Eimreiðin - 01.03.1922, Blaðsíða 28
92
PRÓFIÐ
eimreiðin
»Þessu gæti eg best trúað«, sagði hr. Hunter.
»0g svo skal eg segja þér meira, hr. Hunter«, sagði Sig-
urður, og stálgráu augun hans urðu nokkuð dökk. »Eg hefi
í dag, eftir langa og alvarlega ígrundun, komist að þeirri
kynlegu og næsta ótrúlegu niðurstöðu, að maður sá, sem
nefnir sig ]óta Kappa, sé enginn annar en — þú«.
»Vissulega nokkuð einkennileg niðurstaða«, sagði hr. Hunter
og brosti vingjarnlega framan í Sigurð.
Eg horfði undrandi á Sigurð og hr. Hunter á víxl, þeir virt-
ust skilja hvorn annan, en eg skildi hvorugan. Mér fanst hvort-
tveggja alveg óskiljanlegt: dirfska Sigurðar og stiHing hr. Hunters-
Eg vék nú talinu að blómarækt. Ræddi hr. Hunter um það
efni fram eftir kvöldinu og virtist leika á als oddi. Hann
kvaddi okkur svo með mestu alúð, tók þétt í hönd Sigurðar,
og gekk út úr húsinu með bros á vör.
Næsta dag (sem var laugardagur) kom unglingspiltur (hvítur)
um nónbilið með bréf í bláu umslagi til Sigurðar. Og var
bréfið orðað þannig:
Vancouver, B. C. 28. sept. 1912.
Herra Sigurður Sigurðsson!
Hér með tilkynni eg þér, að leyni/ögreglumannafélagið N. N-
hefir ákvarðað að taka þig í þjónustu sína, ef þú vilt gefa
kost á þér. Launin verða $ 20 (tuttugu dollarar) um vikuna
fyrsta árið. — Þú hefir staðist próf það, sem heimtað er af
nýsveinum félagsins, og gleður það mig að geta sagt þér, að
þú hefir lokið því prófi með ágætis einkunn.
Með virðingu þinn,
Ernest Hunter.
(Form. leynilögregtumannafél. N. N. í Vanc. B. C.)‘ ■
Eg skal geta þess að síðustu, að Sigurður þá boð herra
Hunters með mikilli ánægju. Var Sigurður í þjónustu félagsins
í full þrjú ár, og fór svo austur aftur til Manitoba. En meðart
hann var í þjónustu félagsins, reyndist herra Hunter honum
eins og besti bróðir.