Ægir - 01.01.1915, Blaðsíða 11
ÆGIR
9
Blöðin í Danmörku virðast eigi vera
viss um það, að »Ingolf« liafi reldst á
tundurdufl. Það þykir engu siður hugsan-
legt, að eitthvað hafi komið fyrir i vjela-
rúminu, sem orsakað hafi sprengingu.
(»Morgunbl.«).
Heima.
Hr. Matthía8 Pórðarson,
fyrv. formaður Fiskifjelags Islands, er
nú orðinn erindreki Fiskifjelagsins
erlendis. Var honum veitt slaðan í þess-
um mánuði.
Alls góðs má vænta af slarfi M. Þ.,
hann hefur sýnt mikinn áhuga á öllu
því, er varðar sjávarúlveg vorn, og gagn-
kunnugur er hann um land alt, og hefur
auk þess farið ierðir suður í lönd og
kynt sjer markaði þar.
Hann er nú, eins og áður er getið,
húsettur i Liverpool á Englandi.
öfsaveður í Vestiuaimeyjuni. — Vjelhátur
fersl. — 5 íuenn drubkna.
Það sorglega slys bar við i Vestmanna-
eyjum 14. jan. síðastl., að vjelbáturinn
»Fram« lörst, og öll skipshöfnin, 5 menn,
drukknaði.
Atvikin. Hinn 13. jan. fór vjelbáturinn
»Fram« á flskveiðar, ásamt mörgum öðr-
um hátum. Veður var þá fremur gott,
hæg austangola og' sjór nær enginn. En
daginn eftir (14. jan.) skall á ofsaveður
að austan, með ógurlegasta brimi og
slórsjó.
Bátarnir voru þá eigi komnir að, og
höfðu fæstir þeirra dregið línur sínar, er
óveðrið skall á. Urðu margir að skilja
þær eftir, og hafa þær að likindum
tapast.
Bátarnir komu smámsaman að, og
tókst öllum að lenda nema einum,
»Fram«. Er hann var kominn rjett upp
að landsteinunum, að svokallaðri Sljettu-
klöpp, suður undan Kirkjubæ, sáu menn
úr landi að brotsjór skall á bátinn með
hræðilegu afli og þunga, og keyrði bál-
inn i kaf um stund. Skipshöfnin á
»Fram« var þá öll á þiljum nema vjela-
maður, og er sjórinn hafði riðið af og
skollið á klettana með feiknalegu braki,
sáu menn frá landi að skipshöfnin var
horfin. Báturinn marraði þá í hálfu kafi
og fyltist brátt af sjó.
Einn skipverja hafði náð í dufl, sem
ilaul af bátnum. Skolaðist hann hrátt
upp í klettana á öldunni, og hefur að
likindum rotast þar, því hann hvarl'
undir eins.
Skipshöfnin. Á bátnum voru alls 5
menn. 'Formaðurinn hjet Magnús
Þórðarson, frá Dal i Vestmanneyjum,
giftur maður, lætur eftir sig konu og 4
ungbörn. Með Magnúsi voru Ágúst
S igur h a n ss o n vjelamaður, ógiftur á
besla aldri, ættaður úr Vestmanneyjum ;
B j ö r n E y j ó 1 f s s o n frá Skála undir
Eyjafjöllum, ógiftur unglingsrnaður; Helgi
Halidórsson, ættaður frá Hafnarfirði,
en hafði dvalið lengi í Vestmanneyjum.
Hann lætur eftir sig konu í Hafnarfirði.
Fimti maðurinn var Arnkell Daní-
elsson Thorlacius, frá Steintúni i
Bakkafirði, og var hann ógiftur.
Alt voru þetta dugnaðarmenn hinir
mesta, á liesta aldri, og' eftirsjá þvi mjög
tilfinnanleg. Formaðurinn Magnús var
einn af fremstu dugnaðarmönnum í Vesl-
manneyjum, og þótti sjómaður ágætur
og' fiskimaður eigi síður. Hann var sonur
Þórðar Qddssonar frá Ámundakoti i
Fljótshlíð.
y>Fram«. Vjelbáturinn »Fram«, nr. 174,
var alveg nýr og vel útbúinn að öllu leyti.