Bæjarskrá Reykjavíkur - 01.01.1909, Blaðsíða 80
76
Félaga skrá og stofuaua.
til 1881, þá var það flutt í Alþingishúsið og nafninu breytt um leið, en í
árslok 1908 í hið n/ja hús. Það á rúm 70,000 prentaðra binda og 6000
handrita — þar á meðal er hið merkilega handritasafn Jóns Sigurðssonar
(t 1879). Safnið er vátrygt fyrir 120,000 kr. Yfirbókavörður Jóu Jakobs-
son, aðstoðarbókaverðir Jón Jónsson sagnfr. og Halldór Briem. Útlán bóka
kl. I—3 hvern virkan dag.
Til ráðuneytis við bókakaup og handrita er 5 manna nefnd, landskjala-
vörður og sinn maður frá hverjum 4 hinua helztu skóla: mentaskólanum
almenna og embœttisskólunum þremur.
LANDSBÚNAÐARFÉLAGIÐ, stofnað 5. júlí 1899 >til þess að efla land-
búnað og aðra atvinnuvegi landsmanna, er standa í nánu sambaudi við hann«,
Fólagatal rúm 800, er greiða 10 kr œfilangt, eða sóu það fólög, þá til 10 ára.
Forseti Guðmundur Helgason f. próf, ritari Eiríkur Briem docent, Þórhallur
Bjarnarson biskup. Eignir alls nær 65,000 kr. (þar af húseignir 34'/2 þús.
áhöld, bækur, inuanstokksmunir 6 þús., sjóður, skuldabróf og bankaverðbróf
241/2 þús.) Skrifstofa Lækjargötu 14 sem er eign fólagsins. Opin kl. 12
—2. Félagið gefur út tímarit, Búnaðarrit, 4 hefti á ári. Hefir mjólk-
urmeðferðarkenslu á Hvítárvöllum (1. okt. til 15. maí), gróðrarstöð í Rvík
(garðyrkjukensla þar 6 vikur frá 14. mai), eftirlitsmannakeuslu nautgripa
ræktarfólaga (1. nóv. til 15. des.), veitir styrk tíl jarðyrkjufyrirtækja,
nautgriparæktarfólaga, hrossakynbótafólaga, sauðfjárkynbóta, farkenslu í mat-
reiðslu, utanfara til tiáms er snertir landbúnað o. fl.
Ráðunautar fólagsins fastir eru þeir Eittar Helgason garðyrkjufræðing-
ur, og Sigurður Sigurðsson búfræð.
LANDSFÉHIRÐIR er Landsbankinn, deild af honum, er V. Claessen
veitir forstöðu og er viðlátinn til afgreiðslu kl. 10—2 og 5—6 hvern virkan
dag, og enn fremur kl. 6—7 þrjá fyrstu daga i hverjum mánuði.
LANDSSKJALASAFN, stofnað 3. apríl 1882, frá þ. á. byrjun í Þjóð-
mentB.safninu við Hverfisg. og fyrir því landsskjalavörður dr. Jón Þorkelsson,
opið til at'nota fyrir almenning kl. 12—1 þrd., fimtud. og ld. Þar a að geynta
skjöl og skjalasöfu allra embættismanna landsins, þau sent eru 30 ára eða eldri.
LANDSSTJÓRN ÍSLANDS hefir aðsetu í Landshöfðingjahúsinu, sem
áður var, ntilli Hverfisg. og Bankastrætis. Þessir eru þar embættismeun og