Bæjarskrá Reykjavíkur - 01.01.1909, Side 66
62
Félaga skrá og stofnana.
BORGARSTJÓRI í Reykjavík, formaður bœjarstjórnar, er Páll Einars-
8on, kosinn af bæjarstjórn til 6 ára, frá 1. júlí 1908. Embættið stofnað
með lögum 22. nóv. 1907. Skrifstofa í Veltusundi 1, opin kl. 10—3.
BÓKMENTAFÉLAGIÐ, stofnað 1816 af danska málfræðingnum mikla
Rasmus Kristjan Rask, með þeim tilgangi, »að styðja og styrkja íslenzka
ungu og bókvísi, og mentun og heiður hinnar íslenzku þjóðar, bæði með
bókum og öðru, eftir því sem efni þess fremst leyfa«. Árstillag 6 kr.
Stjórn þess er tvískift, önnur deildin í Reykjavík, hin í Khöfn. Sjóður þess
er eftir síðasta reikningi rúm 3,600 kr. hjá Reykjavíkurdeild og 23,500 kr.
hjá Kaupmannahafnardeild. Auk þess á það svo mörgum tugurn þúsunda
kr. skiftir í handritum og bókaleifum (í Rvík 70,000).
Forseti Reykjavíkurdeildar er Kristján Jónsson háyfirdómari, ritari síra
Haraldur Níelsson prestaskólakennari, fóhirðir Halldór Jónsson bankagjald-
keri, bókavörður Morten Hansen barnaskólastjóri.
BÓKSALAFÉLAGIÐ í Reykjavík, stofnað 12. jan. 1889, til samvinnu
meðal bóksala landsins og stuðnings þeim atvinnuveg. Meðlimir þess eru:
Arinbjörn Sveinbjarnarson, bókbindari; Björn Jónsson, ritstj;., David Östlund,
prentsmiðjueigandi; Friðbjörn Steinsson, bóksali, Akureyri; Guðm. Gamalíelsson,
bókbindari; Jótt Ólafsson, bóksali; Sigfús Eymundsson, bóksali, form.; Sig-
urður Jónsson, bókbindari; Sigurður Kristjánsson, bóksali; Skúli Thoroddsen,
ritstj.; Þorsteinn Gíslason, ritstj. — Utsölumenn het'ir fólagið nær 50
innanlands, 2 í Vesturheimi og 1 í Kaupmannahöfn.
BRUNABÓTAGJALD af húsum og bæjum í Reykjavík er yfirleitt 1 kr.
60 a. um árið af hverjum 1000 kr. í virðingarverði þeirra, greitt í t.vennu
lagi, 80 a. hvort skifti. Vátrygging húsa er lögboðin, en að eins kostur á
henni fyrir bæi. Reykjavík er vátrygð í hinum »almenna brunabótasjóði
danskra kaupstaða«, fyrir alls um 10,123,000 kr. nú. Gjaldið til þeirra
hóðan nemur nú um 19,264 kr. Tala vátrygðra húseigna í kaupstaðnum, þar
með bæja, er nú um nál. 1200.
BRUNABÓTASJÓÐ á Reykjavlk nokkurn, frá þeim tíma, er brerinn
vátrygði sig sjálfur að nokkru leyti, til 1895. Hann nemur nú um
9,900 kr.
BRUNABÓTAVIRÐINGARMENN fyrir bæinn eru þeir trósmiðirnir