Ægir

Árgangur

Ægir - 01.02.1914, Blaðsíða 4

Ægir - 01.02.1914, Blaðsíða 4
16 ÆGIR fram úr öðrum i þekkingu á öllu því, er að atvinnuvegi þeirra lýtur, en því fer nú ver, að það er ekki svo, og er það því að kenna, hve litið þeir sjá fyrir sjer af öllu þvi, er framför snertir, menn koma sjer ekki að því að spvrja sig fyrir og margt annað tálmar framförum hjer. Til framfara má telja að hafa fleytur sinar vel úr garði gerðar, bæði að útliti og að öll áhöld fylgi, sem minkað getur hæltuna á sjónum. Fallegir bátar, vel málaðir með snotrum seglaútbúnaði, bera vott um þrifnað og honum fylgir fleira gott og væru því þjóðinni allri til sóma. Þegur sjera Oddur Gíslason ferð- aðist um landið og gaf sinar góðu bend- ingar um bjargráð, þá var hann að vinna sjómannastjettinni hið mesla gagn, en hvernig var því tekið. Hann skoraði á sjómenn að brúka lýsi, sem meðal, til þess að lægja sjóinn; sumir fóru að hans ráðum en sumir ekki og var ekki laust við að sumir gerðu gys að honum fvrir þetta. Hans ráð voru því eigi annað, en það sem hann vissi að aðrar þjóðir not- udu og kom hvervetna að góðu haldi. Síðast i fyrra sjest eitt hið besta dæmi þess, að hann fór með engan hjegóma; það var þegar hið stóra skip »Volturno« brann úti á reginhafi; björgun á fólki varð fyrst framkvæmd, þegar skip eitt var komið fram á sjónarsviðið, svo vel byrgt, að það gat dælað i sjóinn 50 smálestum af olíu, sem það dreyfði í kringum hið brennandi skip, í lygnunni sem af þessu varð, komusl bátar að skip- inu og björguðu farþegum og skipshöfn. Það er ekki hægt að dæma um, hvort sjera Oddur hefir gert mönnum örðugt fyrir, með þvi að skora á þá, að láta smiða bárufleyga og annað er hann ætl- ast til, að fjdgi skipum, en svo mikið er víst, að hefðu menn alment trúað á þetta ráð, mundu bárufleygar vera víðar, en þeir eru nú. Þegar verslunarráðið í Dunkerque á Frakklandi hjet verðlaunum árið 1889, til þess að fá órækar sannanir fyrir nyt- semi olíu á sjó, þá voru keppinautarnir um verðlaunin, skipstjórarnir á hinum mörgu fiskiskipum, sem árlega fara til íslands snemma árs og hreppa hin verstu veður. Hæstu verðlaunin voru 720 kr. og þau fjekk skipstjórinn á skonnortu- skipinu »Perle« fyrir eftirfylgjandi úr- lausn: í ofsaroki, þegar við ekkert varð ráðið, voru tveir pokar fyltir upp tánum köðlum, tuskum og olíu, hengdir sitt á hvort borð um miðju skipsins; nálega í sama augnabliki kyrði sjóinn svo, að úr því gekk engin alda yfir skipið, jafnvel þótt undirsjór hjeldist. Nálægt 1 Va pott- ur af oliu nægði að kyrra sjóinn í 2 stundir. Þyki mönnum þessi aðferð einfaldari, þá er að viðbafa hana, en umfram alt farið ekki lýsislausir í róður. Sá styrkur er sjera Oddur fjekk til ferðalaga sinna, mun að mestu hafa komið fra útlöndum. Hann var því að vinna islenskum sjómönnum gagn, en borgunin fyrir það kom frá útlöndum og rit hans hafa til skamms tíma sjest not- uð sem umbúðapappir í húðum. Þann- ig litur dæmið út, en ekki er það fallegt. Eitt af beim áhöldum, sem algerlega vant- ar á báta hjer, er það, er kalla má rek- dufl; á dönsku heitir það Drivanker, á ensku Seaanchor. Ef lil vill þekkir ein- hver þessi orð og áhaldið, þá er það gott. Þetta áhald fylgir öllum björgunarhátum og má hæglega fá að athuga það á gufu- skipum, sem bingað koma, ef menn vilja sinna þessu og skilja ekki lýsingu þá er hjer fer á eftir. Rekdufl getur verið með ýmsu lagi og kalla má alt rekduíl, sem gerir sama

x

Ægir

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: Ægir
https://timarit.is/publication/584

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.