum síðustu
vikurnar hefi ég verið að lesa „Sjómannadags-
blaðið“ svo að kalla frá byrjun. Er ég innilega
þakklátur hlutaðeigendum fyrir þá ágætu send-
ingu, og óska ritstjórninni, og íslenzkri sjómanna-
stétt í heild sinni, til hamingju með svo myndar-
legt málgagn og tel það í alla staði þeim til sóma.
Mér hefir hlýnað um hjartarætur við lestur
blaðsins og hann hefir vakið til lífs gamlar og
ljúfar minningar frá yngri árum, þegar ég gat
með nokkrum rétti talið mig í hópi ykkar hinna
fjölmörgu landa minna, sem sjóinn sækið, og.enn
tel ég mér einna helzt til fremdar að hafa verið í
þeim flokki.
Sjómannadagurinn! Það er hreimmikið nafn
og hressandi. I því er sjávarselta og vindhvinur,
áraglam, seglaþytur og vélagnýr, bárugjálp og
brimniður. Heiti þess dags kallar fram í huganum
skyndimyndir af hafinu í öllum blæbrigðum þess:
Heillandi, þegar „vogbárur kveða purpurasand-
inn í dvala“, ögrandi „í roki á haustin“, er „strand-
mölin grýtir landið“, svo að teknar séu að láni