Ægir

Árgangur

Ægir - 01.03.1912, Síða 7

Ægir - 01.03.1912, Síða 7
Æ G I R. 31 vikuna kom á land yfir 50.000 mál1) og meðalverð var þá viku um 10 kr. málið, svo að þá viku hefur fiskast fyrir um 500000 kr. Þeir bátar, er mestöfluðu, fengu frá 2000—2700 mál yíir allan timann. Meðalverð á síldinni var um 8 kr., svo þeir hafa fiskað fyrir frá 16000—21600 kr. Verðið á síldinni er mjög mismun- andi. í haust voru fyrstu síldarmálin seld fyrir 20 kr., en liún lækkaði fljótt. Það vildi Ifka svo óheppilega til fyrir síldar- seljendur, að fyrsta síldin kom á sunnu- degi. Fóllc er þá dýrara, svo kaupandi getur ekki gelið eins mikið fyrir hana þann dag sem aðra daga. Sunnudaginn er fyrsta sildin kom að nokkrum mun, var hún held- ur ekki meir en 12 kr. fyrir málið. Næstu daga á eftir lækkaði hún enn meira, var þá 8—10 kr., en því verði hjelt hún nokkurnveginn til jóla. Eftir jólin lækk- aði hún enn nú meira, komst þá niður i 4 kr., en um miðjan janúar, er bátarnir fækkuðu, hækkaði hún aftur upp í 6—9 kr. Síldin er næstum eingöngu keypt til útflutnings. Mest af henni er saltað og sent til Sviþjóðar, en nokkuð af henni er isað og sent til Hamborgar og Hull. Þeir, er ísuðu, biðu mikinn skaða á fyrstu síld- inni, er þeir sendu, en munu hafa náð sjer niðri síðar. Aftur þeir, er söltuðu, imynda jeg mjer að hafi borið meira úr býtum, því mjög lítil sild var á markaðinum, er síldarfiskiveiðarnar byrjuðu. Þá var t. d. íslandssild alveg ófáanleg. Mikill kostnaður fylgir þessari veiði. Fyrst er það, að bátarnir verða að hafa mikil net og svo fylgir henni alveg óheyri- legt netatap. Stærslu bátarnir reka með alt að 70 netum og 6vo niður eftir, eftir stærð bátanna. Netin eru 60—70 álna löng, 250—300 möskva djúp og kosta um 50—60 kr. Strengurinn er eins og gefur að 1) 1 mál er 150 lítrar. skilja mjög mismunandi bæði eftir slærð bátanna og hvort nota skal hann næst eða fjærst bátnum. Strengur er jeg sá var 7 þumlungar í þvermál og svo nota þeir kapal þar niður eftir. Um verðið get jeg ekki sagt neitt með vissu, en eftir því sem jeg komst næst hafa stærstu bátarnir hafl streng er kostaði um 3500 kr. Tvo belgi eða kagga verður að hafa á annaðhvort net, eða belst hvert, og hver belgur koslar um 3,50 kr. Svo kemur kaðall í uppihöld á netunum; svo menn geta sjeð, að á stærstu bátunum er reka með allt að 70 netum, kostar netalengdin allt að 8000 kr. Nú kemur það oft fyrir, að bátarnir missa altsaman, svo að vel útbúinn bátur verður helst að hafa tvær netalengdir tilbúnar, að minsta kosti net og belgi. Meira og minna af strengnum fæst oftast aftur. Sem eðli- legt er, hefur útvegsm. hjer vaxið þetta netatjón í augum, svo nú tala þeir mikið um að stofna ábyrgðarsjóð fyrir sildarnet. Fiskimiðin eru 2—3 milur frá landi. Bezt er að vera búinn að koma netunum i sjóinn áður en dagur er af lofti, þvi síld- in gengur mest i í ljósaskiftunum, en oft eru netin sett í sjóinn alla nóttina, et seint hefur gengið með að fá losað, eða mikið er um síld. Netunum er sökt 15 faðma niður í sjóinn. Á hverjum 2—3 tíma fresti eru dregin 1—3 net, til að vita hvort sild er komin í þau. Ef ekki eru hafðar ná- kvæmar gælur á netunum er liætt við, að þau söltkvi, — þvi síldarmergðin er mikil — og þá stendur strengurinn upp og niður, er þá enginn hægðarleikur að ná þeim upp og mjög sjaldan það heppnist án þess að missa meira eða minna af netunum, já, jafnvel alt ef hittist á slæmt veður. Þrátt fyrir alla varúð er notuð var, mistu h. u. b. allir bátarnir meira og minna af netum sínum. Nokkrir bátar mistu tvær neta- lengdir. Þegar hvalur er með síldinni, eins og átti sjer stað í vetur, er mjög vont

x

Ægir

Beinleiðis leinki

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Ægir
https://timarit.is/publication/584

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.