Ægir

Árgangur

Ægir - 01.09.1929, Blaðsíða 7

Ægir - 01.09.1929, Blaðsíða 7
ÆGIR 183 engu þýðingarminni, liggja einnig til grundvallar. Til þess að skýra, hversvegna aíii svo að segja bregst á vissum fiskistöðvum mörg ár í röð, eða hversvegna mikið aflast á sömu miðum árum saman, er nauðsynlegt að kynna sér náið lifnaðar- háttu þorskins á þessum stöðum, og þá sérstaklega aldur hans og vöxt. Aldurs- ákvarðanir á þorski og öðrum fiskiteg- undum, hafa verið tíðkaðar mjög mikið á síðari árum. Á síðasta áratug síðustu aldar, fengu menn einkum upplýsingar um aldur og vöxt fiska við mælingar. Viss fjöldi fiska sömu tegundar var mældur, og skipuðust þeir í flokka eftir stærð, þ. e. eftir aldri. En tveir voru gallar á þessari aðferð. Annar var sá, að stærðarflokkarnir runnu saman án glöggra takmarka, einkum þegar um stóran fisk var að ræða, svo eigi var hægt að skera úr þvi, hvort fiskur á takmörkum tveggja flokka skyldi teljast til eldri flokksins eða yngri. Hinn gallinn var, að aðferðin sýndi ekki glögt muninn á vaxtarhraða fiskins í heitum og köldum sjó. Um síð- ustu aldamót, byrjuðu reglulegar aldurs- ákvarðanir á fiski. Sá maður, sem fyrst- ur mun hafa byrjað á þessu var Pjóð- verji, Heincka að nafni. Hann ákvað aldur á þorski og skarkola eftir rótar- beinum, eyrugga, kviðugga og hryggjar- liðum, og skrifaði þrjár ritgerðir um þetta efni í þýzkt hafrannsóknartímarit )Die Beteiligung Deutschlands an die internationale Meeresuntersuchungen, Berlín 1904, 1906 og 1908). Auk ýmsra beina er hægt að nota kvarnir og hreistur fiska til aldurs- ákvarðana. Petta byggist á þvi, að bein, hvarnir og hreistur vaxa misjafnlega hratt eftir árstíðum, hægar í kulda og við sult, hraðar í hita og við nægð fæðu, eins og allir aðrir líkamshlutar fisksins. Tafla I. Aldur og lengd á þyrsklingi, teknum á Seyðisfirði 13. ágúst 1925, (veitt með ádráttarneti). Lengd í cm Veturgamall (I - Gr.) Tvævetur (II - Gr.) Þrevetur (III - Gr.) Samtals í5 - í - í 40 - í í 3 3 35 - 1 1 1 1 2 2 4 30 - 1 1 2 2 1 1 2 2 3 3 25 - - 6 - 6 5 5 9 9 6 6 4 4 20 - 2 2 3 2 5 9 1 10 30 30 84 84 15 - - 254 - - 254 606 606 749 749 310 310 79 79 10 - 24 24 Fjöldi 2148 43 12 2203 Meðall., cm 13.47 23.51 34.75 Á beinum, kvörnum og hreistri mynd- ast þannig breiðir, ljósleitir hringir þegar vöxtur fiskins er hraður, dökkir, mjóir hringir þegar vöxturinn er hægur (sbr. Bjarni Sæmundsson: Fiskarnir bls. 24). Þorskur, sem veiðist á sama miði, á sama tíma árs, hefir oftast nær alist upp við nokkurnveginn sömu kjör, og er því nokkurnveginn eins að stærð. Aldurs- rannsóknir leiða ennfremur í ljós að

x

Ægir

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: Ægir
https://timarit.is/publication/584

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.