Ægir

Árgangur

Ægir - 01.02.1914, Blaðsíða 1

Ægir - 01.02.1914, Blaðsíða 1
7. árg, / r Arsfundur Fiskifjelags Islands. Fiskifjelag íslands hjelt ársfund sinn 3. þ. m. í húsi K. F. U. M. í Rvik. Á fund- inum munu hafa verið um 90 manns; það var sjálegur hópur, en offáir sjó- menn sjást á þessum fundum Fiskifje- lagsins, eins og áður hefir verið drepið á og er það illa farið. 7 fulltrúar frá deildum út um land, voru mættir á fundinum; sýnir slikt mik- inn áhuga, að leggja á sig örðugt ferða- lag um hávetur, til þess að geta mætt, enda þakkaði forseti fjelagsins Matthías þórðarson þeim fyrir komuna og þakk- læti áttu þeir skilið. Forseti setti þvi næst fundinn, Krsti því yfir, að hann væri löglega boðaður og dagskrá símuð til deildanna. Fundar- stjóri var kosinn Hannes Hafliðason og ritari Sveinbjörn Egilsson. Forseti skýrði síðan ýtarlega frá störf- um stjórnarinnar á hinu liðna ári og gerði grein fyrir högum fjelagsins. Hann gat þess einnig i ræðu sinni, að hinir 2 erindsrekar fjelagsins væru komnir, en óvist hve nær erindrekastarfið erlendis kæmist á, því undirtektir til samskota hefðu verið daufar. Ró komu fram lof- orð um styrk frá Fiskideildum, sem hann las upp. Staðan er þvi óveitt enn og umsóknarfrestur lengdur um óákveðinn tíma. . 2. Ísvarnargarð fyrir Ölfusárósi fjekk fje- lagið Jón verkfræðing þorláksson til að gera áætlum um; átti þessi garður að varna ísreki úr ánni. Jón Þorláksson áætlaði að það mundi kosta 49 þúsund krónur og því ókleyft verk nú sem stendur. Mótorbátahöfn í Þorlákshöfn var hr. Jóni Þorlákssyni einnig falið að gera áætlun um; er sú áætlun hans eigi fullgerð og verður eigi fyr en að vori komanda. Aflaskýrslur hefir stjórnin lagt drög fyrir að sendar verði á skrifstofu fjelagsins úr öllum veiðistöðum landsins, er svo til ætlast, að þessar skýrslur komi mánað- arlega á skrifstofuna og verða þær svo festar upp í bænum, þar sem allir geta lesið þær. Skýrslur um verðlag á íslenskum afurð- um, hefir hún einnig gert ráðstafanir til að fá hálfsmánaðarlega, frá þeim stöðum erlendis, þar sem fiskiafurðir héðan eru seldar; verða þær skýrslur einnig festar upp og símaðar út um land. Tvær Fiskideildir eru nýstofnaðar, önn- ur í Vestmanneyjum, fjelagsmenn þar 56; hin í Vogum, fjelagsmenn 14; eru því deildir alls 15. Fjölmennust er Fiskideildin »Framtíð- in« á Eyrarbakka, hún telur um 220 fje- lagsmenn, enda munaði um á fundinum er fulltrúi hennar greiddi atkvæði, því hvert atkvæði hans gilti jafnt og 22 hefðu greitt. ÆGIR MÁNAÐARRIT FISKIFJELAGS ÍSLANDS Reykjavik. Febrúar 1914. Nr

x

Ægir

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: Ægir
https://timarit.is/publication/584

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.