Ægir - 01.02.1914, Qupperneq 10
22
ÆGIR
kom hingað 1907. Úlgerðafjelagið er
h/f. ísland.
»Jón Forsetk. Smiðaður 1907 fyrir
Alliancefjelagið hjer í bæ og fyrsta skip
þess.
»Snorra Sturluson« keypti h/f. P. I.
Thorsteinsson & Co. 1907.
»íslendingurinn«. Hann keypti útgerð-
armaður Elías Stefánsson o. fl. Kom
hingað 1908. Hvað þetta skip hefir heit-
ið áður er oss ókunnugt, einnig árið sem
það var bygt.
»Valur«, Hann keyplu þeir Árni skip-
stjórí Hannesson og kaupmaður Gunnar
Einarsson hjer í Rvík. Það var árið 1908.
Síðan komst skipið í höndur Millióna-
fjelagsins og er nú nýskeð selt til Hafn-
arfjarðar, útgerðarfjelagi einu nýstofnuðu;
verður skipið hjer eftir kallað »Alpha«.
»Freyr«. Hann keypti Sigfús kaupm.
Bergmann í Hafnarfirði o. 11. 1908. Sið-
ar varð hann eign hT. P. 1. Thorsteins-
son & Co. og rak á land við Rauðará
20. okt. 1913.
»Snorri goði«. Hlutafjelagið Draupnir
keypti það skip frá Engl. veturinn 1911.
»Skúli Fógeti«. Það skip ljet Alliance-
fjelagið smíða i Englandi 1911; á þvi er
skipstjóri hinn mikli fiskimaður Halldór
Þorsteinsson.
»Eggert ólafsson«. Það skip keypti
konsúll Pjetur Ólafsson á Patreksfirði 1911;
eru nú fleiri eigendur skipsins og gengur
það til fiskjar frá Reykjavik.
»Skallagrimur« hjet áður »Gloria« og
mun hafa verið smiðaður handa danska
Pjetri, hinum mesta fiskikongi Englands
og munu margirkannast við manninn og
nafnið hjer. Það skip keypti h/f Kveld-
úlfur hjer i bæ 1912.
»Baldur«. Það skip ljetu bræðurnir
P. J. Thorsteinsson og Th. Thorsteinsson
smíða á Englandi árið 1912.
»Bragi«. Sömu menn Ijelu smiða hann
sama ár.
»Apríl«. Það skip Ijet h/f. »lsland«
smiða (framkvæmdarstjóri Jes Zimsen)
smiða á Englandi 1912.
»Earl af Monmauth«. Isfirðingar keyptu
það skip 1913.
»Helgi Magri«. Það skip var keypt til
Akureyrar 1913. Hvað það skip hjet áð-
ur vitum vjer ekki, en æskilegt væri að
fá að vita um það.
Leiguskip hjer við land hafa verið und-
anfarin ár:
Thorsteinssons bræðurnir P. J. Th. &
og Th. Th. höfðu 2. árið 1911.
»Vale af Lennox«.
»W. Wetherley«.
Ellas Stefánsson o. 11. höfðu að leigu
árið 1913, 2 skip.
»W. Wetherley«.
»Triumph«.
»Garðar Landnemi« og »Great Admir-
al« voru hjer um tíma og þá af ýmsuin
taldir að vera islensk eign, en hvernig
það var, vitum vjer eigi.
Útdráttur
úr fundarbókum Fiskideildarinnar »Framtíðin«
á Eyrarbakka.
Aðalfundur deildarinnar var haldinn á
Eyrarbakka h. 17. janúar þ. á. Fund-
arstjóri Tómas Vigfússon í Garðbæ, en
skrifari Magnús Jónsson í Klausturhólum.