Sjómannadagsblaðið - 04.06.1950, Blaðsíða 58
Sjómannakirkja á Selási
Vegleg sjómanna\ir\ja á mest ábreandi stað nálcegt Rey\javí\
er áhugamál sjötugs athajnamanns.
Jens Eyjólfsson.
Jens Eyjólfsson, byggingarmeistari hefur lagt
á margt gjörfa hönd um dagana og var um skeið
athafnamesti byggingarmeistari, sem kunnugt er.
Hefur hann staðið fyrir byggingu margra stórhýsa,
sem um langan aldur munu bera verkbragði hans
vitni. Jens stóð fyrir byggingu Landakotskirkju,
sem gerð er eftir teikningu Guðjóns Samúelsson-
ar, prófessors. Einnig byggði hann St. Josefsspít-
alan hinn nýrri. Hann byggði „Nathan og Olsens-
húsið“, sem nú er Reykjavíkur Apótek og var
mesta stórhýsi sem reist hafði verið hér á landi
þá. — Önnur stórhýsi, sem Jens hefur byggt eru
Pósthúsið, Eimskipafélagshúsið, Sambandshúsið
og Egil Jacobssenshúsið við Austurstræti, sem
hann teiknaði einnig og fleiri og fleiri, stærri og
smærri hús hefur hann byggt í Reykjavík og
annarsstaðar. Um tíma tók hann einnig að sér önn-
ur verk, en húsbyggingar, lagði tildæmis vatns-
leiðsluna frá Gvendarbrunnum að Elliðaám, í ann-
að sinni, sem vatnsleiðslan varð stækkuð.
Jens Eyjólfsson hefur fengist við húsabygging-
ar og teikningar frá 1903 og það hefði verið æði
fróðlegt að fá hann til að segja frá þróun bygg-
ingariðnaðarins á Islandi, sem hann sjálfur hefur
tekið þátt í og lagt fram sinn skerf til, er sú at-
vinnugrein tók stærstu stökkin síðastliðin 40—50
ár. En Jens vill sem minnst um sjálfan sig tala, en
þess meira um aðaláhugamál sitt, sem er Sjó-
mannakirkja á Seláshæð, landi sínu ofan við
Reykjavík.
Þá kirkju hefir Jens hugsað sér sem vegleg-
asta minnismerki um íslenzka sjómannastétt, sem
standa myndi, sem óbrotgjarn minnisvarði um sjó-
mennina íslenzku um aldir. Þegar hann ræðir um
þetta áhugamál sitt, Ijómar hann af áhuga, athafna
og framfaramannsins, sem ekki hikar, þótt hindr-
anir og erfiðleikar virðist framundan og veit að
hann mun komast yfir allar tálmanir að lokum
og bera hið góða málefni fram til sigurs.
Hugmyndina að því, að reisa ætti veglegt minn-
ismerki fyrir íslenzka sjómannastétt fékk Jens
Eyjólfsson fyrir um 30 árum. Hann keypti þá
land í Selási við Rauðavatn. Þaðan er eitt fegursta
útsýni til fjalla og út til hafs, sem til er í nágrenni
Reykjavíkur. A hæðinni hugsaði Jens sér að reist
yrði kirkja. Hæðin er 103 metrar yfir sjávarmál.
Frá turni kirkjú, sem þar yrði byggð myndi vera
hægt að beina ljósi út yfir Faxaflóa, sem lýsti
sjómönnum í höfn er þeir kæmu velktir og veður-
barðir af hafinu.
i íyrstu mun Jens hafa hugsað sér að reisa
kirkjuna að mestu fyrir eigið fé, en ótal verkefni
kölluðu að. „Þá hefði ég getað komið kirkjunni
upp, en nú er mér það um megn“, segir hann. „En
íslenzk sjómannastétt á þau ítök í hugum íslenzku
þjóðarinnar, að ég ber ekki kvíðboga fyrir því, að
ekki takist að reisa sjómannastéttinni okkar veg-
legt minnismerki með framlögum frá þjóðinni
sjálfri. Og að því ráði verður nú horfið.
Fyrir nokkrum árum hefir Jens lokið við að
gera allar teikningar að hinni fyrirhuguðu sjó-
mannakirkju. Er það að vonum mikið verk, sem
hann gefur kirkjunni ásamt landi undir bygging-
una.
Kirkjuna hefir Jens teiknað í gotneskum stíl,
en felt inn í hugmyndir úr íslenzkri náttúru og
landslagi og sameinað hinum forna kirkjubygg-
ingarstíl. Á framhlið kirkjunnar hefir Jens hugs-
að sér að verði líkan af Kristi, þar sem hann
38 SJÓMANNADAGSBLAÐIÐ