Sjómannadagsblaðið - 04.06.1972, Side 19
frá varnarliðinu á Keflavíkurflug-
velli fljúgandi yfir svæðið og stöðv-
aði í nokkurri hæð fyrir ofan sjó,
slakaði síðan niður vír til eins vík-
urmannsins sem synti í sjónum fyrir
neðan þyrluna og hífði hann úr sjón-
um upp í þyrluna. Síðan flaug þyrl-
an inn yfir mótsvæðið, lenti þar og
var almenningi til sýnis. Siglinga-
klúbbarnir Brokey og Ýmir voru
með keppni á seglbátum og þótti
fólki sérlega gaman að sjá svo mörg
þanin segl undan ágætum byr. A
slá sem reist var út frá bryggjunni
var slegizt með belgjum, sem endaði
með mikilli bræðrabyltu, og þar með
lauk dagskrá útihátíðahalda Sjó-
mannadagsins í Nauthólsvík.
Um kvöldið voru haldnir dansleik-
ir á sex stöðum í borginni þ. á. m.
unglingadansleikur. Aðalhófið var í
Súlnasal Hótel Sögu og var þar hús-
fyllir.
Að vanda kom Sjómannadagsblað-
ið út og var selt um land allt, ásamt
merki dagsins.
Sjómannadagurinn þakkar öllum
þeim, sem veittu degimun lið og
styrktu hann á einn eða annan hátt.
Hér fara á eftir úrslit í íþrótta-
greinum þeim, sem keppt var í á sjó-
mannadaginn 6. júní s.l.
Röð Róður Tími
1. Slysavamafélag íslands 3:11,0
2. M.s. Óskar Halldórsson 3:11,8
3. M.s. Valur 3:18,2
4. Sjóskátar 3:34,0
5. Eimskip 3:42,5
6. Sjóvinnuskólinn 3:53,0
7. Isbjöminn
25. m. stakkasund:
1. Ragnar Lárusson 24.4
2. Magnús Albertsson 24.6
3. Guðjón Indriðason 25.4
4. Þorsteinn Geirharðsson 27,2
5. Ámi Ásmundsson 29.1
6. Sæmundur E. Valgarðsson 31,2
25 m. björgunarsimd:
1. Þorsteinn Geirharðsson 28.6
2. Magnús Albertsson 32,5
Róðrarsveit ísbjamarins, stýrimaður Andrea Guðmundsdóttir. Þær voru fyrstar til að
tilkynna þátttöku. Þökk sé þeim og öllum öðrum er þátt tóku í hinum ýmsu greinum
dagsins.
Eins og sjá má á þessari mynd var mjótt á munum milli róðrasveita af Gísla Johnssen
(nær) og m.b. Oskari Halldórssyni (fjær). Þá kemur róðrasveit af m.b. Val (aftast).
Mikill mannfjöldi fylgdist með dagskráratriðum í Nauthólsvík.
SJOMANNADAGSBLAÐIÐ 5