Ægir

Árgangur

Ægir - 01.03.1912, Blaðsíða 12

Ægir - 01.03.1912, Blaðsíða 12
Æ G I R . 36. Heima. Manntjón og slysfarir á sjó. Talið er það fullvíst, að þilskipið »Geir«, eign Edinborgarverslunar, hafi far- ist. Liklegt að þessi stórfeldi og hörmulegi viðburður haíi gerst í ofviðrinu mikla 23. febrúar. Skipið lagði út með fyrstu skipum fyrir miðjan f. m., og aldrei komið að landi siðan, svo til haíi spurst. Skipstjóri var Sigurður Þórðarson ættaður úr Kjósinni. Þaulvanur sjómaður var hann, hafði 12 ár verið skipstjóri, hinn vaskasti maður og góður drengur. Á skipinu voru4 27 menn, sem nú liafa allir látið líf sitt. Flestir skipverja voru úr Hafnarfirði. Mennirnir voru: 1. Sigurður Þórðarson, skipstjóri, lætur eflir sig ekkju og 4 börn í ómegð. 2. Halldór Jónsson stýrimaður, ókvæntur. Heilsulaus faðir, ekkjumaður með 4 börn ófermd. 3. Sverrir Guðmundsson frá Harðbaia í Kjós. 4. Guðjón Magnússon, ókvæntur, aðsloð ujjpgefins föður og heilsulausrar móður. 5. Guðmundur Árnason frá Bíldudal í Arnarfirði. 6. Jón Jónsson frá Skógum í Arnarfirði. 7. Jóhann Guðmundsson lír Arnarfirði. 8. Ólafur Sigurðsson frá Langholli i Flóa. í). Magnús Pétursson í Reykjavík, lætur eftir sig ekkju og ungbarn; ennfremur fósturbarn og aldraðan tengdaföður. 10. Kristján Einarsson úr Hafnarfirði, læt- ur eftir sig ekkju og 3—4 ung börn. 11. Þórður Ingimundarson frá Tjörn á Vatnsleysuströnd, lætur eftir sig ekkju og barn. 12. Ólafur Nikulásson úr Hafnarfirði, læt- ur eftir sig ekkju og 2 börn í ómegð. 13. Guttormur Einarsson úr Hafnarfirði, lætur eftir sig ekkju og 2 börn. 14. Guðni Benediktsson, lætur eftir sig ekkju og 3—4 ung börn. 15. Þorvaldur Jóhannsson úr Dýrafirði, lausamaður, lætur eftir sig móður, sem hann styrkti. 16. Þorkell Guðmundsson úr Hafnarfirði, lælur eftir sig ekkju og 3 börn ung. 17. Böðvar Jónsson úr Hafnarfirði og 18. Halldór Böðvarsson, sonur hans. Þeir önnuðust dóttur Böðvars, bláfátæka ekkju, með 3 ungbörnum hennar. 10. Helgi Árnason frá Eiði á Seltjarnarnesi, lætur eftir sig heilsutæpa konu, blindan tengdaföður á áttræðisaldri og 2 syni i ómegð. 20. Sólon Einarsson úr Hafnarfirði, lætur eftir sig ekkju og 2—3 börn. 21. Ingvar Pétursson úr Hafnarfirði, lætur efiir sig ekkju og 2—3 börn kornung. 22. Jóhannes Jóhannesson úr Hafnarfirði, annar af 2 sonum roskinna foreldra, er eiga barn i ómegð. 23. Marteinn Guðlaugsson úr Hafnarfirði, lætur eftir sig ekkju með barni. 24. Sigurður Jónasson bóndi i Ási í Garða- hreppi, lætur eftir kig ekkju og 8 eða 9 börn í ómegð og háaldrað vanda- bundið gamalmenni. 25. Magnús Sigurgeirsson vinnumaður úr Hafnarfirði. 26. Vilmundur Jónasson úr Hafnarfirðí, einkabarn og einkastoð uppgefins föð- ur og alheilsulausrar móður. 27. Guðjón Jónsson lausam. frá Bildudal. Eftir eru um 60 börn munaðarlaus, 14 eða 15 ekkjur og 9 gamalmenni, sem þessir látnu rnenn veitlu lífsuppeldi og lifsviðurhald. Hjer bíður eftir svo mikil sorg og eymd, að skjótra aðgerða þarf við. Hjer hlýtur mörg höndin að vinna Ijett verk að hjálpa hinum bágstöddu ekkjum, munaðarleysingjum og gamal- mennum. Það kvað og vera tekið að efna til sainskota fyrir atbeina Jens prófasts í Görðum, Magnúsar sýslumanns Jónssonar

x

Ægir

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: Ægir
https://timarit.is/publication/584

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.