Tíminn - 24.12.1978, Blaðsíða 21
ooooooooooooooooooooooooooo#
JÓLAPÓSTURINN
21
OOOOOOOOOOOOOOOOQi
O
o
o
o
o
o
o
o
o
o
o
o
o
o
o
o
o
o
o
o
o
o
o
o
o
o
o
GISTING
MORGUNVERDUR
Baðherbergi, útvarp og simi með öllum herbergjum.
* *
f l Ul RAUÐARARSTIG 18
ekl
SIMI 2 88 66
GISTIÐ HJÁ OKKUR
oocoooooooooooooo-
Jólabakstur
Sitrónukökur.
150 g. hveiti.
rifiö hýöi af einni sitrónu
50 g. sykur
150 g. smjör
Skraut: 75 g. flórsykur
1/2 msk. sitrónusafi
Hnoðið saman hveiti, sykur,
sitrónuhýði og smjör. — Kælið i
u.þ.b. 1 klst. Fletjið frekar þunnt
út mótið i 8 kringlottar kökur og
bakið á velsmurðri plötu i 8 min.
við 200 gr. C.
Kælið þær á kökugrind. —
Hrærið saman flórsykur, sitrónu-
safa og örlitið smjör. Látið ofan á
hverja köku. — Hægt er að nota
appelsinu i stað sitrónu.
Jónskökur.
100 g. smjör
100 g. sykur
1 egg
35 g. kartöflumjöl
125 g. hveiti
2 msk. kakó
1/2 tsk. lyftiduft
Hrærið smjör og sykurvel sam-
an, bætið egginu i. Sigtið hveiti,
kartöflumjöl, kakó og lyftiduft og
blandið þvi vel saman við. Látið
deigið á vel smurða plötu meö
tveim teskeiðum. Bakið kökurnar
i 6 minútur við 200 gr. C. Til-
breytni: Hægt er að láta hakk-
aðar möndlur yfir áður en kök-
umar eru bakaþar.
Möndlukökur.
50 g. möndlur
1 msk. kókosmjöl
l egg
75 g. sykur
rifið hýði af 1 appelsinu
100 g. hveiti
1/2 tsk. lyftiduft
Malið möndlumar mjög fint og
blandið þeim saman við kókos-
mjölið. Þeytið saman egg og syk-
ur þar til það verður hvitt og létt,
blandiö rifnu appelsinuhýði og
hveiti með lyftidufti i. Blandiö
öllu saman og setjið á velsmurða
plötu með tveim teskeiðum, geriö
ráð fyrir að kökurnar breiði úr
sér. Bakið kökurnar i u.þ.b. 10
min. við 250 gr. C. Takið kökurnar
varlega af plötunni og látið þær
kólna á kökugrind.
Gómsætir réttir
Lambasteik
1 dilkalæri,
78-89 g. hveiti,
krydd
smjörliki eða smjör
Þurrkið af kjötinu með rökum
klút, saltið og kryddið eftir bragði
og stráið hveiti yfir. Leggið lærið
ásamt smjörinu i ofnskúffu og
steikið i 20-25 minútur við 180 gr.
C fyrir hvert 1/2 kg. af kjöti.
Tilbreyting er að hella örlitlu af
hvitvini yfir og krydda með ýms-
um kryddjurtum, eða reyniö eitt-
hvað alveg nýtt, smyrjið lærið
með hunangi og kryddið örlitið
með rósmarin og steikið.
Blandaður kjötréttur
handa sex
1 1/2 kg. dilkakjöt (afturpartur),
skorið i teninga
3/4 bolli ananassafi
2 msk sojasósa
2 msk sitrónusafi
1 kramin hvitlauksflis, eða örlitið
af hvitlauksdufti
2 bollar ananasteningar,
fylltar olivur
Kjötbitarnir eru látnir liggja i
kryddpækli úr ananassafa, soja-
sósu, sitrónusafa og hvitlauk dá-
litla stund.
Kjöt, ananas og olivur eru
þrædd upp á teina og steikt i 10
min. A meðan er pæklinum hellt
yfir.
Teinarnir eru bornir fram með
hrisgrjónum.
Danskur lambahryggur.
1 lambahryggur
2 tesk. salt
1/4 tsk. pipar
1 hvitlaukshólf
25 g. smjör
5dl. vatn.
Hryggurinn þarf að vera þiður.
Fletbð himnunni ofan af hryggn-
um. Núið hann með salti og {xpar
og stingið smá-hvitlauksbitum
inn i vöðvann með oddhvössum
hnif. Smyrjið smjörinu jafnt yfir
allan hrygginn, leggið hann á rist
yfir ofnskúffu. Steikið við 200 gr.
C i 15-20 min. þar til hann er fal-
lega brúnaður. Hellið vatninu i
ofnskúffuna og steikið við sama
hita i' 15-20 min. og ausið yfir
hrygginn af og til. Helliö soðinu úr
ofnskúffúnni, fleytiö og sigtið en
látið hrygginn standa i ofninum
við vægan hita i 5 min. Takið
hrygginn út og látið hann standa i
5 min. áður en hann er skorinn
niður. Berið fram með bökuðum
kartöflum.
Sambandsskipin eru í stöðugum siglingum til meginlands
Evrópu og til Ameríku.
Upplýsingar um umboðsmenn vora erlendis veittar
á skrifstofu vorri og í síma 28200.
M/s JOKULFELL
M/s DÍSARFELL
M/s HELGAFELL
M/s MÆLIFELL
M/s SKAFTAFELL
M/s HVASSAFELL
M/s STAPAFELL
M/s LITLAFELL
SKIPADEILD SAMBANDSINS