Ægir

Árgangur

Ægir - 01.06.1922, Blaðsíða 6

Ægir - 01.06.1922, Blaðsíða 6
'72 ÆGÍR rétt til að vera formeður á vélbát eða þilskipí, 6 tll 12 rúmlestir að stærð, Fyrir skirteini þetta greiðist ein króna, er rennur i landssjóð. II. KAFLI. Um rétt til skipstjórnar og stýrimensku á skipum alt að 60 rúmlestir. 3. gr. Rétt til að vera skipstjóri á is- lenzku skipi i innanlandssiglingum, ef að skipið er yfir 12 rúmlestir, en ekki yfir 60 rúmlestir, að stærð, hefir sá einn, sem fengið hefir skipstjóraskírteini á smá- skipum. 4. gr. Sá einn getur fengið skipstjóra- skírteini fyrir smáskip, er: a. staðist hefir smáskipapróf eða önnur æðri íslenzk siglingapróf, b. hefir verið slýrimaður minst 8 mán- uði á skipi eigi undir 12 rúmlestir, c. er fullveðja, d. hefir eigi verið dæmdur fyrir nokk- urt það verk, sem svívirðilegt er að almenningsáliti. e. sannar, að sjón hans sé svo fullkom- iu sem nauðsynlegt er fyrir stýri- menn. 5. gr. Rélt til að vera stýrimaður á islenzku skipi alt að 60 rúmlesta i inn- anlandssiglingum hefir sá einn, sem feng- ið hefir slýrimannsskirteini á smáskipi. 6. gr. Sá einn getur fengið stýrimanns- skírteini á smáskipi, er: a. staðist hefir smáskipapróf eða önnur æðri islensk siglingapróf, b. hefir eigi verið dæmdur fyrir nokk- urt það verk, sem svívirðilegt er að almenningsáliti. c. sannar, að sjón hans sé svo fullkom- in sem nauðsynlegt er fyrir stýri- menn. 7. gr. Sá einn getur staðist smáskipa- próf, er: a. kann að marka stað sjdps á sjávar- uppdrátt og hefir nægilega þekkingu á sjávaruppdráttum og notkun þeirra yfir höfuð. b. kann að nota kompás og ber skyn á segulskekkju og misvísan, c. kann að nota skriðmæli og vegmæli, d. þekkir björgunartækin, hin alþjóð- legu neyðarmerki og alþóðareglur til að íorðast ásigling. e. sannar, að sjón hans sé svo fullkomin sem nauðsynlegt er fyrir stýrimenn, f. ritar íslenzku stórlýtalaust, g. hefir verið háseti eftir 16 ára aldur að minsta kosti 24 mánuði á skip- um ekki minni en 12 rúmlestir, eða verið formaður á vélbát ekki minni en 10 rúmlestir í 24 mánuði. 8. gr. Eftir að 2 ár eru liðin frá því að lög þessi öðlast gildi, skal próf það, er um getur í 7. gr., fara að eins fram í Reykjavík. Þangað til skulu prófin haldin í Reykjavík, Vestmannaeyjum, á Seyðisfirði, Akureyri og ísafirði. I Reykjavík eru prófdómendur þeir sömu og við stýrimannaskólaprófin, og skal forstöðumaður skólans vera for- maður prófnefndarinnar. Próf þetta skal halda tvisvar á ári í april—maí á vorin og nóvember —jauúar að vetri. 1 hinum kaupstöðunum, sem ofan eru greindir, skulu prófdómendar vera 3 skipstjórar, og skal stjórnarráðið skipa formann próf- nefndarinnar eftir tillögum forstöðumanns og kennara stýrimannaskólans í Reykja- vik, en hina tvo eftir tillögu lögreglustjóra; próf þessi skulu haldin einu sinni á ári, á þeim tímum árs, sem Stjórnarráðið á- kveður eftir tillögum bæjarstjórnar. Stjórnarráðið semur reglur um prófið og fyrirmynd fyrir prófvottorðum. Hver sá, er staðist hefir prófið, fær vottorð um það þegar að afloknu prófi. Kostnaður við prófið greiðist úr ríkis- sjóði.

x

Ægir

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: Ægir
https://timarit.is/publication/584

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.