Ægir

Árgangur

Ægir - 01.03.1912, Blaðsíða 15

Ægir - 01.03.1912, Blaðsíða 15
ÆGIR. 39 (Sjáland«) er mótorskip, brúkar jarðolíu í stað kola. Það er 370 feta langt, 53 fela breitt, 30 feta djúpt, 7000 tonn nettó. í því eru 2 dicselmótorar (kendir við þýsk- an mann Diesel), sem hvor hefur 1250 hestöfl, 2 hjálparvjelar, sömuleiðis diesel- inótorar, hvor 250 hestöfl. Skipið er nú á leið til Austur-Asíu og hefur reynst mjög vel. Þegar það kom til London, skoðaði flotamálaráðherra Breta, Churchill, og 6 aðmírálar skipið, og dáð- ust að. Líkar voru viðtökurnar í Ant- werpen i Belgiu. — Það hefur enga reykháfa. Vjelarnar eru langtum fyrir- ferðarminni en kolavjelar, láta enn betur að stjórn, en færri menn þarf til vjela- gæslu, og rúm það, sem kolaforðinn ann- ars þyrfti, sparast. Olían er liöfð í segl- festudúnkum. Þelta skip getur verið leng- ur í hafi en kolaskip, því að það getur haft með sjer olíu fyrir langtum lengri tíma, en kolaskip geta haft kol. Talið er, að mótorskip á stærð við »Selandia« spari um 200,000 kr. á ári á móts við kolaskip. Ef vonir þær, sein menrt gera sjer, um þessi dieselvjelaskip, rætast í öllum greinum, er fyrir höndum stórfeld bylting í öllum siglingum, sem hefur meiri alleið- ingar í för með sjer, en sjá má fyrir nú, einnig fyrir oss íslendinga. Austur-AsíuQelagið hefur nú í smíð- um 2 samskonar skip, annað hjá Búr- mester & Wain, hitt í Skotlandi. Þau eiga að heita »Fionia« (Fjón) og »Jut- landia« (Jótland). í Þýskalandi hefir verið nú á síðuslu árum unnið mjög að því að efla fisknej'tslu í landinu. Fyrir því hefur gengist einkum »Der De- utsche Seefischereiverein« og nýtur til þess stjnks af rikisfje. Þegar fjárlögin voru til umræðu á þinginu 1911, hrósuðu þingmenn af öllum flokkum stjórninni fyrir þann á- huga, sem hún hefði á málinu, og einkum þó herstjórninni fyrir það, hve mjög hún efldi fiskiveiðaviðleitni Þjóðverja með því að lögbjóða fiskfæðu til matar handa hern- um. Sveitamenn þar í landi hafa alt fram á síðustu ár haft mjög litlar mætur á sjó- fangi til matar. En kjötverð hefur á sið- ari árum verið mjög hált þar í landi, og hefur það orðið til þess, að fólk í bæjum og akuryrkjumenn til sveita hafa farið að leggja sig eftir fiski lil matar, og svo hafa járnbrautatakstar verið lækkaðir og flutn- ingurinn frá sjávarsíðunni til sveitanna aukist. í Berlín leggur borgarsljórnin alt kapp á að greiða fyrir fisksölunni, og þar voru árið 1911 settir á slofn um 70 fisk- sölustaðir á koslnað borgarsjóðs. Þar er eftirsóknin eftir sjófiski svo mikil, að langtum færri fá en vilja. Það má og telja víst, að sjófiskneylsla fari vax- andi hröðum fetum lengra inni i landi, ef kjötverðið helst jafnhátt sem nú. Norð- menn, Skotar, Sviar og Danir selja meira og meira af flski til Þýskalandi með ári hverju Eru það bætt samgöngufæri, sem einkum hafa greitt fyrir því. Á hinn bóg- inn kvarta nú mjög þeir, er stundað hafa bátafiski i Austursjónum fram með strönd- um Þýskalands, Vestur-Pommern og Rygen, yfir því, hve mikið berst að af fiski frá Norðurlöndum, og heimta innflutningstoll lagðan á nýjan fisk. Kjötbændur eru honum hlyntir, en þó er ekki mögulegt að koma honum í framkvæmd fyr en 1. jan. 1918, þvi að þangað til gilda verslunarsamning- ar, sem banna fisktoll. En þó er ekki lík- legt, að fisktollur komisl á, því Þjóðverjar veiða ekki nándanærri nóg handa sjálfum sjer, og elcki er heldur innflutt svo mikið, sem þarf.

x

Ægir

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: Ægir
https://timarit.is/publication/584

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.