Bæjarskrá Reykjavíkur - 01.01.1909, Síða 88
84
Félaga skrá og stofnana.
b) vestur og norður um land 15. apríl, 15. maí, 12. júní, 15. júlí,
17. ágúst og 20. septbr.
STÚDENTAFELAGIÐ (HiS íslenzka stúdentafólag), stofnað 14. nóv.
1871, með þeim tilgangi, »að koma á blómlegu og þjóðlegu stúdentalífi í
Reykjavlk, frœða hver annan og skemta meS fyrirlestrum og umrœSum;
glœða áhuga annarra á mentun og framförum og styðja að þeim«. Félaga-
tal 68; árstillag 3 kr.; húsbyggingarsjóður (í Söfnunarsjóði 455 kr. Form.
Jakob Möller; meðstjórnendur : Björn Þórðarson cand, jur., Olafur Daníels-
son mag., BöSvar Jónsson stúdent og Guðm. Benediktsson kand.
STYRKTARSJÓÐUR IÐNAÐARMANNA í REYKJAYÍK, stofnaður
7. apríl 1895 meS 2 þús. kr., í því skyni, »að styrkja iðnaSarmenn í Rvík,
sem og ekkjur þeirra og börn«. Nú á sjóðurinn um 4800 kr.; árstillag er
1 kr. 50 a. frá þeim, sem eru í Iðnaðarmannafólaginu, en 2 kr. frá utan-
félagsmönnum. Formaður Einar Finnsson járnsmiður.
STYRKTARSJÓÐUR SKIPSTJÓRA og stýrimanna við Faxaflóa, stofn-
aður 2. júlí 1894, til »að styrkja skipstjóra og styrimenn á þilskipum, sem
gerS eru út til fiskiveiSa í veiSistöðunum kringum Faxaflóa, svo og ekkjur
þeirra og börn«. Árleg úthlutun til ekkna og muuaðarleysingja 340 kr.
SjóSur nál. 6600 kr. Stjórn sama og fyrir Öldunui.
ST YRKTARSJ ÓÐUR VERZLUNARMANNA í REYKJAVÍK (og
sjúkrasjóður) stofnaður 24. nóv. 1867 »til að styrkja fátœka og atvinnulausa
verzlunarmenn með fjárframlagi, svo og fólitlar ekkjur og börn látinna fó-
lagsmanna, sérstaklega þeirra, er lagt hafa fé í sjóðinn að minsta kosti 5
ár samfleytt«. Fólagatal 150; árstillag 6 kr.; sjóður 35,000 kr. Formaöur
í stjórn sjóðsins er Sighv. bankastj. Bjarnason, fóhirðir Guðm. Ólsen kaupm.
STYRKTARSJÓÐUR W. FISCHERS, stofnaður 28. júní 1889 með
20,000 kr. höfuðstól, dánargjöf W. F. stórkaupmanns, »er verja skal af
vöxtunum til styrks handa ekkjum og börnum« í Reykjavík og Gullbringu-
sýslu, »er mist hafa forsjármenn sína í sjóinn«, og ungum sjómönnum ís-
lenzkum þaðan »til aS nema stýrimannafræði«. Stjórnendur ráðgjafi Islands
og forstjóri fyrv. W Fischersverzlunar í Reykjavík, nú Duusverzlun.
STÝRIMANNASKÓLI (upp frá Vesturg. 36), stofnaður með lögum 22.