Ægir

Ukioqatigiit

Ægir - 01.01.1909, Qupperneq 14

Ægir - 01.01.1909, Qupperneq 14
66 ÆGI R. reynslan heflr kent. Nú á síðari timum hafa mótorar verið brúkaðir i björgun- arbáta. En þeir hafa þó ekki aislaðar reynst sem skyldi. Bátarnir verða mjög þungir, og ekki er þorandi annað en að hafa einnig árar. Árið 1901 álti breska félagið ‘280 björgunarbáta með fram ströndum Bret- lands og írlands. Ennfremur hefir félagið gengist fyrir því, að fiskimenn hefðu góða háta og veðurvita, er þeir hafa fengið með nið- ursettu verði. Árið 1904 hafði félagið aflað fiskimönnum 4,600 loftþingdarmæla. Þar sem starfsvið félagsins er svo viðtækt, verður það að haía mikið fé. Tekjur þess voru 1907, 3,221,244 kr. Síðan 1824 hafa björgunarbátar fé- lagsins bjargað 31,000 mannslífum. Þar fyrir utan hefir félagið borgað verðlaun fyrir björgun 16,345 skipbrotsmanna. Þannig hefir félagið beint og óbeint ann- ast björgun 47,345 skipbrotsmanna til ársins 1907. Þettaárfóru bátar félagsins 370 björgunarferðir og burgu 932 mönn- um og 43 skipum og bátum. Auk björgunarbáta eru eldflugutæki notuð mjög mikið við strendur Bretlands, til björgunar skipbrotsmönnum. Með þessu móti er skotið mjórri línu yfir á og yfir uni það skip, sem í háskanum er. Skipshöfnin togar í lín- una en í hana er hnýlt sterkum kaðli, sem er festur á landi uppi og því næst á skipinu, en björgunarstóll er á taug- inni og honum rent fram og aftur frá landi til skips og skipi til lands. Það eru nútilum 300 eldílugustöðv- ar og Boord of Trade kostar þær, en the • Coast Guont starfrækir þær, með sjálfboðaliðum. Árið 1903 voru þessi tæki notuð 29 sinnum en 236 mannslífum varð bjarg- að. Siðan 1870 hafa 8,200 mönnum ver- ið bjargað á þenna hátt. En þó að þess- um 297 björgunarbátastöðvum og öllum flugeldastöðvunum verði svo mikið ágengt farast þó c. 500 menn árlega við strend- ur Bretlands og írlands. Félagið hvetur þessvegna enn á ný almenning til þess að ella og styrkja félagið sem mest má verða, með ráð og dáð. Botnvörpuskipið „Jón Forseti". Skip þetta sem er eign félagsins »Allianse« og sem áður hefir verið minst á hér í blaðinu, hefir árið sem leið, feng- ið meiri afla en dæmi eru til um nokk- urt islenzkt skip fyr eða síðar. Félagið sem á skipið og lét bjrggja það í Englandi, er ef svo má að orði kveða einvalalið: 5 skipstjórar, dugn- aðar- og fyrirmyndarmenn i sinni slöðu og forstöðumaður félagsins P. J. Th. & Co., kaupm. Thor Jensen, sem má full- yrða að sé einhver hinn atorkusamasti allra ísl. kaupmanna. Yfirmaður skipsins er Halldór Þor- steinsson, Kolbeinn bróðir hans stýri- maður, ágætir atlamenn, og er ekki sann- ara hægt að segja en það, að hér fara saman allabrögð og hagnýting' aílans í landi og að gjöra úr honum peninga. Yertíðaafli »Jóns Forseta« var í fyrra 1500 skpd. af þurrum fiski, og þar af 1100 skpd þorskur, eða 75 þúsund króna virði. Sildarafli í fyrra 19000 kr. Nýr fiskur seldur á árinu fyrir 5000 kr. Til Englands fór skipið á árinu 3 íerðir og seldi fyrir það sem hér segir: 1. ferð 27/io fisk fyrir .... 730 £ 2. — 26/n — — .... 526 £ 3. — 9/i — — . . . , 970 £ Samtats 2226 £ eða 40,068 kr.

x

Ægir

Direct Links

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Ægir
https://timarit.is/publication/584

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.