Ægir - 01.02.1914, Side 2
í Fiskideild Reykjavikur eru 112 manns,
þar af 58 æfifjelagar.
Steinoliumálið hefir stjórnin haft til
meðferðar og skýrði forseti frá horfum
i þvi.
Um verðlaun fyrir björgun úr sjávarháska
var rætt, og voru allir á eitt mál sáltir,
að slík verðlaun bæri að veita; voru
skiftar skoðanir manna um, hvernig þau
verðlaun ættu að vera, hvort heldur verð-
launapeningur, peningar eða einhverjir
gripir eða munir, svo sem sjónaukar,
úr o. fl., sem tíðkast viðast erlendis, að
gefið er að launum fyrir björgun. Ýms-
ar tillögur voru bornar upp þessu við-
víkjandi, tillaga yfirdómslögmanns Magn-
úsar Sigurðssonar samþykt í einu hljóði:
vFundurinn skorar á sljórn Fiski/jelagsins
að undirbúa málið sem best, og koma fram með
tillögu um pað og leggja fgrir aðalfund«.
Um fiskimat var þessu næst rætt. Fram-
sögumaður Matth. Þórðarson, vildi láta
skipa nefnd til að athuga þetta mál, og
vinda bráðan bug að því, að gera reglu-
gerð, sem svo væri lögð fyrir næsta þing;
bar framsögumaður upp þá tillögu, að
kosin væri 5 manna nefnd til að athuga
fiskimatslögin, og var sú tillaga samþykt
og kosnir í nefndina:
Þorsteinn Guðmundsson,
Geir Sigurðsson,
Jón Ólafsson,
Jón Magnússon,
Hannes Hafliðason.
Um hlutafjelög var hið fjórða mál á
dagskrá. Framsögumaður (Matth. Þórð-
arson) vildi kjósa nefnd í það mál, og
skýrði frá ástæðum, hvers vegna það
væri borið upp fyrir fundinn; voru menn
samdóma, að hjer þyrfti ýmislegt að
athuga og að brýna nauðsyn bæri til, að
lög væru gefin út þessu áhrærandi.
Tillaga borinn upp að kjósa 5 manna
nefnd til að undirbúa málið og leggja
það fyrir alþingi, hún samþykt og hlutu
þessir kosningu:
Alþingism. Jón Ólafsson,
Prófessor Lárus Bjarnason,
Bankastjóri Björn Sigurðsson,
Yfirdómslögm. Magnús Sigurðsson,
Yfirdómslögm. Gisli Sveinsson.
Um stjórn á skipum var tekið til með-
ferðar, og snerust umræður helst að bát-
um og kom flestum saman um, að stjórn
á þeim væri í mörgu ábótavant. Var
samþykt að kjósa nefnd í það mál, til
þess að athuga yfirleitt stjórn á islensk-
um skipum og semja ákveðnar reglur
þar að lútandi, og hlutu þessir kosningu:
Skólastjóri Páll Halldórsson,
Kennari Magnús Magnússon,
Slippformaður Ellingsen,
Leiðsögum. Þorsteinn Sveinsson,
Skipstjóri Geir Sigurðsson.
Skipströnd hjer við land var hið siðasta
mál á dagskrá, er auglýst hafði verið.
Framsögumaður Matth. Þórðarson talaði
um hve mikið sje látið fara í sjóinn
þegar skip stranda, siðan björgunarskip-
in »Svafa« og »Geir« komu hingað til
landsins, ef ekki tekst að koma skip-
um út; hann vitdi láta skipströnd vera
landslögum háð, en ekki spekulanta.
Erindsreki Fiskifjelagsins, Matth.ólafsson,
gaf þá skýringu að lög, er vörðuðu þetta
mál, væru hjá stjórninni og bar fram
svo hljóðandi tillögu:
»/ pví trausli að landsstjórnin taki tillit til
pingsályktunartiltögu síðasta alpingis um skip-
strönd, tekur fundurinn fgrir nœsta mál á dag-
skráa.
Tillagan samþykt.
Um steinolíumálið urðu ýmsar um-