Ægir - 01.08.1916, Side 13
ÆGIR
105
150 kr. smálestin, og ldukkustundin kost-
ar skip, sem þau nota 15—30 kr. eftir stærð
skipsins. Síldarnet, sem höfð liafa verið
með þiliubátum, kostuðu áður 35 kr., nú
kosta þau um og yfir 100 kr. Lóð með
100 önglum var áður 10 kr. virði, nú
kostar hún 43 kr.; salt kostaði áður
1,80—2 kr., nú kr. 12,50, síldartunnan
áður kr. 2,50—3,50, í vetur sem leið
komust þær upp í 11 kr. hver tunna,
nú er hámarksverð sett 7 kr., og auk
þess er óhætt að leggja 1 kr. á hverja
tunnu í flutningsgjald til verstöðvanna.
Mótorbátur án veiðarfæra sem kostaði
áður 10—12000 kr., fæst nú ekki keypt-
ur undir 20—25000 kr. Gufuskip um
103 fet kostaði áður, með veiðarfærumj
130,000 kr., nú er slíkt skip komið upp
í 250,000 kr. ef ekki meira.
Jeg gæti haldið áfram að telja upp, en
þau dæmi sem jeg hef tekið hjer fram,
munu nægja til þess að sýna og gera
ruönnum skiljanlegt hvernig ástandið er.
A-Oir munu skilja það, að til þess að
standast slík útgjöld, verður að hækka
verð á afurðum eigi nokkur von að vera
um hagnað, en enn þá hef jeg ekki nefnt
hið versta. Það er hinn mikli skortur á
veiðarfærum, þvi þótt menn gætu greitt
hið afarháa verð, þá fást þau ekki nema
af skornum skamti, og vei’ði eigi breyt-
mg á þessu innan skamms, þá rekur að
þvi, að útgerðin verður að hætta vegna
þess að veiðarfæri vanla. Nú liggur fiski-
ílotinn altilbúinn til að leggja á stað til
síldveiðanna við Island og kostar útbún-
uður hans margar miljónir króna, en út-
ht er fyrir að fiskimennirnir hætti við
þá ferð, vegna ýmsra örðugleika og sök-
um þess hve leið yfir hafið er ótrygg.
Hvert er verð 'á fiski um þessar mund-
u ^ J margar vikur hefur hið hæsta verð
a fiski verið, í nágrenni við mig, langa
.10 kílógr., stór lúða 0,50 kg., smá-
lúða 20—30 aura og upsi 20—30 aur.
hvert kilógr. og margir munu hafa feng-
ið lægra verð en það sem jeg nefni.
Eftir hinn 3. júni í sumar fjell allur
fiskur í verði um minst 10 aura hvert
kilógr. og verð á lúðu lækkaði mest (um
30 aura) og eftir útliti öllu að dæma,
mun verð á fiski falla enn. Fyrir striðið
var gefið fyrir löngu 16—17 aur. kiló,
keila 12—14 aura, lúðu 60 aur. til 1 kr.
og upsa 10—12 aur. hvert kíló. Með því
verði á öllu sem til útgerðar þarf, skil
jeg ekki að mikill afgangur verði, enda
þótt verðið sje hærra nú. Það virðist mjer
liggja i augum uppi og jafnvel þeim,
sem lítið skynbragð bera á útgerð og
fiskiveiðar. En, segja sumir, fiskimenn
hafa þó síðastliðið ár grætt mjög mikið,
og blöðin hafa kepst um að skýra frá
hinum miklu auðæfum, sem líktust því
að gullpeningum væri ausið upp úr sjón-
um, en þau bæta nú stundum við þegar
þau eru að skýra frá einhverju og eins
er hjer. Hagnaður fiskimanna í fyrra var
ekki nálægt því eins mikill og alment
var haldið.
í þeim hluta landsins, þar jeg er kunn-
ugastur, aílaðist að visu svo, að hlutur-
inn var yfir allan timann 3—5000 kr.
virði, en ef þessari upphæð urðu fiski-
menn að greiða mildar upphæðir fyrir
veiðarfæri og byrgja sig upp að því er
til úthalds þurfti fyrir næsta ár, og skildu
þeir hafa haft einhvern afgang ætti ekki
að öfunda þá af því. Atvinna sú er þeir
stunda er bæði örðug og hættuleg, og
hvað hún er fyrir landið í heild sinni
vitum vjer allir og ættum því ekki að
sjá ofsjónum þótt þeir stæðu ekki slippir
eftir ársvinnu sina.
Fiskiveiðar eru hættuleg og ótrj'gg at-
vinna. Veiðarfæramissi er tíður og afli
misjafn og alt er óvíst. Þess vegna er
það lieimskulegt að álíta, að þótt eitt ár