Ægir - 01.01.1915, Blaðsíða 10
8
ÆGIR
þessu, og er viss um, að verða mundi
öllu landinu til heilla.
Þess skal einnig getið, að margir bátar
eru að öllu lejdi ágætlega útbúnir.
Með námskeiðunum má áreiðanlega
koma mörgu góðu til leiðar; áhuginn
hjá hinum yngri mönnum vaknar smám
saman, og löngunin til að alla sjer þekk-
ingar eykst. Æskilegt væri, að þessi
námskeið gætu líkst meira skólum og
væru viðlækari, svo nemendur gælu tekið
próf að lokum, sjerstaklega i siglinga-
i'ræði og mótor-vjelfræði. Á þessu nám-
skeiði sem jeg hjelt á ísafirði, kendi jeg'
fullkomlega jafn mikið og kent er hjer
við mótor-vjelfræðisdeildina í Reykjavík,
en sá var munurinn, að hjer taka þeir
próf, en á námskeiðunum fá þeir ekki
að laka próf, og virðist það ekki vera
rjettlátt, þó þeir sæki námskcið utan
Reykjavíkur, og væri það löluverðum
erfiðleikum bundið fyrir menn viðsvegar
af landinu, að sækja skólann hjer í
Reykjavík.
Samtals á landinu eru sem næst 500
mótor-bátar; á hverjum bál er að með-
altali um 5 menn, og verður því um
2500 manns, sem hel'ur beinlínis atvinnu
við þessa báta, fyrir utan landmenn, sem
líka vinna að þvi, sem bátarnir færa að
landi. Væri ekki æskilegt, ef að hægt væri
að gjöra eilthvað meira fyrir þessa öíl-
ugu stjelt í þjóðijelaginu, þó ekki sjeu
laldir upp þeir, sem óbeinlinis eða á
annan hátt eru aðnjótandi fiskiveiðanna.
Væri ekki hugsanlegt, að alþingi mundi
veita ije tii námskeiða eða einhvers ann-
ars, sem stefndi í líka átt, og gæti orðið
lil heilla og gagns fyrir íiskimennina.
í Kerteminde í Danmörku var 3. nóv.
1908 slofnaður skóli fyrir sjómenn; i
Finnlandi 1909 og í Noregi 1910; til allra
þessara skóla eru veittar töluverðar fjár-
upphæðir, sem leiðir af sjálfu sjer að
þarf að vera, til þess að skólarnir geti
þrifist.
í von um, að allir sjeu á verði fyrir
heill og velferð íslensku sjómannanna,
bendi jeg þessum uppástungum minum
til háttvirtrar sljórnar Fiskifjelags Islands
lil frekari yfirvegunar.
Reykjavík 8. jan. 1014.
Ó. T. Sveinsson.
„3ngóljs“-slysi0.
Að cins oinn vjelamaðnr á skipimi.
»Ingolf« átti að sækja kol lil Hull og
Ilytja þau til Rönne. Það fór frá Iíhöín
á hádegi þ. 23. des. og siðan hefur ekk-
ert til þess spurst. Alls voru 10 manns
á skipinu, 12 Danir, 3 Sviar og 1 Rússi.
P. R. Petersen var n^dega orðinn skip-
stjóri i Thore-fjelaginu, og var þelta fyrsta
ferð hans á »Ingolf«.
Hann var giftur og fluttist til K.hafnar
frá Faaborg um leið og hann varð skip-
sljóri á »Ingolf«.
Undrun mikla hel'ur það vakið, að það
var að eins einn maður á skipinu, sem
hafði þekkingu i vjelfræði, vjelameistar-
inn Martin Brödegaard. Segja dönsk blöð,
að það sje með öllu óleyfilegl að láta í
haf með að eins einn vjelamann um
borð.
Það liggur í augum uppi, segja dönsk
blöð, að sami maðurinn getur ekki haft
vörð bæði dag og nótt. En það er með
öllu ótækt að láta ólærðan mann hafa
ábyrgð á vjelunum, meðan fyrsti vjela-
meistari sefur. Samkvæmt »Politiken«
mun þessi hlið málsins verða tekin fyrir
í sjórjettinum danska.