Sjómannadagsblaðið - 04.06.1972, Side 29
Suinardvalarheimili Sjómannadagsráðs að Hrauni í Grímsnesi.
Sumardvalarheimili Sjómannadagsráðs
Fyrir nokkrum árum hóf Sjó-
mannadagsráð í Reykjavík og Hafn-
arfirði rekstur sumardvalarheimil-
is fyrir börn. Var tekinn á leigu
heimavistarskólinn að Laugarlandi í
Holtum, og var heimilið rekið þar í
nokkur sumur, en þá fékkst það ekki
endurleigt að nýju, þrátt fyrir háa
leigu, né annað leiguhúsnæði fáan-
legt.
Starfsemi þessi varð strax vinsæl
og nutu nær 90 börn lengri eða
skemmri dvalar síðasta sumarið.
Munaðarlaus börn sjómanna, og þau
sem bjuggu við erfiðar heimilisað-
stæður nutu forgangsréttar að dvöl.
Ennfremur hafði mörg sjómanns-
konan möguleika á sumarleyfi með
manni sínum vegna tilveru þessa
heimilis.
Þegar svo var komið ákváðu sam-
tökin að festa kaup á jörðinni Hraun
í Grímsnesi, bæði fyrir þessa starf-
semi og til að skapa aðstöðu fyrir
orlofsheimili aðildarfélaganna.
Fyrir rúmum fjórum árum hóf
Sjómannadagsráð framkvæmdir að
Hrauni. Keyptir voru tveir stórir
íbúðarskálar af verktökum við
Sundahöfn og þeir fluttir að Hrauni.
Eru í þeim skálum 13 fjölskyldu-
herbergi eða rúmi fyrir 60—70 börn,
3 WC, böð, þvottahús, setustofa og
stórt fundar- eða leikherbergi. Þá
hefur gamalt íbúðarhús verið endur-
byggt og 9tækkað um 1/3. Þar eru
á 1. hæð borðsalur fyrir 60 manns,
edlhús, borðsalur starfsfólks,, 2 WC,
gangur og herbergi ráðskonu. A efri
hæð eru 6 herbergi og WC fyrir
starfsfólk. I kjallara, matargeymslur,
miðstöð, böð, WC og viðgerðarverk-
stæði. Útihús hafa ennfremur verið
endurnýjuð þ. á. m. mótorhús, en
þar er 38 kw. dieselrafstöð. Borað
hefur verið niður á 12 m. dýpi eftir
vatni, keypt mikið af girðingarefni,
hluti landsins kýlræstur, grafnir
skurðir og land sléttað. Ræktað land
og land í ræktun er nágrannabónda
til afnota.
Er nú að Hrauni komið ágætis
húsnæði fyrir samtökin, fyrir sumar-
dvalarheimilið yfir hásumarið, en
til sameiginegra afnota fyrir félögin
þar fyrir utan. Húsnæðið er t. d.
hentugt til ráðstefnuhalds og fyrir
fundi og þing samtakanna.
Að þessum framkvæmdum hefur
verið unnið allt til þessa og mun
heildarkostnaður nema á fimmtu
milljón króna. Þessa fjár hefur ver-
ið aflað með skyndihappdrættum,
kaffisölu á Sjómannadaginn, vinnu-
framlagi og gjöfum. Enn er samt
mikið ógert.
Ljóst er, að rafmagn verður að
fást leitt í þessa eign samtakanna,
því mikið öryggisleysi er samfara
rekstri hinnar gömlu dieselrafstöðv-
ar, sem á staðmnn er. Verður það
gert á þessu vori. Mun sá kostnað-
ur nema t. d. 850 þús. kr. Er þetta
einnig nauðsynlegt vegna fyrirhug-
aðra byggingarframkvæmda aðildar-
félaganna sjálfra, en a. m. k. fimm
félög hafa óskað eftir úthlutun land-
svæðis undir sumarhús til afnota
fyrir félagsmenn sína.
Á næsta vori og sumri eru auk
fyrirhugaðra framkvæmda ákveðið
að halda áfram vegalagningu, hefja
girðingarframkvæmdir, auk þess sem
landið verður skipulagt.
Barnaheimilið mun hefja starfsemi
sína fyrrihluta júní.
SJÓMANNADAGSBLAÐIÐ 15