Sjómannadagsblaðið

Árgangur

Sjómannadagsblaðið - 04.06.1972, Blaðsíða 48

Sjómannadagsblaðið - 04.06.1972, Blaðsíða 48
um krafti framundir kvöld, en þá gaf skipstjórinn hverjum manni góð- an skammt af rommi og klukkutíma frívakt. Þetta var fagurt tunglskins- kvöld, og hægur andvari, sem að- eins hélt seglunum þöndum. Skip- stjórinn, sem hafði verið undir þilj- um með stýrimanninum, kom nú upp úr káetu sinni og sagði: „Jæja piltar, þá verðum við að taka til aftur!“ — en þegar hann sleppti orðinu, heyrð- ist eymdaregt „mja-á“, sem gekk að mergi og beini. Við skimuðum í kringum okkur til þess að reyna að finna út hvaðan hljóðið kom, og þarna — uppi á öðrum bátnum — sáum við allt í einu draug svarta fresskattarins. Hann sat risastór og kolsvartur í tunglskininu. Hann var svo horaður, að hann hefði getað verið kattarbeinagrind, ef svarti lit- urinn hefði ekki glampað í tungls- ljósinu. Hann skaut upp kryppunni, og skottið stóð beint upp — hann virtist helmingi stærri en þegar við sáum hann síðast — og hafði það þó verið meira en nóg. Mennimir öskruðu upp af skelf- ingu og hlupu á harðaspretti aftur á skipið, þar sem þeir veltu skipstjóra og stýrimanni um koll, sem ekkert höfðu séð, og bölvuðu eða báðu til guðs. Skipstjórinn var fljótur að koma sér á fætur til þess að sjá hverju þessu gauragangur sætti, og kom þá allt í einu auga á köttinn, sem stóð kyrr á sama stað, og gaf enn frá sér átakanlegt „mja-á“. „Hver fjandinn sjálfur“, hrópaði skipstjórinn, sem var nýbúinn að innbyrða sinn groggskammt, og var hlaðinn orku og óttaleysi, meira en nokkumtíma áður. „Þama höfum við þá andskotans kattarkvikindið, bíddui bara rólegur.“ Sifðan þaut hann niður í káetu sína, kom aftur upp með tvíhlaðninginn, og skaut margsinnis að kettinum. Dick lækkaði röddina, svo að hann nánast hvíslaði. „Kötturinn gaf frá sér hræðilegt hvínandi ýlfur — og svo —“. Á þessum stað í frásögninni rétti Bill út tvo fingur, til þess að laga kveikinn á kertinu, en hönd hans skalf svo mikið, að í stað þess að laga kveikinn, slökkti hann ljósið, og við sátum allt í einu í svarta myrkri. Það er erfitt að lýsa hvaða stemning var yfir hópnum. Allir færðu órólega til fæturna, en eng- inn hreyfði sig úr sæti sínu. „Nú,“ sagði Dick, sögumaðurinn með mjög hóglátri rödd. „Hvers- vegna kveikir enginn annað ljós?“ Hlauptu upp efir öðm kerti Bill, það varst þú sem slökktir á þessu.“ „Hjaa,“ svaraði Bill, og auðheyrt var að rödd hans skalf. „Er enginn sem tók eftir hvert það vallt?“ „Það er ómögulegt að finna það í þessu myiJkri,“ sagði einhver hjá- róma rödd. „Hlauptu þá upp eftir öðru hvolp- urinn þinn, þú ert yngri en ég. „Það var ekki ég sem slökkti ljósið,“ svaraði drengurinn veiklu- legum rómi. „Upp með þig, eða ég skal mölva hvert bein í skrokknum á þér,“ taut- aði Bill til hans. Þessi ógnun varð til þess að hinn dauðskelfdi drengur þaut á fætur, og fór að fikra sig upp stigann. Hann var varla kominn nema tvö, þrjú þrep upp, þegar við heyrðum yfir höfði okkai* átakanlegt „mja-á“. Drengurinn rak upp skelfilegt ösk- ur, og féll niður mitt á milli okkar, og mölvaði glös og eyðilagði tirikrús- irnar. Aðrir öskruðu upp. Loks varð dauðaþögn, eins og í grafhvelfingu, og ég þóttist heyra fleiri en eitt hjarta berjast í brjósti. „Heyrið nú piltar,“ sagði Dick,“ hvað var þessi kjáni svona hræddur við? Reynið nú að koma með ljós, einhver ykkar.“ Þá loksins fann Bill kerið, sem hafði fallið niður við fætur hans. Hann fór að leita að eldspýtu skjálf- Heiðurinn fyrir hugkvæmni á maðurinn, sem hafði ákveðið að ganga 3 kílómetra ó dag sér til heilsuhressingar, en fann þver- veg sem stytti leiðina um helming! andi höndum þegar bátsmaðurinn kom í sama mund niður stigann með ljóslukt í hendinni og sagði: „Hvað er þetta piltar, sitjið þið hér í kol- niðamyrkri? Blessaðir takið þið luktina mína!“ Það er bezt að ég segi ykkur það strax, að bátsmaðurinn hafði staðið uppi á dekki og hlustaði á allt sem fram fór niðri, og að það var hann. sem gerði það sér til gamans, að reka upp þetta ámátlega „mja-á“, sem drengurinn varð svona hrædd- ur við. Strax þegar ljósið var komið aftur, hélt Dick áfram: „Já, hvað var ég nú að segja, jú — skipstjórinn hafði farið niður, sótt byssuna sína og skaut mörgum skotum á köttinn og svo — já kött- urinn gaf frá sér ískrandi væl og féll niður á dekkið. Skipstjórinn gekk að honum, tók hann upp á skottinu og bar hann aftur eftir til mann- anna sem stóðu í hnapp. „Hérna heimskingjar,“ sagði hann. „Hér hafið þið kattarskrattann ykk- ar. Og nú ættuð þið að geta trúað ykkar eigin augum.“ Og þama var kötturinn raunveru- lega kominn. Því sjáið þið til, þegar Jim féll í sjóinn var orðið dimmt, og við svo uppteknir að bjarga hon- um, að við sáum ekkert til kattarins. Hann hlýtur að hafa klifi-að upp eftir bardúnu og stokkið niður í lestina, meðan lúgan stóð opin. Oll bessi undarlegu hljóð, sem við vorum að heyra, hlýtur að hafa verið kvikind- ið í leit að rottum. Þið vitið hvað köttur getur lengi tórað matarlaus, svo dýrið hefur verið tiltölulega ró- legt, eftir að hafa getað satt sig á rottum. En þegar stormurinn kom, og hreyfing kom á fragtina, sem ekki hefur verið nægilega vel skorðuð — hefur hann orðið hræddur og farið að mjálma öðru hvoru. Þegar við svo opnuðum lestina til þess að gá að fragtinni, hefur hann skotizt upp • — og hann var orðinn hálfgerð beina- grind, eins og þið getið hugsað ykk- ur. Já, svona var nú þessi saga.“ 34 SJOMANNADAGSBLAÐIÐ
Blaðsíða 1
Blaðsíða 2
Blaðsíða 3
Blaðsíða 4
Blaðsíða 5
Blaðsíða 6
Blaðsíða 7
Blaðsíða 8
Blaðsíða 9
Blaðsíða 10
Blaðsíða 11
Blaðsíða 12
Blaðsíða 13
Blaðsíða 14
Blaðsíða 15
Blaðsíða 16
Blaðsíða 17
Blaðsíða 18
Blaðsíða 19
Blaðsíða 20
Blaðsíða 21
Blaðsíða 22
Blaðsíða 23
Blaðsíða 24
Blaðsíða 25
Blaðsíða 26
Blaðsíða 27
Blaðsíða 28
Blaðsíða 29
Blaðsíða 30
Blaðsíða 31
Blaðsíða 32
Blaðsíða 33
Blaðsíða 34
Blaðsíða 35
Blaðsíða 36
Blaðsíða 37
Blaðsíða 38
Blaðsíða 39
Blaðsíða 40
Blaðsíða 41
Blaðsíða 42
Blaðsíða 43
Blaðsíða 44
Blaðsíða 45
Blaðsíða 46
Blaðsíða 47
Blaðsíða 48
Blaðsíða 49
Blaðsíða 50
Blaðsíða 51
Blaðsíða 52
Blaðsíða 53
Blaðsíða 54
Blaðsíða 55
Blaðsíða 56
Blaðsíða 57
Blaðsíða 58
Blaðsíða 59
Blaðsíða 60
Blaðsíða 61
Blaðsíða 62
Blaðsíða 63
Blaðsíða 64
Blaðsíða 65
Blaðsíða 66
Blaðsíða 67
Blaðsíða 68
Blaðsíða 69
Blaðsíða 70
Blaðsíða 71
Blaðsíða 72
Blaðsíða 73
Blaðsíða 74
Blaðsíða 75
Blaðsíða 76

x

Sjómannadagsblaðið

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: Sjómannadagsblaðið
https://timarit.is/publication/557

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.