Ægir - 01.02.1914, Síða 9
ÆGIR
21
v
Skipið R. nr. 111 »Hafsteinn« eigandi
Duusverslun, er sama skip og »Karo-
Iína«, sem er sett m\ 19 og er eign Run-
ólfs ólafssonar.
»Kópanesið« G. K. nr. 10, fór upp í
Keilisnes ásamt »Coot« G. K. nr. 310.
Það mun hafa verið skömmu eftir n)7ár
1908. Munlítið vera eftir afþeim skipum.
Ekki munum vjer betur, en þegar
Knútskot við Gufunes var bygt upp, væri
töluvert af braki úr »Sjöstjörnunni« G.
Iv. nr. 14, eigandi Þórður læknir Thor-
oddsen, brúkað í þá byggingu, enda er
það sterkt hús. Hafi því einhver erindi
um borð í »Sjöstjörnuna« þá er að fara
að Knútskoti.
Svo koma systurnar »Ane Mathilde«
S. H. nr. 6 og »Guðrún« S. H. nr. 10.
»Ane Mathilde« hefir í mörg ár legið á
Eiðsgranda og mun vera orðin jarðföst,
en »Guðrún« er við hlið hennar, en vart
jarðföst enn. Þessi skip veit vist enginn
upp á vist hver á.
»Den Lille« S. H. nr. 7, er talinn eign
Einars Markússonar, sömuleiðis »Ane
Matthilde«, en hann mun ekki hafa átt
þessi skip i nokkur ár. »Den Lille« er
undir sömu fordæmingu og »Ane Malth.«
og »Guðrún«; hann liggur í tjörn við
Gufunes og mun vart komast á flot aft-
ur ettir hirðingu að dæma.
Ekki vitum vjer hvar »Yaldemar« G.
K. nr. 20 er niður kominn, en um þessi
upptöldu skip, er það áreiðanlega vist,
að þau geta eigi heitið fiskiskip Islands
lengur og ættu að strykast út úrAlman-
akinu ásamt fleiri skipum, sem þar eru
sett.
Það lítur ekki út fyrir, að peninga-
vandræði sjeu í þvi landi, þar sem heil
hafskip eru látin grotna niður af van-
hirðingu.
Vjer gleymdum einu. »Velocity« G.K.
nr. 24 hefir nú í 3 ár legið á botninum
á Eiðsvik, sjást möstrin upp úr um fjöru
og er það hið eina, sem bendir mönn-
um á, að hjer sje eitt af fiskiskipum
landsins árið 1914.
Hvers vegna declination sólarinnar er
eigi tekin með i almanaki handa íslensk-
um fiskimönnum sldljum vjer ekki.
Margt gagnlegt og gott er í bæklingn-
um, og eiga þeir þökk skilið, sem hvatn-
ingsmenn hafa verið lil þessarar byrjun-
ar. Það má rifa niður alt, en synd væri
að eyðileggja byrjunartilraun á nytsömu
verki. Að bent sje á galla er sjálfsagt
og sjálfsagt að leiðrjetta, sjeu þær bend-
ingar rjettar og á rökum bygðar.
»Ægir« mun færa lesendum sínum
ýms góð ráð úr almanakinu, þar eð ó-
vist er að það verði í höndum almenn-
ings.
Skrá
yfir botnvörpuskip er keypt hafa verið til
landsins og smíðuð hafa verið fyrir isl. fje.
»Coot« kom fyrstur hjer til lands 1905,
og var keyptur af bankastjóra Birni
Kristjánssyni, Einari kaupmanni Þorgils-
syni í Hafnarflrði, Indriða skipstjóra Gott-
sveinssyni o. fl., hann fór upp í Keilis-
nes nokkru eftir nýár 1908.
»Seagull«. Það skip keyptu nokkrir
menn i Reykjavik og utan Reýkjavíkur;
gekk skipið til fiskjar part úr 2 árum,
en hefir nú hin siðustu árin legið í Hafn-
arfirði ónotað. Það mun hafa verið keypt
frá Swansea í Wales.
»Mars«. Það skip keyptu kaupmaður
Jes Zimsen o. fleiri. Var það úr flota
Pickerings og Haldane i Hull. Það